Það má alltaf treysta meðlimum til að halda þessu á málefnalegu nótunum
Trúarbrögðin eru líka greinilega of mikil að venju, en það er ekkert nýtt
Bara rétt til að sýna hversu hrikalega dýr 130i er nýr vs. R32 þá kostar 4urra dyra R32 ca. 34.000.- euro í DE meðan 130i kostar án alls 34.000.-!! M Sport 130i 5 dyra kostar svo án alls aukabúnaðar rúm 37.000.-
Þess ber líka að geta að til að hafa þetta sambærilegt búnaðarlega séð þá er 130i M Sport kominn hátt í 39.000.- með sama búnaði og R32 er með orginal.
Og ég verð hreinlega að segja það að hafandi keyrt báða bíla þónokkuð þá hefur 130i hreinlega ekki það premium að nokkru leyti til að réttlæta þennann verðmun. Einnig er hann alltof stífur eins að mínu mati með Run Flats og menn hafa lagt í mikinn auka kostnað til að laga það.
Að sjálfsögðu er RWD alltaf meira "pure" eða hvernig sem menn vilja formúlera það en það er bara meira í dæminu en svo.
Einnig er 1 series mjög þungur í sölu eins og sjá má á verðhruni á mobile.de sem dæmi, sérstakelga 130i, R32 er enginn hraðsölubíll en aldrei jafn erfiður og 130i.
Hitt er svo annað að væri maður til í að eiga R32 eða 130i til langstíma, það er 5+ ára? En hver á svo sem bíla það lengi??
G