Eurotrip 2007, rúmlega 2000hp í fjórum bílum...

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Svezel » Tue 05. Jun 2007 10:23

alltaf skemmtilegra að taka rönn með strákunum...ha hmmm :roll: :lol:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby MR.BOOM » Tue 05. Jun 2007 19:36

Hérna eru myndir sem ég tók á SPA.

MLR at SPA 2007

Image

MLR at SPA 2007
Sæmundur Eric.
Lancia Delta HF Integrale Evo I - Saab 900aero - Mazda 323 GLX.

Image
User avatar
MR.BOOM
Getawaybílstjóri
 
Posts: 980
Joined: Sat 22. Feb 2003 15:22
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Tue 05. Jun 2007 19:39

M3 með túbbó eða supercharger 8)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby bimmer » Wed 06. Jun 2007 13:41

bimmer wrote:Report frá Sæma:

Kæri jóli.

Þá erum við komnir í höfuðstöðvar Bæheims, Munchen sjálfa. Renndum í hlað fyrir klukkutíma eftir RUN dauðans frá Tauber motorsport norður af Nurnberg og alla leið hingað.

Dagurinn byrjaði rólega, sofið til að verða tíu og pakkað saman á Ringhaus. Brakandi sól og blíða þegar Frank og þessi viðkunnalegi staður og fólk var kvatt. Fyrsta stopp var til að þrífa bílana. Það var gert á kunnuglegri bensínstöð, Óskar og Sveinbjörn kannast við hana frá því í fyrra. Eftir að hafa gefið háþrýstidælunni jafngildi kílós í klinki var haldið af stað á glansandi ökutækjunum. Frekar stíf umferð alla leið niður til Tauber manna, meðalhraði um 100. Þar var svo hitt á Sebastian sem ætlar að snurfusa RNGTOY fyrir næstu útferð Þórðar. Hann hefur sem sagt 2 vikur til að græja og gera!

Vikapiltar Sebastian skiptu um bremsuklossa hjá Þórði á ofur-þrumunni, en afturklossarnir áttu eftir rúman millimeter svo ekki var seinna vænna. Næstur upp á lyftu var svo herra Imolarot, en bremsurnar á honum voru alveg að syngja sitt síðasta. Fyrir átökin á SPA var pantað nýtt diskasett sem beið okkar daginn eftir. Bremsurnar héldu merkilega vel á SPA, þótt greitt væri ekið og vel tekið á bílnum. Spólvörnin var höfð af og undirstýring gerði eilítið vart við sig sökum þungans, en aldrei var hann nálægt því að losa afturendan í botngjöf út úr beygjum. Hann þurfti að passa í niðurgírun fyrir beygjur, því það er erfitt að rev-matcha og bremsa í leiðinni. Því var það helst eftir 4ða gír þegar skipt var í 3ja að hætta var á að missa rassinn út í bremsun rétt fyrir beygjur.

En þrátt fyrir að stíga þær svo til botns þegar þurfti fannst aldrei hið margumtalaða “fade” semt talað er um í original bremsunum. Ég tók að vísu aldrei nema svona 8 hringi í einu, tók svo einn hægan hring til að kæla bremsurnar. Þrátt fyrir það mátti heyra brak og bresti í diskunum eftir að staðnæmst var í pittinum.

Nýjir diskar og klossar allan hringinn og áfram var haldið frá Tauber mönnum. Beint út á Autobahn og allt staðið flatt niður í átt til Munchen. Umferðin var að grisjast eftir daginn svo mögulegt var að taka nokkuð gott run niður eftir. Öllu munar líka um að alla leið eru 3 akreinar, ekki 2 eins og oft er á köflum eða alla leið á öðrum leiðum. Meðalhraðinn á leiðinni hefur örugglega verið yfir 200, 220 þegar rólegt var og alveg farið upp í 310 á mæli!!! Já ofur-þruman lét ekki að sér hæða og sýndi Carrera 4S hvað BMW getur gert. Rauði er ekki alveg eins fljótur upp og náði ekki nema 285 þegar slá þurfti af. Ekki mikil hröðun í gangi þá, en gaman væri að sjá hvað hann getur ef pláss leyfir. Þetta má sjá á vídeóinu sem við tókum. Ekki slæmt að blasta niður Autobahn í sól og sumaryl í samfloti niðureftir til Munchen. Þegar þangað var komið tók BMW á móti okkur í kvöldsólinni og bauð okkur velkomna.

