VG stoppaði áfengisfrumvarpið: Steingrímur J. hefnir ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

VG stoppaði áfengisfrumvarpið: Steingrímur J. hefnir ...

Postby pallorri » Mon 19. Mar 2007 16:53

... fyrir bjórinn

Frumvarp til laga sem átti að leyfa sölu á léttum vínum og bjór í matvöruverslunum fékkst ekki afgreitt á Alþingi í gær vegna hótana VG. Á annan tug þingmanna flutti málið, það hafði fengist afgreitt í allsherjarnefnd en Vinstri græn hótuðu málþófi ef frumvarpið kæmist á dagskrá og því fékkst það ekki afgreitt.

Rifjað hefur verið upp síðustu daga að Steingrímur J. Sigfússon, mögulegur forsætisráðherra í landinu eftir tvo mánuði, barðist mjög gegn því að sala á bjór yrði aftur leyfð hér á landi fyrir nokkrum árum. Nú var Steingrímur J. aftur á ferðinni gegn frumvarpi um að leyfa sölu á bjór og léttvínum í matvöruverslunum og hafði að þessu sinni betur.

Hótanir hans báru árangur. Málið fékkst ekki tekið til afgreiðslu. Það fékkst ekki rætt.

Þar með hefur Steingrímur J. hefnt fyrir það að bjórinn var leyfður hér á landi á sínum tíma.

Ef Steingrímur J. getur bannað hluti og komið í veg fyrir afgreiðslu þeirra í stjórnarandstöðu, hvað mun hann þá banna sem forsætisráðherra?

Verður bjórinn þá aftur bannaður?

http://bingi.blog.is/blog/bingi/#entry-150678

Er persónulega ekkert á móti VG og það eru margir hlutir sem þeir gera rétt en á hinn bóginn skil ég ekki svona öfgabull í þeim.
Ég bara næ þessu ekki, hvað er svona að því að selja bjór og léttvín í matvöruverslunum?

Kv, palli
pallorri
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1452
Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27

Postby bjahja » Mon 19. Mar 2007 16:57

Ég varð alveg hneikslaður þegar ég heyrði að Vinstri grænir pulluðu þetta. Það er bara tímaspursmál hvenær þetta fer í gegn og hefði líklega flogið í gegn núna ef Vinstri grænir hefðu ekki verið með stæla :roll:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Bjarkih » Mon 19. Mar 2007 16:57

Þetta er bara ekta sósíalista forræðishyggja. Ég hugsa til þess með hryllingi ef þeir komast til valda. Hvers vegna helduru að Danmörk sé kölluð kúba norðursins?
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby Gunnar Þór » Mon 19. Mar 2007 17:28

Mér var nú ekkert sérstaklega illa við VG - en þetta er alveg gjörsamlega út úr kortinu :evil:
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Postby arnibjorn » Mon 19. Mar 2007 17:36

UNCOOL!
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby adler » Mon 19. Mar 2007 17:59

VG er ekkert annað en mild útgáfa af komúnisma.

Image
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image
User avatar
adler
Getawaybílstjóri
 
Posts: 657
Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18

Postby bebecar » Mon 19. Mar 2007 18:02

Halló :!: :!: :!:

Við hverju búist þið frá flokki sem er leiddur af manninum sem greiddi atkvæði á móti bjórnum, á móti því að leyfa nýjum símafélögum að koma á markaðinn, á móti sölu á Landssímanum, á móti sölu á bönkunum... og svona mætti lengi telja.

Ef þið viljið ekki að einhver hafi vit fyrir ykkur þá er best að kjósa eitthvað annað en vinstri græna. Þeir mega reyndar eiga það að þeir eru samkvæmir sjálfum sér sem er augljós plús þegar kjósa þarf til þings.

Það má líka leggja þetta upp á eftirfarandi hátt: Ég geri ráð fyrir að flestum hér finnist bjór góður, margir eru líklega með síma frá OG Vodafone, nú eða Símanum GSM, enn aðrir eru með myntkörfulán, kúlulán eða fengu lánað hjá einkareknum bönkum fyrir húsnæði sem aldrei hefði verið hægt að kaupa annars. EKKERT af þessu hefði verið leyft með vinstri græna við stjórnvölinn, og sumt af þessu hefði heldur ekki verið leyft með samfylkingu í stjórn, enda að mestu gamalt alþýðubandalagslið sem ræður henni...

Eina alvöru mótvægið við sjálfstæðisflokkinn var gamli alþýðuflokkurinn og hann var hreinlega lagður niður og stofnuð tvö alþýðubandalög í staðinn.

Ég man vel eftir bjórdeginum 1. marz. Ég elska bjór!!! Að einhver stjórnmálamaður vilji meina mér að drekka þennan yndislega mjöð er mér fyrirmunað að skilja. Enn óskiljanlegra er að reyna að átta sig á afhverju hann á að fá að ráða yfir jafn sakleysislegum hlut eins og því hvað ég drekk... en það stoppar svona menn samt ekki í að vilja stjórna manni á allan mögulegan hátt.

