Núna um 11 leytið í kvöld var ég inni í herbergi hjá mér þegar ég heyri ískur í dekkjum og einhverja dynki. Fer út að glugga og sé þá hvítan E39 með afturendann upp í hlaðna grjótgarðinn við planið hjá Byko.
Það var engin umferð en einhvern veginn tókst ökumanninum að missa stjórn í bílnum í þessari umræddu beygju sem mér finnst svolítið skrítið
Ég veit ekki hvort hann hafi gefið honum svona allhressilega inn eða bara verið að tala í símann eða e-h.
Veit ekki nákvæmlegu hversu mikið hann skemmdist en allavega þá skóflaði hann framstuðaranum af og bíllinn var dreginn í burtu.


