bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 08. Jun 2025 02:01

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Smáís í fýlu?
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 02:25 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45
Posts: 5844
einhver sem er eilla við unglinga allavega :shock:
http://smais.is/template25024.asp?pagei ... ewsid=9025


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 09:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Þessi pistill er alveg til skammar fyrir smáís og sýnir bara hvernig lið þetta er. Fyrir utan allt málfar og stafsetningu, sem er alger hörmung, þá er þetta allt saman tómt bull. Það hefur ekki verið gerð nein rannsókn á hversu margir borguðu né hve mikið. Radiohead hafa ekki gefið upp neinar tölur mér að vitandi þannig að þetta er allt byggt á einhverjum tölum útí loftið.

Síðan er það alveg vitað mál að tónlistarmenn fá bara lítið brot af kostnaði plötu í sinn vasa. Þó menn séu að borga litlar upphæðir fyrir þetta þá er ekki sagt að tónlistarmennirnir myndu fá meira þó þeir selji í búðum.

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 10:32 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Kull wrote:
Þessi pistill er alveg til skammar fyrir smáís og sýnir bara hvernig lið þetta er. Fyrir utan allt málfar og stafsetningu, sem er alger hörmung, þá er þetta allt saman tómt bull. Það hefur ekki verið gerð nein rannsókn á hversu margir borguðu né hve mikið. Radiohead hafa ekki gefið upp neinar tölur mér að vitandi þannig að þetta er allt byggt á einhverjum tölum útí loftið.

Síðan er það alveg vitað mál að tónlistarmenn fá bara lítið brot af kostnaði plötu í sinn vasa. Þó menn séu að borga litlar upphæðir fyrir þetta þá er ekki sagt að tónlistarmennirnir myndu fá meira þó þeir selji í búðum.


Það var reyndar doktorsnemi í Hagfræði í heimsókn hjá mér fyrir tveimur vikum síðan sem vitnaði einmitt í þessa tilraun Radiohead og einhverja rannsókn sem hann hafði lesið með niðurstöðum. Samkvæmt þeim niðurstöðum var þetta hinsvegar vel heppnað að mati Radiohead.

Held það gleymist hér að taka tillit til allra milliliðanna sem fá pening í vasann þegar tónlist er gefin út á CD - það þarf ekki næstum því eins mikinn pening fyrir hvert lag eða albúm þegar peningurinn fer nánast beint í vasa Radiohead.

Þessi texti er að öðru leiti algjörlega hneykslanlegur og ótrúlegt að samtök láti svona fara frá sér - skandall bara!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 10:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Smáís wrote:
Eru aðdáendur Radiohead nýskari en aðrir neytendur?

Þegar hljómsveitin Radiohead tilkynnti að þeir mundu bjóða aðdáendum sínum nýjustu plötuna sína, In Rainbows, til stafræns niðurhals fyrir eins mikið eða lítið eins og þeir vildu borga, var það talið merki um nýja tíma fyrir tónlistariðnaðinn.



Núna loksins gætu þjófarnir á netinu, og aðrir, sannað að þeir væru sko alveg til í að borga fyrir hluti og að þetta væri sko framtíðin. Já, ungir menn sem höfðu setið árum saman, fyrir framan tölvuna, bólugrafnir með bremsufar í nærbuxunum heima hjá foreldrum sínum, sannfærðir um að þeir væru Hrói Höttur nútímans höfðu loksins fengið tækifæri til að sanna að þeir vildu sko alveg borga fyrir hluti og það sem þeir höfðu talað um árum saman á spjallrásum, væri rétt!!



Auðvita var þetta að sjálfsögðu kolrangt hjá þeim enda hafa allar rannsóknir sýnt að þetta er alls ekki spurning um verð. Það er eingöngu afsökun sem þjófar nota til að réttlæta þjófnaðinn. “ Ef þetta væri ekki svona dýrt þá mundi ég kaupa þetta”. Þetta heyrir maður stöðugt, en sannleikurinn er sá að sumir vilja einfaldlega bara stela þessu og helst ekki borga krónu.



