Bjarki er náttla bara nafn á góða menn
þó það þýði nú allt annað en maður,
litli björn.

Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
bimmer wrote:Ég myndi vilja sjá einhverja statistík yfir hvernig tíðni hinna ýmsu
glæpa dreifist yfir hin mismunandi þjóðerni sem hér búa
(íslendinga þám).
Alpina wrote:Þó að misyndis menn leynist í þeim aragrúa af þessu fólki er óþarfi að hengja bakara fyrir smið,, margt ágætis fólk ,,HÖRKU,, duglegt og manneskjur eins og við,,
umfjöllunin verður afar neikvæð þegar þjóðerni er blandað inn í tilfinningar með slíkum hætti,,
Í ljósi þess að um skelfilegan glæp er að ræða ,, fá þessir menn vonandi makleg málagjöld,,
eitt ætti fólk að taka til hliðsjónar,, það er erlendu vinnuafli að þakka að uppgangurinn í þjóðfélaginu er eins og raun ber vitni

Bjarki wrote:Þessi þróun er mjög varhugaverð, ég tel það afar mikilvægt að bakgrunnur þeirra sem sækja um atvinnu-/landvistarleyfi á Íslandi sé skoðaður til hlítar áður en þeir fá að setjast hér að.
Þessir ógæfumenn koma ekki til með að skila miklum arði inn í þjóðarbúið í bráð.


siggir wrote:Það er svoldið hættulegt að tala um alla Litháa sem glæpamenn. Þá getum við alveg eins sagt að allir sem eru með sítt hár séu *kjáni* og allir smiðir séu með frestunaráráttu.
Það er langmikilvægast að reyna að stýra því hverjir koma hingað. Það þarf að skoða bakgrunn þeirra sem ætla að koma til að vera hér í einhvern tíma; þeir sem hafa verið dæmdir fyrir alvarleg afbrot geta bara nagað þröskuldinn.
Chrome segir að það eigi að kenna öllu þessu fólki íslensku áður en það kemur. Eigum við þá líka að kenna öllum sem koma hingað til að smíða stíflu í hálft ár og fara síðan heim til sín aftur íslensku? Mér finnst ekki meika sens að ætla að kenna öllu innfluttu vinnuafli málið. Það kostar peninga og það eru peningar útum gluggan í raun og veru, að kenna einhverjum sem á ekki eftir að nota þá menntun neitt.
Svo finnst mér að við ættum að endurskoða refsingar fyrir útlendinga. Litháa sem kemur með dóp til Íslands er alveg sama þótt hann sé tekinn hérna því fangelsin okkar eru eins og þriggja stjörnu hótel fyrir þeim. Koma dópi til Íslands = Big money. Vera tekinn með dóp á leiðinni til Íslands. Frítt fæði og húsnæði í hálft ár. Win-win. Það þarf að koma á fangaskiptasamningum við Litháen svo við getum látið þessa rudda rotna í "alvöru" fangelsi.
Ég sé ekkert að því að erlent fólk komi hingað til að skapa sér líf, en mér finnst að við ættum að koma upp kerfi einsog t.d. í Danmörku og láta fólk læra allavega góðan grunn af Íslenskunni áður en atvinnuleyfið er veitt! Ef svo fólk vill ekki læra málið og aðlaga sig að þjóðfélaginu þá á það bara hreinlega voðalega lítið erindi hingað finnst mér!
Users browsing this forum: No registered users and 19 guests