Ég ákvað að skipta um kerti í honum og tók þá eftir að nokkur kertin voru alveg löðrandi í olíu og gúmmíendinn á háspennukeflinu líka. Í einu "hólfinu" sem kertið rennur niður í var bara pollur af olíu
Hvað getur þetta þýtt? Farin einhver pakkning eða?
Ég þarf vart að taka fram að ég er algjör nýgræðingur þegar kemur að bílaviðgerðum.


