Mér finnst endilega að ég hafi lesið í bresku blaði að ef það er ekki skilti til að aðvara við myndavél þá sé myndin í raun ólögleg og ógild, veit ekki alveg af hverju en gæti verið vegna persónuverndar eða álíka

Er ekki skilda að láta vita ef það eru öryggismyndavélar, eins og t.d. í búðum og þannig? Það virkar líka fyrirbyggjandi.
Maður hefði haldið að tilgangurinn með þessum vélum ætti að vera að koma í veg fyrir hraðakstur, semsagt fyrirbyggjandi sem þessi skilti ættu þá að styðja enn frekar. Myndavélar ættu að vera þar sem eru hættulegir/þekktir slysstaðir og fólk ætti að vera búið að hægja á sér
fyrir þá, ekki 2 vikum seinna þegar það fær sekt í pósti!
Ef það er skilti sem varar við myndavél þá er líklegra að fólk hægi á sér fyrir þennan hættulega stað sem maður hefði haldið að sé helsti tilgangurinn.
En það virðist skipta meira máli að fá pening með sektum.
Ég er virkilega á móti þessu öllu saman nema get alveg sætt mig við þetta t.d. á mjög hættulegum gatnamótum eins og kringlumýrarbraut/miklabraut. Ætti reyndar náttúrulega að vera LÖNGU búið að gera þau mislæg, kostnaðurinn væri eflaust löngu kominn til baka í formi færri tjóna á fólki og farartækjum.