Nú er það bara út að essen. Sjáum til með Bratwurst, en Pils verður það definately. Á morgun er það svo guided tour um BMW verksmiðjuna þar skoðað verður assembly línan fyrir vélar, samsetningu á bílum og ýmislegt annað gotterí. Þetta verður “private guided tour for you guys from Iceland only” eins og gaurinn segir sjálfur. Jæja, farnir út að borða, áf vídersehen fon gjörmanní.


Hér eru nokkur video frá þessu þrælskemmtilega rönni til Munchen sem Sæmi vitnar í hér að ofan.

Hér er tekið framúr Hr. Imolarot:
http://www.rngtoy.com/thordur/almennt/Eurotour2007/Tekinn.wmv

Hér er svo rönn við Porsche þar sem ONNO er með brotið plenum cover
og er því að fúska á háum snúning eins og heyrist. Vissum reyndar ekki
á þessum tíma að þetta væri plenum coverið - héldum að loftflæðiskynjararnir
væru orðnir eitthvað leiðinlegir eftir að hafa blotnað á Spa:
http://www.rngtoy.com/thordur/almennt/Eurotour2007/Porsche.wmv

Hér er svo þegar við komum til Munchen - ekki slæmt að sjá roundelið taka
á móti okkur :)
http://www.rngtoy.com/thordur/almennt/Eurotour2007/Munchen.wmv
Last edited by bimmer on Sat 16. Mar 2024 15:57, edited 2 times in total.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby ///M » Wed 06. Jun 2007 13:52

fóruð þið til alpina,rüf og hamann ?
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby bimmer » Wed 06. Jun 2007 13:56

///M wrote:fóruð þið til alpina,rüf og hamann ?


Sökum ótímabærs flótta Hr. Alpina og Hr. Múr þá varð minna um
slíkar heimsóknir en planað var. Fórum þó til Hamann - myndir fljótlega :twisted:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Svezel » Wed 06. Jun 2007 14:01

pfff wannbe's :lol:

manni langar BARA aftur út við að sjá þessi video, ég og Óskar svekktum einmitt einn pappakassa á nýjum carrera 4s á leiðinni til Nürburgring í fyrra 8)
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby ///M » Wed 06. Jun 2007 14:17

bimmer wrote:
///M wrote:fóruð þið til alpina,rüf og hamann ?


Sökum ótímabærs flótta Hr. Alpina og Hr. Múr þá varð minna um
slíkar heimsóknir en planað var. Fórum þó til Hamann - myndir fljótlega :twisted:


gastu þá allavegana ekki bætt þér það upp og verslað meira carbon hjá hamann ? :wink:
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby bimmer » Wed 06. Jun 2007 14:25

///M wrote:
bimmer wrote:
///M wrote:fóruð þið til alpina,rüf og hamann ?


Sökum ótímabærs flótta Hr. Alpina og Hr. Múr þá varð minna um
slíkar heimsóknir en planað var. Fórum þó til Hamann - myndir fljótlega :twisted:


gastu þá allavegana ekki bætt þér það upp og verslað meira carbon hjá hamann ? :wink:


Nei ég er ekki kominn í þá deild að spreða miklum $$$ hjá Hamann.

Fann mér eitthvað sem ég hafði efni á - miðjur í Hamann ganginn :)
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby zazou » Wed 06. Jun 2007 15:17

Við erum að týna Sæma

:lol:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby fart » Wed 06. Jun 2007 15:23

Hvernig í fjáranum bortnar plenium coverið???
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bimmer » Wed 06. Jun 2007 15:26

fart wrote:Hvernig í fjáranum bortnar plenium coverið???


Fór óvart í 2. gír úr 5. í stað 4. Fattaði það um leið og það var að gerast
og gat kúplað frá áður en allt fór í mauk. Hins vegar náði mótorinn að
snúast nógu mikið til að það fór slatti af boosti inn og lokið gaf sig.

Blowoff ventlarnir eru ekki nógu stórir til að geta ráðið við þetta
scenario, þe. mikið boost og throttle bodyin lokuð.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Arnarf » Wed 06. Jun 2007 19:17

Hahaha snilld heyrði ég rétt í porsche myndbandinu?

