gstuning wrote:Eitt sem mér finnst skondið og ekki bara pínu heldur alveg ofboðslega,
Hvaðan kom Mal3 alltí einu?????
Mal3, það þarf ekki að fara lítið um þetta borð til að sjá að þú talaðir minna um BMW á BMW spjalli heldur en Lotus eða Porsche,
Þótt þú (Mal3) hafir kannski talað mikið um BMW þá talaðir þú meira um hitt
Ég fíla að sofa út á morgnanna en ég er ekkert endilega að tala um það hvern einasta dag er það, einnig fíla ég peninga ekki tala ég um þá, það er allt mitt business og á ekki heima á BMW spjalli, nema í Off Topic auðvitað.
Þér þykir kannski svarið við spurningu þinni ekki jafn fyndið og spurningin. Mér dettur helst í hug að þig gruni að bebecar hafi í snatri sent mér skilaboð vegna upprunalegra ummæla um Hugi.is, en svo er ekki. Ég hef svo sem minnstan áhuga á að fjalla um það, fólk heldur það sem það heldur og á endanum skiptir það málflutning minn engu máli. Er það annars svo skrítið að ég hafi verið að skoða mjög vinsælt spjallborð um bíla?
Við getum farið út í endalausar hárreitingar um hve mikið ég hef rætt um BMW og aðra bíla. Ef ykkur langar að fara í tölfræði er ykkur það velkomið. En spurningin er kannski fyrst og fremst hvort ég hafi verið með óviðeigandi skrif á þessu spjallborði?
Hvað um það, ég hóf ekki skrif hér í þetta skiptið til að ræða BMW Kraft, þarfir hans og nauðsynjar, heldur ummæli sem voru höfð um Huga og snertu störf mín þar.



