Að massa bíl

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Að massa bíl

Postby Svessi » Mon 28. Jan 2008 02:11

Eins og menn hafa getað lesið úr öðrum þráðum hjá mér þá er planið að fara taka 535 bílinn í gegn, og inni í því plani er að taka leðursætin í gegn og allt inni í bílnum og svo að massa bílinn og bóna til dauðans.

Vegna bilanavesens í bílnum þá hef ég ekki bónað greyið almennilega í næstum tvö ár núna og þessvegna er hann orðinn dálítið mattur.

Þótt ég eigi hundruð hreinsiefni og hafi mikinn áhuga á svona dútli þá er ég nú bara amatör í þessum. Ég á littla bónvél og hef alveg smá aðstöðu til þess að gera þetta.

Mig vantar að vita hvernig ég á að fara að og hvaða efni ég eigi að nota til að fá sem besta útkomu.
Mér er alveg sama þótt það taki viku og ég þurfi að fara fimm sinnum yfir bílinn með sitthvoru efninu, bara hvernig er best að gera þetta.

Ef þið getið bent mér á einhverjar góðar "kennslu" síður á netinu eða bent mér á einhver spes efni eða bara hvað sem er.

Undanfarin ár hef ég prófa og notað efni frá t.d. Turtle Wax, Wurth, Concept, Mothers, Simoniz, Meguiars, Auto Glym, Reckitt & Colman, Mjöll, Sonax og fleyri, þannig ég er að biðja um aðferð og kannski ef einhver getur bent á einhver spes efni, en ekki bara framleiðanda og segja að efnin frá honum séu góð/best.

Eitt sem ég hef aldrei prófað, það er þessi leir sem allir virðast vera tala um núna, en er hann ekki aðalega bara til að bóna með.

Svo hef ég séð dálítið í erlendum bílaþáttum að þeir nota eitthvað spes efni og eru með klút og svo úðakönnu með vatni í og sprauta vatni alltaf yfir svæðið sem þeir eru að massa eða taka í gegn því annars er hætta á því að skemma lakkið og oft á tíðum þegar þeir eru búnir þá verða bílanir alveg rosalega flottir. Einhver sem veit hvað ég er að tala um hérna, endilega segja þá hvaða efni menn eru að nota og hvernig maður á að nota/gera þetta.

Ég á nokkrar tegundir af massa og fullt af bóni og annarri hreinsivöru, og er með littla bónvél. Á ég bara að massa bílinn með vélinni og bóna svo þrjár, fjórar umferðir eða á ég að kaupa mér eitthvað spes massa og handmassa bílinn og nota svo leir, bara hvað ég á að gera til að ná sem bestum árangri.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Postby Axel Jóhann » Mon 28. Jan 2008 02:29

Getur jafnvel prófað að fara á sprautuverkstæði og sjéð hvort þeir vilji ekki selja þér smá massa, og sprut þá úti þetta.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby Arnarf » Mon 28. Jan 2008 09:00

Ef þú hefur áhuga á Car Detailing þá mæli ég með þessum þræði:

http://forums.bimmerforums.com/forum/fo ... .php?f=147

Þetta er subsection á bimmerforums sem er einfaldlega bara um car detailing

t.d. góðir límdir þræðir þar
User avatar
Arnarf
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 827
Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48

Postby bjornvil » Mon 28. Jan 2008 10:25

Þessi síða er með mjög góðum leiðbeiningum um allt sem viðkemur svona detailing.

http://www.autopia-carcare.com/how-to.html

Mjög góð síða að mínu mati, þótt ég hafi ekki hundsvit á þessu :)
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby íbbi_ » Mon 28. Jan 2008 18:43

farðu með bílin á bónstöð
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Benzari » Mon 28. Jan 2008 18:50

Gott verð og virðist vanda til verka,

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... ight=b%F3n
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests