Jæja, hverjir eru skemmtilegustu bílarnir sem þið hafið ekið, það væri kannski ágætt að fá röð á þá og svona helstu plúsa og mínusa ef þið nennið.
#1. Citroen Saxo Kit Car - rallýbíll, 220 hestöfl, 600 kíló, 6 gíra og engin kúpling! Mesta kikk sem ég hef komist í og það á slikkum á malbiki.
#2. BMW M Coupé, 321 hestafl, 6 gírar, tveggja sæta og hrikalega snöggur en hastur og hardcore bíll. Sennilega með bestu "dóta"bílum sme ég gæti hugsað mér ásamt E30 M3.
#3. Porsche 944S 3.0 ótrúlega öflugur bíll og sá besti hvað aksturseiginleika/afl varðar.
#4. BMW E34 M5, minn gamli. Alltaf gaman að fara eitthvert, alveg sama hvað og allir með í för.
#5. BMW E30 M3, einfaldlega mesti racer sem ég hef komist í, geggjað handling og viljug vél þrátt fyrir mikið ekinn bíl.
#6. Subaru Impreza WRX, þeysireið og minnir á þeysireið. Myndi ekki nenna að nota hann daglega.
#7. BMW E21 323i, núverandi bíll, það er nákvæmlega engin búnaður í bílnum, bara góð vél, skemmtilegur karakter og hardcore gamaldags akstur - mér líkar afskaplega vel við hann.
#8. Mercedes Benz E420 - mjúkur og þægilegur en hendist áfram eftir pöntun - góður sleeper.
#9. VW Phaeton, þegar ég kom heim þá langaði mig að skeina mér með 5 þúsund köllum.
#10. Toyota MR2, einn besti bíll sem ég hef orðið fyrir verulegum vonbrigðum með - ég kemst ekki yfir hve vélin er karakterlaus og leiðinleg eins og bíllin er að öðru leiti frábær.
Ég er örugglega að gleyma einhverjum mjög góðum og það rifjast kannski upp hjá mér, þá breyti ég bara.



