Hlynzi wrote:
Til þess að sjá vél sem toppar þessa þá skulum við taka frænda bílinn, nýjan ofur Benz, sem kom í myndatökur um daginn, nicknamed: silfurörin.
Hann er 650+ hestar, torkar 1010 NM !!!! Og Er V8, man ekkert lítra töluna á græjunni, en Mclaren torkar 650 eða 651nm...
Þú athugar að SLR er með V8 með blower. Dæmigert fyrir Benz að búa líka til sjálfskiptan ofurbíl... Þetta verður ábyggilega mjög fínn bíll, en kemur blóðinu hjá mér ekki á hreyfingu.
Pagani gerir fínan ofurbíl með Benz vél, 7,3l (eða 7,2 man aldrei) AMG V12 sem skilar einhverjum 550 hestum hér um bil. Og sá bíll þjáist ekki af offitu vandamáli, aðeins um 1250 kg. Það er ekki nema um 100 kg meira en McLaren F1 og þegar við tökum verð og þá staðreynd að það er vökvastýri og AC í Pagani Zonda C12S þá er augljóst að það er vel að verki staðið!
Annars finnst mér mjög hæpið að dæma bíla endalaust af tölum og á sömu nótu, þá er það stór misskilningur ef fólk heldur að ég sé að dissa M5 E39. E34 bíllinn bara kveikir meira í mér, hvað sem tölurnar segja.
_________________
Kalli - Mal3
Bow down to
Daihatsu power!
Daihatsu Charade
TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum
