Frumvarp til laga sem átti að leyfa sölu á léttum vínum og bjór í matvöruverslunum fékkst ekki afgreitt á Alþingi í gær vegna hótana VG. Á annan tug þingmanna flutti málið, það hafði fengist afgreitt í allsherjarnefnd en Vinstri græn hótuðu málþófi ef frumvarpið kæmist á dagskrá og því fékkst það ekki afgreitt.
Rifjað hefur verið upp síðustu daga að Steingrímur J. Sigfússon, mögulegur forsætisráðherra í landinu eftir tvo mánuði, barðist mjög gegn því að sala á bjór yrði aftur leyfð hér á landi fyrir nokkrum árum. Nú var Steingrímur J. aftur á ferðinni gegn frumvarpi um að leyfa sölu á bjór og léttvínum í matvöruverslunum og hafði að þessu sinni betur.
Hótanir hans báru árangur. Málið fékkst ekki tekið til afgreiðslu. Það fékkst ekki rætt.
Þar með hefur Steingrímur J. hefnt fyrir það að bjórinn var leyfður hér á landi á sínum tíma.
Ef Steingrímur J. getur bannað hluti og komið í veg fyrir afgreiðslu þeirra í stjórnarandstöðu, hvað mun hann þá banna sem forsætisráðherra?
Verður bjórinn þá aftur bannaður?
http://bingi.blog.is/blog/bingi/#entry-150678
Er persónulega ekkert á móti VG og það eru margir hlutir sem þeir gera rétt en á hinn bóginn skil ég ekki svona öfgabull í þeim.
Ég bara næ þessu ekki, hvað er svona að því að selja bjór og léttvín í matvöruverslunum?
Kv, palli




