Ritskoðun á þráðum?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Mal3 » Wed 01. Oct 2003 14:58

gstuning wrote:Eitt sem mér finnst skondið og ekki bara pínu heldur alveg ofboðslega,
Hvaðan kom Mal3 alltí einu?????

Mal3, það þarf ekki að fara lítið um þetta borð til að sjá að þú talaðir minna um BMW á BMW spjalli heldur en Lotus eða Porsche,

Þótt þú (Mal3) hafir kannski talað mikið um BMW þá talaðir þú meira um hitt
Ég fíla að sofa út á morgnanna en ég er ekkert endilega að tala um það hvern einasta dag er það, einnig fíla ég peninga ekki tala ég um þá, það er allt mitt business og á ekki heima á BMW spjalli, nema í Off Topic auðvitað.


Þér þykir kannski svarið við spurningu þinni ekki jafn fyndið og spurningin. Mér dettur helst í hug að þig gruni að bebecar hafi í snatri sent mér skilaboð vegna upprunalegra ummæla um Hugi.is, en svo er ekki. Ég hef svo sem minnstan áhuga á að fjalla um það, fólk heldur það sem það heldur og á endanum skiptir það málflutning minn engu máli. Er það annars svo skrítið að ég hafi verið að skoða mjög vinsælt spjallborð um bíla?

Við getum farið út í endalausar hárreitingar um hve mikið ég hef rætt um BMW og aðra bíla. Ef ykkur langar að fara í tölfræði er ykkur það velkomið. En spurningin er kannski fyrst og fremst hvort ég hafi verið með óviðeigandi skrif á þessu spjallborði?

Hvað um það, ég hóf ekki skrif hér í þetta skiptið til að ræða BMW Kraft, þarfir hans og nauðsynjar, heldur ummæli sem voru höfð um Huga og snertu störf mín þar.
User avatar
Mal3
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 315
Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Location: Neðra

Postby gstuning » Wed 01. Oct 2003 15:00

Ég er búinn að segja mitt og gott að hætta núna
Því sá vægir sem vitið hefur meira!!
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby oskard » Wed 01. Oct 2003 15:03

Bara svo að það komi framm þá er það sem ég skrifa hérna
mínar skoðanir ekki skoðanir bmwkrafts. :)
oskard
 

Postby bebecar » Wed 01. Oct 2003 15:10

Ert þú í forsvari fyrir kraftinum allajafna :?:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby oskard » Wed 01. Oct 2003 15:11

nei
oskard
 

Postby saemi » Wed 01. Oct 2003 15:26

Eftir að hafa lesið þessa umræðu núna á meðan skrifin hafa staðið sem hæst finnst mér ég knúin til að skrifa eftirfarandi.

Ástæða þess að ég hef ekki lagt orð í belg (staf á skjá) er sú að sem "moderator" og einn af stjórnendum BMWkrafts þá finnst mér ekki viðeigandi að málssvarar spjallsins standi í því að rökræða um eigin ágæti eða annarra.

Ég hef mína skoðun á því sem er verið að ræða hér, sem er í raun aukaatriði ásamt innihaldi efnisins hér inni.

En ástæða þess að ég setti þessa línu inn er að það gengur ekki að "spjallið" sé í deilum við spjall-meðlimi.

Þess vegna er yfirvofandi fundur (í dag eða morgun) til að samhæfa betur skrif stjórnenda keimlík þeim sem hafa verið í gangi undanfarið í póstum eins og þessum og minnka líkur á því að dýrin í BMW skógi verði óvinir.

Ég óska þess að meðlimir bíði niðurstöðu fundarins, áður en farið er nánar út í þessa sálma.

Með BMW kveðju
Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby bebecar » Wed 01. Oct 2003 15:39

Sjálfsagt mál.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Bjarkih » Wed 01. Oct 2003 18:41

Ég ætla að gerast svo djarfur að bæta smá við þetta. Ég er á póstlista sem er ætlaður aðdáendum Simpson þáttanna. Haustið 2001 var farið að bera mjög mikið á Off-topic umræðum þar og stofnaður var b-listi til að aðgreina topic og off-topic umræður í sundur þannig að þeir sem engan áhuga höfðu á öðru en þáttunum sjálfum yrðu ekki fyrir ónæði af off-topic umræðunum. Núna 2 árum seinna eru menn að sjá að þó þessi breyting hafi verið til batnaðar þá er töluverður kraftur farinn úr aðal-listanum og telja sumir að þar sé um að kenna skorti á því að umræður fái að þróast út fyrir upprunalegt topic.
Það sem ég er sennilega að reyna að segja er það að mér hefur fundist þetta spjallborð eitt það langbesta sem ég hef kynnst, það er spes off-topic þráður og þar með ætti það að vera útrætt mál. Off-topic umræður eru nú oft það sem leiðir til þess að menn kynnast betur og þær mynda svona meiri tengsl manna á milli þannig að ég myndi allavega sakna þeirra mikið.