Það sést svo aftur núna. Ég hef reyndar grun um að þetta frumvarp hafi verið lymskulegt trikk til að sýna hið rétta andlit VG :D Það tókst allavega.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby bragi1 » Mon 19. Mar 2007 19:06

Ég vinn í Vínbúð svo að eftirfarandi er frekar litað:

Það átti bara að færa bjór og vín undir 22% í búðir. ÁTVR er búin að gefa út að það muni ekki halda úti búðum til að selja bara sterkt vín. Sem þýðir hvað ef þetta færi í gegn? Álaging ÁTVR er í algjöru lágmarki sem þýðir af ef það á að borga sig fyrir búðir að selja áfengi þarf að hækka álagningu. Sem þýðir hvað? Svona gæti ég haldið áfram lengi. Mér þykir persónulega nær að lækka álögur á áfengi og leyfa mér að halda vinnunni :)
BMW 118i
User avatar
bragi1
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 299
Joined: Mon 24. Apr 2006 15:37
Location: Hafnarfjörður

Postby bjahja » Mon 19. Mar 2007 19:14

bragi1 wrote:Ég vinn í Vínbúð svo að eftirfarandi er frekar litað:

Það er rétt hjá þér, einnokun ownar samkeppni :roll:

En það er rétt hjá bebe, þetta minnir mjög á bjórbannið.
Sumir héldu að Íslendingar yrði ALLIR alkahólistar ef bjór yrði leyfður og núna halda þessi "sumir" að allir verða alkahólistar ef það verður hægt að kaupa þá út í búð.
Þetta mál á líka eftir að enda eins, þetta verður leyft og það verða ekkert fleirri alkahólistar á íslandi
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby bebecar » Mon 19. Mar 2007 19:15

bragi1 wrote:Ég vinn í Vínbúð svo að eftirfarandi er frekar litað:

Það átti bara að færa bjór og vín undir 22% í búðir. ÁTVR er búin að gefa út að það muni ekki halda úti búðum til að selja bara sterkt vín. Sem þýðir hvað ef þetta færi í gegn? Álaging ÁTVR er í algjöru lágmarki sem þýðir af ef það á að borga sig fyrir búðir að selja áfengi þarf að hækka álagningu. Sem þýðir hvað? Svona gæti ég haldið áfram lengi. Mér þykir persónulega nær að lækka álögur á áfengi og leyfa mér að halda vinnunni :)

Afhverju getur ÁTVR selt áfengi með álagningu í algjöru lágmarki og afhverju ættu aðrir þá ekki að geta það líka? :wink:

Málið er bara að það hefur ekki verið gerð nein krafa um að sterkt vín fáist í verslunum og eftir því sem ég best veit var ekkert verið að loka á að ÁTVR geti ekki selt bjór og létt vín, rétt eins og aðrar verslanir, með sterka vínin!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby gunnar » Mon 19. Mar 2007 19:17

Lausnin liggur samt ekki eingöngu í að leyfa áfengissölu í búðum.

Ég þekki mjög vel til Vífilfells hf enda tengdur þar í gegnum bróður minn sem er mjög hátt settur þarna og ég ræddi þetta mál eitt sinn við hann og hann tjáði mér að lausnin væri alls ekki að setja þetta í verslanirnar, heldur þyrftu álögurnar að lækka og það strax. Þeir sem selja áfengið hérna heima, vífilfell, skalli og fleiri græða sama og ekkert á td bjórnum. Mikið minna en á td gosinu.

Auðvitað eigum við að geta farið í Hagkaup og keypt gott rauðvín með nautafilleinu, en ríkið verður að hætta að okra svona mikið á þessu svo það sé hægt að lækka þetta verð.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby bragi1 » Mon 19. Mar 2007 19:20

bebecar wrote:
bragi1 wrote:Ég vinn í Vínbúð svo að eftirfarandi er frekar litað:

Það átti bara að færa bjór og vín undir 22% í búðir. ÁTVR er búin að gefa út að það muni ekki halda úti búðum til að selja bara sterkt vín. Sem þýðir hvað ef þetta færi í gegn? Álaging ÁTVR er í algjöru lágmarki sem þýðir af ef það á að borga sig fyrir búðir að selja áfengi þarf að hækka álagningu. Sem þýðir hvað? Svona gæti ég haldið áfram lengi. Mér þykir persónulega nær að lækka álögur á áfengi og leyfa mér að halda vinnunni :)

Afhverju getur ÁTVR selt áfengi með álagningu í algjöru lágmarki og afhverju ættu aðrir þá ekki að geta það líka? :wink:

Málið er bara að það hefur ekki verið gerð nein krafa um að sterkt vín fáist í verslunum og eftir því sem ég best veit var ekkert verið að loka á að ÁTVR geti ekki selt bjór og létt vín, rétt eins og aðrar verslanir, með sterka vínin!

Því ÁTVR er ekki rekið með gróða í huga.
BMW 118i
User avatar
bragi1
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 299
Joined: Mon 24. Apr 2006 15:37
Location: Hafnarfjörður

Postby Henbjon » Mon 19. Mar 2007 19:26

bragi1 wrote:

Dreng.

Ríkið á ATVR og ríkið setur háan toll á áfengið sem ÁTVR kaupir svo inn og setur lítið á. Ríkið fær samt allan tollinn og er þannig óbeint að setja mikið á þetta. Það er bara verið að reyna að láta ÁTVR líta betur út með því að segja að þau setja mjög lítið á þetta.
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Postby bragi1 » Mon 19. Mar 2007 19:31

BmwNerd wrote:

Búðirnar sjálfar setja lítið á. Þess vegna er ég að segja að málið sé að fá Ríkið til að lækka álögur sínar áður en við pælum í að flytja vínið í búðir. Annars þýðir lítið að hlusta á mig. Er svo mikill afturhaldskommatittur að mér finnst til dæmis að banna ættu sígarettur.
BMW 118i
User avatar
bragi1
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 299
Joined: Mon 24. Apr 2006 15:37
Location: Hafnarfjörður

Postby gunnar » Mon 19. Mar 2007 19:34

Hehe þú ert svakalegur, ég er samt ánægður með þetta reykbann, mér er anskotans sama hvort fólk reykji eða ekki, en ég vill ekki að fólk sé að reykja ofan í matinn hjá mér til dæmis á veitingastöðum.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests