http://smais.is/template25024.asp?pagei ... ewsid=9025
Kull wrote:Þessi pistill er alveg til skammar fyrir smáís og sýnir bara hvernig lið þetta er. Fyrir utan allt málfar og stafsetningu, sem er alger hörmung, þá er þetta allt saman tómt bull. Það hefur ekki verið gerð nein rannsókn á hversu margir borguðu né hve mikið. Radiohead hafa ekki gefið upp neinar tölur mér að vitandi þannig að þetta er allt byggt á einhverjum tölum útí loftið.
Síðan er það alveg vitað mál að tónlistarmenn fá bara lítið brot af kostnaði plötu í sinn vasa. Þó menn séu að borga litlar upphæðir fyrir þetta þá er ekki sagt að tónlistarmennirnir myndu fá meira þó þeir selji í búðum.
Smáís wrote:Eru aðdáendur Radiohead nýskari en aðrir neytendur?
Þegar hljómsveitin Radiohead tilkynnti að þeir mundu bjóða aðdáendum sínum nýjustu plötuna sína, In Rainbows, til stafræns niðurhals fyrir eins mikið eða lítið eins og þeir vildu borga, var það talið merki um nýja tíma fyrir tónlistariðnaðinn.
Núna loksins gætu þjófarnir á netinu, og aðrir, sannað að þeir væru sko alveg til í að borga fyrir hluti og að þetta væri sko framtíðin. Já, ungir menn sem höfðu setið árum saman, fyrir framan tölvuna, bólugrafnir með bremsufar í nærbuxunum heima hjá foreldrum sínum, sannfærðir um að þeir væru Hrói Höttur nútímans höfðu loksins fengið tækifæri til að sanna að þeir vildu sko alveg borga fyrir hluti og það sem þeir höfðu talað um árum saman á spjallrásum, væri rétt!!
Auðvita var þetta að sjálfsögðu kolrangt hjá þeim enda hafa allar rannsóknir sýnt að þetta er alls ekki spurning um verð. Það er eingöngu afsökun sem þjófar nota til að réttlæta þjófnaðinn. “ Ef þetta væri ekki svona dýrt þá mundi ég kaupa þetta”. Þetta heyrir maður stöðugt, en sannleikurinn er sá að sumir vilja einfaldlega bara stela þessu og helst ekki borga krónu.
Rannsókn á sölu nýjustu plötu Radiohead leiddi í ljós að aðeins um 38% þeirra sem sóttu verkið voru til í að borga einhverja upphæð. 2/3 þeirra sem borguðu voru bara til í um 50 krónur og er það fyrir heila plötu. Af þeim sem borguðu hærri upphæðir var meðaltalið samt bara um 320 krónur sem er langt undir verði geisladisks eða plötu af iTunes.
Geirinn wrote:Þessi "könnun" hlýtur þá að ná einungis til þeirra sem náðu í plötuna í gegnum síðuna hjá þeim, þeir geta ekki gert ráð fyrir því að allir sem sóttu plötuna hafi vitað af þessu heldur margir hafi bara sótt plötuna á aðra miðla eins og þeir gera venjulega.
Það er löngu- og margsannað að margir hafi fengið sitt fyrsta breik á tölvuleikja-, kvikmynda-, og tónlistarmarkaðnum með því að "leka" á einhverja fría miðla, það er samt ekkert hægt að alhæfa.
Það er alltaf einhver hluti af kökunni sem stelur þessu "afþvíbara" og fílar ekki tónlistina, myndina eða leikinn.
Deiliforritin sem dæmi eru sett upp þannig að ef þú ert með vinsæla hluti sem fólki langar í þá hangirðu inni, hafirðu ekkert sem einhver vill þá nærðu ekki upp því magni sem krafist er að fólk sendi og þá ertu rekinn út.
Þessi grein er hins vegar hræðileg, fyrir utan það hvað biturðin skín í gegn hjá þeim sem skrifar hana.. ef hann samdi þetta þá sjálfur. Ef hann er að þýða þetta upp úr öðrum vitleysingi þá hefði hann átt að geta heimildar því þessi einstaklingur sem skrifaði þetta lítur út fyrir að vera hágrátandi.

"In response to purely speculative figures announced in the press regarding the number of downloads and the price paid for the album, the group's representatives would like to remind people that, as the album could only be downloaded from the band's website, it is impossible for outside organisations to have accurate figures on sales," they explained.
The statement added: "However, they can confirm that the figures quoted by the company comScore Inc are wholly inaccurate and in no way reflect definitive market intelligence or, indeed, the true success of the project."

gstuning wrote: Er ekki líka rétt að itunes síðan hefur aukið laga sölu?
Með því að gera lögin aðgengileg af netinu,
Ég held að fyrirtækin sem búa til þætti og myndir þurfi að fara gera það sama.

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

gstuning wrote:Vandamálið er bein on screen markaðsetning í sjónvarpinu,
þ.e inná milli auglýsing, þar eru tekjurnar fyrir stöðvarnar sem eiga þá aura til að kaupa myndirnar frá framleiðendunum.
ef þættir eiga að halda áfram að vera góðir þarf bara að fara koma
auglýsingum í þá af meira afli, við búum auðvitað í markaðsetningar heimi
og hann algerlega gengur á markaðssetningu og sölu vara út frá því.

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
Users browsing this forum: No registered users and 74 guests