Hæ
Ég er að fara að flytja inn bíl í vor. Ég stefndi að því að taka Norrænu í maí og fékk uppgefið pakkaverð fyrir tvo í klefa með einn bíl. Verðið er um 80.000 kr.
Þegar bókunarstofan heyrði að ég væri með útlendan bíl, þ.e að flytja inn, þá ætla þeir að rukka 40.000 kr flat rate ofan á allan pakkan. Við erum þá að tala um 120Þ. kr. Ég var ekki að kyngja þessu og bað um frekari útskýringar:
"Sæll,
Þessi auka 40.000.- ISK er ekki miðað við frakt - frakt verð er líklegast
miklu dýrara en þú getur ath það hjá Smyril-Blue-Water í síma 470-2800 en
þeir sjá um alla frakt og geta þá gefið þér upp frakt verð.
En ef þú vilt gera þetta í gegnum ferðaþjónustuna (okkur) hér á
skrifstofunni að þá er þetta verðið. Þú verður þú alltaf að greiða þennann
reikning - Tollurinn á Seyðisfirði mun stoppa þig við koma á Seyðisfirði þar
sem þeir sjá auðvitað að bíllinn er á erlendum númerum og þá munu þeir
einnig vilja sjá þennenn reikning, sem bara við getum útbúið fyrir nú eða
frakt skrifstofan en þá verður þú auðvitað að senda bílinn með frakt. +
"
Er þetta e-ð nýtt? Vitið þið í hverju þessi 40Þ kall liggur??