Kær kveðja
Bjarki
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby Alpina » Wed 01. Oct 2003 20:12

Ja hérna.............
Þar sem ég er örugglega einn sá DJARFASTI í orðvali hér á spjallinu
og tel sjálfan mig ásamt ..nokkrum hörðum og áræðinlegum góðum meðlimum spjallsins með reyndari og ELDRI.... sem er búinn að eiga
13 stk BMW ganga i gegnum erfiða en jafnframt mjög ánægjulega reynslu
og nefni nú ekki sérlega dýra og kostnaðarsama reynslu (((helst SAEMI og gst sem hafa upplifað eitthvað sambærilegt)) þá langar mig BARA að segja að það sem hefur komið hér fram á undan er því miður BEISKUR sannleikur.
Rétt skal það vera að ég get verið stóryrtur en tel að öllum ólöstuðum að það sem ég hef til brunns að bera sé oft ansi... mikið til í...
mér er svo BARA sama þó að einhver kalli bílinn minn hlöðu eða fjárhús
þá er það hans álit og hið bezta mál,
En að prjóna upp á afturlappirnar ((eins og FERRARI hesturinn))
og garga og veina :::::::: HANN sagði að mamma min .blablabla
þetta er nú einu sinni spjallþráður og menn verða að athuga það að hér á landi er málfrelsi ...........svo að eins og SAEMI nefnir þá er staðan
í BMW skóginum sú að eitthvað er ekki í lagi.......
Að stjórn spjallsins sé að gjamma :burn:
Ef stjórninn telur að ég (Alpina) sé með of ..GRÓFAR yfirlýsingar..
þá .............talið við mig............. ekki stroka út!!!!!!!!!!!
Annars eiga þeir sem eiga hugmyndina að þessu spjalli heiður skilið fyrir
sérlega skemmtilegt framtak

Lifið heil

Sveinbjörn Hrafnsson
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Hlynzi » Thu 02. Oct 2003 21:34

allavegana fannst mér þetta koma nú mun harkalegar frá arnib, þetta var nú ekki sett hingað til að vanvirða einhverja bmw bifreiðar, en þegar maðurinn kemur með þetta comment þá var ég náttla ekkert að hrópa húrra yfir honum, þannig að auðvitað fær hann bara annað svar á móti.

Þetta er svoddan alhæfing hjá honum, ég efast stórlega um að hann viti nóg um þennan bíl til að vera með þessar alhæfingar á bílnum.

Svo er náttla annað mál um eigin skoðanir, ég fer ekki að breyta þeim til að þóknast einhverjum internet-miðlum.

Ég hef séð á áhugaverðir bimmar korknum (kanski fyrir tíma off-topic) þar sem kom fyrir "ekki bmw, ... .." Svo er náttla þetta login dæmi sem ég fattaði ekki, var að lesa einhverja pósta og ætla svo á off topic en það vantar, þangað til maður loggar sig inn.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby Haffi » Thu 02. Oct 2003 21:41

Bara að muna að fewkin logga sig inn og sleppa öllu TUSSI omg eins og verstu stelpur! 8)
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby arnib » Thu 02. Oct 2003 21:47

Hlynzi: Lestu þráðinn áður en þú póstar meira.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby arnib » Thu 02. Oct 2003 21:49

arnib wrote:Núna vill ég þó segja þér eitt sem þú greinilega hefur misskilið (og kannski fleiri).
Þegar ég sagði "drasl" var ég alls ekki, og síður en svo, að vísa í fjölskyldubílinn eða hvað sem var þarna á myndinni.

"Drasl" orðið mitt táknaði í þessu samhengi allt póstið hans, þ.e.a.s. mynd-af-apa-uppá-þaki-á-einhverjum-bíl.

Og svoleiðis á ekki heima á þessum stað.

Ég sé núna að orðaval mitt hefur verið slappt í þessu tilviki ...
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Hlynzi » Thu 02. Oct 2003 21:53

arnib wrote:
arnib wrote:Núna vill ég þó segja þér eitt sem þú greinilega hefur misskilið (og kannski fleiri).
Þegar ég sagði "drasl" var ég alls ekki, og síður en svo, að vísa í fjölskyldubílinn eða hvað sem var þarna á myndinni.

"Drasl" orðið mitt táknaði í þessu samhengi allt póstið hans, þ.e.a.s. mynd-af-apa-uppá-þaki-á-einhverjum-bíl.

Og svoleiðis á ekki heima á þessum stað.

Ég sé núna að orðaval mitt hefur verið slappt í þessu tilviki ...


Já orðaval þitt þarna kom einmitt mjög illa út. Þetta var greinilega ekki útpældar skriftir hjá þér, enda augljóst að þetta var mjög misskylið, reyndar áðan las ég fyrstu blaðsíðuna og svaraði henni, og svar þitt birtist mér ekki þar. Enda brást ég hinn versti við og svaraði þér, náttla í því samhengi sem ég hafði lesið þetta.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby Schulii » Thu 02. Oct 2003 22:06

að stjórnendur spjallsins þurfi að vera að lesa þetta væl finnst mér alveg ótrúlegt!!

Ég vill nota þetta tækifæri til að þakka stjórnendunum fyrir allan þann tíma og alla þá vinnu sem þeir hafa lagt á sig fyrir þetta spjallsvæði.

"líf mitt hefur breyst eftir að ég byrjaði að nota BMW-KRAFT, prófaðu" :D
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 67 guests