
bimmer wrote:Report frá Sæma:
Kæri jóli.
Þá erum við komnir í höfuðstöðvar Bæheims, Munchen sjálfa. Renndum í hlað fyrir klukkutíma eftir RUN dauðans frá Tauber motorsport norður af Nurnberg og alla leið hingað.
Dagurinn byrjaði rólega, sofið til að verða tíu og pakkað saman á Ringhaus. Brakandi sól og blíða þegar Frank og þessi viðkunnalegi staður og fólk var kvatt. Fyrsta stopp var til að þrífa bílana. Það var gert á kunnuglegri bensínstöð, Óskar og Sveinbjörn kannast við hana frá því í fyrra. Eftir að hafa gefið háþrýstidælunni jafngildi kílós í klinki var haldið af stað á glansandi ökutækjunum. Frekar stíf umferð alla leið niður til Tauber manna, meðalhraði um 100. Þar var svo hitt á Sebastian sem ætlar að snurfusa RNGTOY fyrir næstu útferð Þórðar. Hann hefur sem sagt 2 vikur til að græja og gera!
Vikapiltar Sebastian skiptu um bremsuklossa hjá Þórði á ofur-þrumunni, en afturklossarnir áttu eftir rúman millimeter svo ekki var seinna vænna. Næstur upp á lyftu var svo herra Imolarot, en bremsurnar á honum voru alveg að syngja sitt síðasta. Fyrir átökin á SPA var pantað nýtt diskasett sem beið okkar daginn eftir. Bremsurnar héldu merkilega vel á SPA, þótt greitt væri ekið og vel tekið á bílnum. Spólvörnin var höfð af og undirstýring gerði eilítið vart við sig sökum þungans, en aldrei var hann nálægt því að losa afturendan í botngjöf út úr beygjum. Hann þurfti að passa í niðurgírun fyrir beygjur, því það er erfitt að rev-matcha og bremsa í leiðinni. Því var það helst eftir 4ða gír þegar skipt var í 3ja að hætta var á að missa rassinn út í bremsun rétt fyrir beygjur.
En þrátt fyrir að stíga þær svo til botns þegar þurfti fannst aldrei hið margumtalaða “fade” semt talað er um í original bremsunum. Ég tók að vísu aldrei nema svona 8 hringi í einu, tók svo einn hægan hring til að kæla bremsurnar. Þrátt fyrir það mátti heyra brak og bresti í diskunum eftir að staðnæmst var í pittinum.
Nýjir diskar og klossar allan hringinn og áfram var haldið frá Tauber mönnum. Beint út á Autobahn og allt staðið flatt niður í átt til Munchen. Umferðin var að grisjast eftir daginn svo mögulegt var að taka nokkuð gott run niður eftir. Öllu munar líka um að alla leið eru 3 akreinar, ekki 2 eins og oft er á köflum eða alla leið á öðrum leiðum. Meðalhraðinn á leiðinni hefur örugglega verið yfir 200, 220 þegar rólegt var og alveg farið upp í 310 á mæli!!! Já ofur-þruman lét ekki að sér hæða og sýndi Carrera 4S hvað BMW getur gert. Rauði er ekki alveg eins fljótur upp og náði ekki nema 285 þegar slá þurfti af. Ekki mikil hröðun í gangi þá, en gaman væri að sjá hvað hann getur ef pláss leyfir. Þetta má sjá á vídeóinu sem við tókum. Ekki slæmt að blasta niður Autobahn í sól og sumaryl í samfloti niðureftir til Munchen. Þegar þangað var komið tók BMW á móti okkur í kvöldsólinni og bauð okkur velkomna.
Nú er það bara út að essen. Sjáum til með Bratwurst, en Pils verður það definately. Á morgun er það svo guided tour um BMW verksmiðjuna þar skoðað verður assembly línan fyrir vélar, samsetningu á bílum og ýmislegt annað gotterí. Þetta verður “private guided tour for you guys from Iceland only” eins og gaurinn segir sjálfur. Jæja, farnir út að borða, áf vídersehen fon gjörmanní.

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
///M wrote:fóruð þið til alpina,rüf og hamann ?

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
bimmer wrote:///M wrote:fóruð þið til alpina,rüf og hamann ?
Sökum ótímabærs flótta Hr. Alpina og Hr. Múr þá varð minna um
slíkar heimsóknir en planað var. Fórum þó til Hamann - myndir fljótlega
///M wrote:bimmer wrote:///M wrote:fóruð þið til alpina,rüf og hamann ?
Sökum ótímabærs flótta Hr. Alpina og Hr. Múr þá varð minna um
slíkar heimsóknir en planað var. Fórum þó til Hamann - myndir fljótlega
gastu þá allavegana ekki bætt þér það upp og verslað meira carbon hjá hamann ?

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
Við erum að týna Sæma
fart wrote:Hvernig í fjáranum bortnar plenium coverið???

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


















Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
Users browsing this forum: No registered users and 17 guests