gaulzi wrote:
skulum nú hafa það á hreinu að ég hafði oft samband við þig út af þessu og reyndi eins og ég gat að vera góði gaurinn og gefa þér séns fram að mánaðarmótum..
Þú hafðir samband við mig fyrst þegar að ég fór á Hellu 2006.... þá varð síminn minn batteríslaus og ég gat ekkert náð sambandi við þig, en var með pening fyrir umsömdu kaupverði, hjólaði þarna á Yamaha YZ hjóli sem að ég var á og reyndi að ná sambandi við þig með því að spyrjast fyrir hjá brautarstarfsmönnum, því að mér skildist á þér að þú værir brautarstarfsmaður... enginn gat bent mér á þig... og ég fann þig ekki, peningurinn fór á endanum í annað
Svo hafðiru samband seinna en þá átti ég ekki pening, ég nældi mér í nýjan mótor í bílinn og hugði að skila þér bílnum... Í BETRA ásigkomulagi en þegar að ég tók við honum. En þetta var nú ekki alveg jafn góður bíll og þú vilt meina hérna
Ég var búinn að skipta um dempara að aftan (það vantaði annan demparann í hann), önnur lokan að framan var ónýt og ég skipti um hana. Nýr Alternator og ný reim.. og ýmislegt annað sem að ég fékk gefins á partasölunni þar sem að síðan átti að skipta um mótor !
Ég samdi við pólverja sem að voru að vinna þarna um að þeir tækju þetta að sér... síðan var kveikt í bílnum fyrir utan partasöluna og allar rúður brotnar
Þarna var sá möguleiki úr myndinni og sá ég ekki fram á að annað væri í stöðunni en að borga þér. Því miður voru engir peningar til...
Ég ræddi síðan við þig og bað þig að bíða, ég ætti von á peningum um mánaðarmót. Þeir komu síðan ekki (á sama tíma og ég skuldaði Danna fyrir PO700). Þarna liðu nokkrir mánuðir og ég heyrði ekkert í þér, gleymdi þessari skuld (ekki viljandi taktu eftir því), fékk siðan pening í Júní og borgaði Danna, nokkra reikninga, fjárfesti og tók mér smáræði til að skemmta mér fyrir !
Þarna var ég alveg búinn að gleyma þessari skuld við þig... og biðst ég innilegrar afsökunar á því
Núna er ég enn og aftur.... að bíða eftir pening...
Ég skal glaður gera upp við þig þegar fæ peninginn....
Ég skal meira að segja opinbera það... að ég skulda Danna Djöfli 200þ einnig... og hann fær sinn pening... þegar að peningarnir koma
Danni 540 fékk sinn pening á endanum.... og hann veit vel að þetta tafðist...
En það að opinbera svona án þess að hafa samband við mig og vara mig við fyrst finnst mér versti skíthælsháttur
