Stebbimj wrote:
Ég hef ekki enn lent í löggunni útaf "check-i" hérna í reykjanesbæ og ég er bara þónokkuð sáttur með það, en ég og bróðir minn vorum stoppaðir á leið til Selfoss þegar ég var að farað kaupa núverandi bíl og löggan þá var bara fín, skoðaði ökuskirteinið hans Danna og svo fengum við að fara, ekkert leitað í bílnum eða neitt og þá vorum við á E36 318i.
Bíddu bara Stebbi minn, ég var lagður í sérstaklega mikið einelt af lögregluni á þessum bíl þegar að ég átti hann.
Versta sagan er þegar að þeir bönkuðu heima hjá mér á Sunnudagsmorgni og ætluðu að kæra mig fyrir eignarspjöl sem áttu að hafa gerst á Miðvikudeginum.. Lögreglan hélt því fram að það væru til myndi af mér að spæna upp grashólinn sem er á Ægisgötuni, sögðu meira að segja að það værri til Video en svo kom í ljós að eina sem að þeir voru með í höndunum var Hringing frá virtum manni í Bæjarráðinu sem sá atburðinn og ljósmynd eftirá.. lögreglan var bara með eitthvern skæting og leiðindi og hélt ýmsu fram á meðan mamma stóð þarna og vissi ekkert hvort hún átti að trúa mér eða Lögregluþjónunum.
Pabbi fór svo niður á stöð og fékk að vita allt um þetta mál, við fórum síðan og töluðum við manninn sem að hringdi í 112 og kærði þetta, og hann hafði samband við Lögregluna og leiðrétti miskilninginn sem að átti sér stað.
Einfaldlega það eina sem gerðist var að lögreglan miskildi manninn í símanum!!
Þetta er eitt af mörgum svona atvikum sem ég hef lent í
En skemtilegasta stoppið sem ég lenti í var af ungri stúlku sem var nýbyrjuð í lögguni sem kom uppað bílnum hjá mér og sagði: "það er nú meiri þokan úti er það ekki,, ég svarið: "nei það er enginn þoka,, þá sagði hún: "nú afhverju ertu þá með kastarana í gangi,, svo bað hún mig fallega að slökkva á kösturunum spurði síðan hvort allir væru ekki í belti, Kvaddi síðan og fór. og ég var á Svarta Bimmanum(TG-825)..