"Erum við búnir að týna sæma?" í lokinn

:)
User avatar
Arnarf
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 827
Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48

Postby bimmer » Wed 06. Jun 2007 19:28

Daginn eftir að við komum til Munchen var sofið út og svo farið í
skoðunarferð um verksmiðju BMW.

Oliver og félagar voru svo miður sín yfir því að gírskiptingin bilaði í hvíta
að þeir ákváðu að redda okkur sárabót - prívat skoðunartúr um verksmiðjuna.
Góða sárabótin!!!!! :)

Vorum mættir um kl. 11 og fékk undirritaður nett flog þegar þessi kerra
var spottuð fyrir framan verksmiðjuna:
Image

En gleðin var fljót að dvína því að þetta var ekki ekta Koenig Competition
heldur kit skrípi byggt á Fiero og sjálfskipt þar að auki!!!
Image

Hörmung að sjá þetta púst!!! :roll:

Drifum okkur síðan að inngangi 5 þar sem við hittum Oliver og félaga hans.
Við vorum allir skveraðir í sloppa og fengum visitor passa (þurftum í
staðinn að skilja eftir skilríki). Ekki mátti hafa myndavélar með sem er
mjög miður!!!

Byrjuðum á því að labba framhjá málmsteypunni þar sem vélarblokkir eru
steyptar og voru þvílíkar stæður þar fyrir utan af blokkum.

Fórum síðan í aðal verksmiðjulínuna þarna sem framleiðir nýja þristinn.
Við fengum að fylgja framleiðslulínunni alveg frá tómri skelinni að fullkláruðum
bíl. Þetta var verulega áhugavert að sjá hvernig bíllinn tók smám saman
á sig mynd. Sæmi hefur nú marga fjöruna sopið í BMW rifi/samsetningu
og hann saup hveljur þegar mælaborð var sett í á 5 sekúndum og
sóllúgur á innan við 10. Einnig var töff að sjá alla driflínunna (vél, kassi,
drif, etc) fara undir í einu skrefi.

Við vorum þarna 3 gestir með 3 fylgdarmenn frá BMW, Oliver, vin hans og
svo einhvern gúru sem allt vissi. Bara góð þjónusta :) Fengum að skoða
mun meira en venjulegi túristarúnturinn. Mættum einum slíkum en þar
voru ca. 30 manns með einn guide.

Anyways, eftir að þristurinn var tilbúinn til að vera sendur frá verksmiðju
þá fórum við og skoðuðum véladeildina. GÓÐAN DAGINN!!!!!!!!!!

Þarna mátti sjá allskonar flott gums, 6, 8, 10 og 12 cylindra vélar, standard
og ///M. Vorum alveg til í að taka eins og einn vagn fullan af nýjum
///M mótorum og lauma þeim út :naughty:

Sáum líka prófunarbekki og svo vélar sem höfðu alveg fengið að
finna fyrir því, t.d. nýja V8 M3 vél í mauki eftir að stimpilstöng yfirgaf
samkvæmið út um blokkina :shock:
Þetta var mjög áhugaverður rúntur.

Eftir þetta var túrinn búinn og við kvöddum Oliver og félaga og fengum
skilríkin okkar aftur.

Það verður að skrifast á okkur það klúður að hafa ekki smellt neinum
myndum af okkur í sloppunum eða við verksmiðjuna :(

Nú var haldið á BMW safnið sem er þarna rétt hjá. Á leiðinni eru
höfuðstöðvarnar:
Image

Image

Image

Hér má sjá nýja safnið bakvið okkur Sæma.
Image

Það safn er hins vegar ekki tilbúið og er því safnið í tímabundnu "húsnæði"
sem er jú TJALD!!!
Image

Hér má svo sjá nokkra af bílunum sem við skoðuðum á safninu:
Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image


Restin af deginum fór bara í afslöppun og fórum síðan að borða á einum
slappasta Indverska stað sem sögur fara af :)


PS: Allar myndir eru teknar af Mr. Boom en photoshoppaðar af undirrituðum.
Last edited by bimmer on Sat 16. Mar 2024 16:01, edited 1 time in total.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby slapi » Wed 06. Jun 2007 21:55

Image
Z1 eru svo töff bílar og hurðinn fer oní sílsann sem er bara rugl.
Skemmtileg lesning
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 19 guests