Rannsókn á sölu nýjustu plötu Radiohead leiddi í ljós að aðeins um 38% þeirra sem sóttu verkið voru til í að borga einhverja upphæð. 2/3 þeirra sem borguðu voru bara til í um 50 krónur og er það fyrir heila plötu. Af þeim sem borguðu hærri upphæðir var meðaltalið samt bara um 320 krónur sem er langt undir verði geisladisks eða plötu af iTunes.



...að láta sér detta það í hug að segja þetta??? :shock: :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 10:52 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
Þessi kauði ætti að fá sér nöldrarablogg á mbl.is og vera svalir eins og hinir nöldurseggirnir


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 10:54 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Jesús, þessi lesning er sjokkerandi :shock:

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 11:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Þessi "könnun" hlýtur þá að ná einungis til þeirra sem náðu í plötuna í gegnum síðuna hjá þeim, þeir geta ekki gert ráð fyrir því að allir sem sóttu plötuna hafi vitað af þessu heldur margir hafi bara sótt plötuna á aðra miðla eins og þeir gera venjulega.

Það er löngu- og margsannað að margir hafi fengið sitt fyrsta breik á tölvuleikja-, kvikmynda-, og tónlistarmarkaðnum með því að "leka" á einhverja fría miðla, það er samt ekkert hægt að alhæfa.

Það er alltaf einhver hluti af kökunni sem stelur þessu "afþvíbara" og fílar ekki tónlistina, myndina eða leikinn.

Deiliforritin sem dæmi eru sett upp þannig að ef þú ert með vinsæla hluti sem fólki langar í þá hangirðu inni, hafirðu ekkert sem einhver vill þá nærðu ekki upp því magni sem krafist er að fólk sendi og þá ertu rekinn út.

Þessi grein er hins vegar hræðileg, fyrir utan það hvað biturðin skín í gegn hjá þeim sem skrifar hana.. ef hann samdi þetta þá sjálfur. Ef hann er að þýða þetta upp úr öðrum vitleysingi þá hefði hann átt að geta heimildar því þessi einstaklingur sem skrifaði þetta lítur út fyrir að vera hágrátandi.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 11:15 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45
Posts: 5844
svo reikna þeir að hvert niðurhal á hlut sé tap...
efast um að þeir sem séu dl 4 myndum á dag ætli að kaupa þær allar :/

*EDIT*

Svo eru þeir gáttaðir af hverju allir ´hati smáis :?


Last edited by maxel on Fri 16. Nov 2007 11:21, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 11:17 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Geirinn wrote:
Þessi "könnun" hlýtur þá að ná einungis til þeirra sem náðu í plötuna í gegnum síðuna hjá þeim, þeir geta ekki gert ráð fyrir því að allir sem sóttu plötuna hafi vitað af þessu heldur margir hafi bara sótt plötuna á aðra miðla eins og þeir gera venjulega.

Það er löngu- og margsannað að margir hafi fengið sitt fyrsta breik á tölvuleikja-, kvikmynda-, og tónlistarmarkaðnum með því að "leka" á einhverja fría miðla, það er samt ekkert hægt að alhæfa.

Það er alltaf einhver hluti af kökunni sem stelur þessu "afþvíbara" og fílar ekki tónlistina, myndina eða leikinn.

Deiliforritin sem dæmi eru sett upp þannig að ef þú ert með vinsæla hluti sem fólki langar í þá hangirðu inni, hafirðu ekkert sem einhver vill þá nærðu ekki upp því magni sem krafist er að fólk sendi og þá ertu rekinn út.

Þessi grein er hins vegar hræðileg, fyrir utan það hvað biturðin skín í gegn hjá þeim sem skrifar hana.. ef hann samdi þetta þá sjálfur. Ef hann er að þýða þetta upp úr öðrum vitleysingi þá hefði hann átt að geta heimildar því þessi einstaklingur sem skrifaði þetta lítur út fyrir að vera hágrátandi.



