Norræna innflutningur

Hér skal spjalla um BMW.

Norræna innflutningur

Postby bjornod » Mon 18. Feb 2008 22:07



Ég er að fara að flytja inn bíl í vor. Ég stefndi að því að taka Norrænu í maí og fékk uppgefið pakkaverð fyrir tvo í klefa með einn bíl. Verðið er um 80.000 kr.

Þegar bókunarstofan heyrði að ég væri með útlendan bíl, þ.e að flytja inn, þá ætla þeir að rukka 40.000 kr flat rate ofan á allan pakkan. Við erum þá að tala um 120Þ. kr. Ég var ekki að kyngja þessu og bað um frekari útskýringar:

"Sæll,
Þessi auka 40.000.- ISK er ekki miðað við frakt - frakt verð er líklegast
miklu dýrara en þú getur ath það hjá Smyril-Blue-Water í síma 470-2800 en
þeir sjá um alla frakt og geta þá gefið þér upp frakt verð.

En ef þú vilt gera þetta í gegnum ferðaþjónustuna (okkur) hér á
skrifstofunni að þá er þetta verðið. Þú verður þú alltaf að greiða þennann
reikning - Tollurinn á Seyðisfirði mun stoppa þig við koma á Seyðisfirði þar
sem þeir sjá auðvitað að bíllinn er á erlendum númerum og þá munu þeir
einnig vilja sjá þennenn reikning, sem bara við getum útbúið fyrir nú eða
frakt skrifstofan en þá verður þú auðvitað að senda bílinn með frakt. +
"

Er þetta e-ð nýtt? Vitið þið í hverju þessi 40Þ kall liggur??
bjornod
Kassabílstjóri
 
Posts: 126
Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46

Postby Svessi » Mon 18. Feb 2008 23:32

WHAT!!!

Ég get nú ekki svarað spurningu þinni en bara eitt enn dæmið um hvað er alltaf verið að taka okkur í það skræfþurt.

Peningplokk dauðans.
Ekki nóg með að maður þurfi þá að borga þessar 40 þús kr aukalega heldur legst þetta ofaná verðið sem innflutningstollar eru reiknaðir út frá.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Postby Bjarkih » Tue 19. Feb 2008 00:07

Sýnir bara í hnotskurn hvað þjónustan hjá Smyril-line er ömurleg. Ætti ekki að vera erfitt fyrir þá að sundurliða pakkareikninginn til að fá raunverulegann flutningskostnað á bílnum hingað.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby saemi » Tue 19. Feb 2008 01:09

Akkurrat. Þetta er peningaplokk.

Ég lenti í þessu á sínum tíma. Það er ódýrara að senda bíinn sem frakt heldur en að einhver taki hann sem er að fara hvort eð er með ferjunni!

Þetta eru bara rugludallar!
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby sh4rk » Tue 19. Feb 2008 02:57

Ég þurfti að borga 36000 kall að mig minnir fyrir flutning á bimmanum mínu þegar Bjarki flutti hann inn fyrir mig með Smyrill-Line frá Dk
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Tilboð frá Atlantsskipum

Postby bjornod » Tue 19. Feb 2008 11:58

Tilboðið frá Atlantsskipum hljóðar upp á 115Þ frá Rotterdam.

"
Eftirkrafa: EUR € 275
Flutningur: EUR € 500
Öryggisgjald: EUR € 13,75
Staðsetningargjald: EUR € 37,5
Olíuálag: USD $ 175
Uppskipun: 18.125 kr.
Afgreiðslugjald: 895 kr.
Tollskýrsla: 3.550 kr.
ATH: tilboð miðast við að billinn komist í gám"

Reiknivélin gerir ráð fyrir 65Þ krónum fyrir flutningsgjald. Þetta er e-ð sem þarf að endurskoða.
bjornod
Kassabílstjóri
 
Posts: 126
Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46

Postby saemi » Tue 19. Feb 2008 12:50

jebb. Mætti alveg uppfæra þetta, þetta hefur hækkað GÍFURLEGA.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

AF ÞVÍ BARA

Postby bjornod » Tue 19. Feb 2008 13:50

"Sæll Björn,
Það er bara eitt verð engin sundurliðun - verðið er 40.000.- per reikning og
reiknngurinn kallast innflutnings reikningur.
Og fyrir það færðu semsagt númeraðan reikning með nákvæmri skýringu á því
farartæki sem þú ætlar að flytja inn: Gerð, týpa, árgerð, lengd, hæð,
breidd, egin þyngd, verksmiðjunúmer og svo útbúum við sendingarnúmer sem er
líka stundum kallað farmskrárnúmer sem fer einnig á reikninginn. Það er
skráð á reikninginn hvenar það kemur til landsins, hvernig það kemur til
landsins og hver innflytjandi og eigandi fararækis er. Því þetta eru jú
allt atriði sem þurfa að vera á sér pappír fyrir bæði þig sem innflytjanda,
toll og umferðastofu.

Nei þetta er nú ekkert nýtt svosem og hefur verið útbúið síðan 2004 en það
hefur verið verðhækkun í þessum málum hjá okkur Þar sem sá hópur sem flytur
inn með sér farartæki fer sífellt stækkandi og þar sem það fer dagóður tími
í það að útbúa þessa reikninga fyrir fólk að þá höfum við verðlagt þessa
þjónustu svona.

Þegar fólk flytur inn bíla, húsbíl eða hjólhýsi er verðið 40.000.- ISK á
hvern innflutning.
Ef fólk vill flytja inn með sér mótorhjól, kerru eða tjaldvagn/fellihýsi þá
er verðið á reikningnum 25.000.- ISK
Verðið er ekki breytilegt eftir tímabilum eins og verð ferða.
"

ÞÁ ER ÞAÐ KOMIÐ Á HREINT......
bjornod
Kassabílstjóri
 
Posts: 126
Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46

Postby siggik1 » Tue 19. Feb 2008 13:58

bíddu, 40 þús fyrir þetta .... getur maður ekki bara útvegað þessar uppls sjálfur og gert þetta sjálfur ? og látið eftilvill umboð úti stimpla og kvitta um að þetta sé rétt ?
User avatar
siggik1
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1445
Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Location: Reykjavík

Postby saemi » Tue 19. Feb 2008 13:59

Bööööööhhhh.

Hversu mikill tími fer í að setja þetta á blað:

Gerð, týpa, árgerð, lengd, hæð,
breidd, egin þyngd, verksmiðjunúmer.


Fyrir utan að það þarf bara þyngd og gerð fyrir tollinn.

og svo útbúum við sendingarnúmer sem er
líka stundum kallað farmskrárnúmer sem fer einnig á reikninginn. Það er
skráð á reikninginn hvenar það kemur til landsins, hvernig það kemur til
landsins og hver innflytjandi og eigandi fararækis er.


Hvaða fyrirtæki gefur ekki út reikning. Ég sé nú ekki mikinn mun á þessu og venjulegum reikningi. Að útbúa sendingarnúmer... uhh þetta eru engin geimvísindi, bara spurning um að setja á blað hluti sem eru fyrir framan mann.

Ég væri alveg til í að rukka 40.000.- fyrir svona lagað. Þetta tekur 5 mínútur að gera.

Hvernig er hægt að réttlæta 40.000.- fyrir þetta!!!!!!!1
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby saemi » Tue 19. Feb 2008 14:02

Af hverju er gjaldið 25.000.- fyrir mótorhjól? Er ódýrara að standa í þessu fyrir mótorhjól?

Það sjá allir að þetta er ekkert nema svívirðileg gjaldtaka sem ætti ekki að vera leyfileg.

Þetta t.d. leyfist ekki hjá hinu opinbera, þar er bannað að rukka inn gjald fyrir svona pappír sem er hærra en sem nemur kostnaðinum sem þarf að standa af við útgáfuna!
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby _Halli_ » Tue 19. Feb 2008 14:05

Þetta er algjörlega fáránlegt að hægt sé að rukka fyrir þetta, ég myndi nú samt ekki æsa mig yfir 1.500 kalli eða einhverju álíka... en 40 þúsund er náttúrulega bara út í hött!!


Og þessi maður hjá Bluewater (Jói held ég að hann heiti) er gjörsamlega óhagganlegur í þessum málum. Hann veit alveg hvernig hann á að ríða fólki í rassinn.
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR
User avatar
_Halli_
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Location: Oslo

Neytendasamtökin-samkeppniseftirlitið

Postby bjornod » Tue 19. Feb 2008 14:11



Ég mæli með því að flestir sendi bréf á neytendasamtökin og samkeppniseftirlitið. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir þá sem hafa áhuga á að flytja með sér bíla frá Evrópu.

Því fleiri bréf, því meiri líkur á að þetta verði tekið fyrir. Þetta er rán um miðjan dag!!!
bjornod
Kassabílstjóri
 
Posts: 126
Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46

Re: Neytendasamtökin-samkeppniseftirlitið

Postby _Halli_ » Tue 19. Feb 2008 14:23

bjornod wrote:

Ég mæli með því að flestir sendi bréf á neytendasamtökin og samkeppniseftirlitið. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir þá sem hafa áhuga á að flytja með sér bíla frá Evrópu.

Því fleiri bréf, því meiri líkur á að þetta verði tekið fyrir. Þetta er rán um miðjan dag!!!


Slow day at work.... er í bréfasmíðum :lol:
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR
User avatar
_Halli_
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Location: Oslo

Postby 20"Tommi » Tue 19. Feb 2008 14:50

Þetta er mjög einfalt mál ...
Þú kaupir pakka ferð án bils og kaupir svo fragt fyrir bilinn
20"Tommi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 716
Joined: Fri 23. Nov 2007 13:40

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 24 guests