Svo má ekki gleyma að Radiohead fær ALLA peningana sem kemur útúr þessu - ef einhver "vill" bara borga 50kr fyrir plötuna þá fá þeir ALLAR 50krónurnar.

Svo segir hann að aðeins 38% af þeim sem væru til í að borga einhverja upphæð......... meina........38% af 10 milljónum? Vantar allar tölur.... prósetnur segja ekki neitt í sambandi við þetta :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 11:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Einnig kemur fram að thepiratebay have grætt einhverja peninga,

Ekki veit ég að neinn borgi neitt til að sækja nokkurn skapaðann hlut þarna, þannig að gróðinn ef hann er svo hár er að koma frá auglýsendum
og það er auðvitað fullkomlega löglegt.

Auðvitað eru það þeir sem "tapa" fyrirtækin sem framleiða hljómsveitir og myndir, sömu fyrirtækin sem eru í eign hluthafa sem krefjast max hagnaðs og það endar í því að almennir starfsmenn þessa fyrirtækja fá minna og verri réttindi, var það sjálft ekki í fréttunum um daginn?

Er ekki líka rétt að itunes síðan hefur aukið laga sölu?
Með því að gera lögin aðgengileg af netinu,
Ég held að fyrirtækin sem búa til þætti og myndir þurfi að fara gera það sama.
EDIT. Hafa ekki klámssíðurnar verið að rukka inná þær til að leyfa niðurhal síðan HTML var fundið upp? Og þeir eru mjög ánægðir?

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 11:45 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
http://www.nme.com/news/radiohead/32393

Quote:
"In response to purely speculative figures announced in the press regarding the number of downloads and the price paid for the album, the group's representatives would like to remind people that, as the album could only be downloaded from the band's website, it is impossible for outside organisations to have accurate figures on sales," they explained.

The statement added: "However, they can confirm that the figures quoted by the company comScore Inc are wholly inaccurate and in no way reflect definitive market intelligence or, indeed, the true success of the project."

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 11:48 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Þetta er líka áhugavert

http://www.rlslog.net/piracy-isnt-that- ... y-know-it/

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 11:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
gstuning wrote:
Er ekki líka rétt að itunes síðan hefur aukið laga sölu?
Með því að gera lögin aðgengileg af netinu,
Ég held að fyrirtækin sem búa til þætti og myndir þurfi að fara gera það sama.


Þetta er nákvæmlega málið.

Tæknin er að knýja fram breytingar og bransinn verður að fylgja á
eftir.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 11:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Vandamálið er bein on screen markaðsetning í sjónvarpinu,

þ.e inná milli auglýsing, þar eru tekjurnar fyrir stöðvarnar sem eiga þá aura til að kaupa myndirnar frá framleiðendunum.

ef þættir eiga að halda áfram að vera góðir þarf bara að fara koma
auglýsingum í þá af meira afli, við búum auðvitað í markaðsetningar heimi
og hann algerlega gengur á markaðssetningu og sölu vara út frá því.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Nov 2007 12:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
gstuning wrote:
Vandamálið er bein on screen markaðsetning í sjónvarpinu,

þ.e inná milli auglýsing, þar eru tekjurnar fyrir stöðvarnar sem eiga þá aura til að kaupa myndirnar frá framleiðendunum.

ef þættir eiga að halda áfram að vera góðir þarf bara að fara koma
auglýsingum í þá af meira afli, við búum auðvitað í markaðsetningar heimi
og hann algerlega gengur á markaðssetningu og sölu vara út frá því.


Eða ef þú horfir aðeins lengra fram á veginn.... þá verða kannski
engar "sjónvarpsstöðvar" eins og við þekkjum þær heldur "netstöðvar"-
þú downloadar/pantar bara það efni sem þú vilt á netinu og
framleiðandinn fær borgað beint frá þessum "netstöðvum".

Kannski útópía en mikið andskoti væri gott að geta kippt hagsmunum
auglýsenda út úr dagskrárhönnun / dagskrárgerð.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 24 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group