Jæja, best að kynna nýjasta gripinn í flotanum.....sem hefur fengið nafnið...
HVÍTI HRAFNINN
Keypti mér þennan fína E28 bíl núna í byrjun febrúar.
(Já, ég á tvo E28, enda kominn með fetish fyrir þessum bílum

)
Þessi bíll er lítið keyrður og ótrúlega heill miðað við aldur. Búið að endurnýja mikið í honum síðastliðin tvö ár.
Fyrir tveimur árum var hann líka endurryðvarinn í holrúmum og undirvagni.
Að bílnum hafa aðeins komið 3 eigendur á undan mér.
Fyrsti eigandi frá 1987-1997, annar frá 1997-2005, þriðji frá 2005-2007.
Spekkar um gripinn......
BMW 518i, E28 (4091)
Framleiddur 11/86 samkvæmt BMW
Nýskráður 02.10.1987 á Íslandi
Ekinn aðeins 158.000 km
Hvítur (Alpinweiss)
Beinskiptur
Mótorinn er M10B18 og hann vinnur ekkert smá vel! Meira segja Gunna bróður fannst það
14" álfelgur undan E23 umvafin Yokohama sumardekkjum
14" bottlecaps fylgdu í skottinu
Blátt leður (bara fallegt!

)
Blá innrétting
Clarion cd, JBL GTO allan hringinn
Það sem búið er að gera fyrir bílinn síðastliðið ár:
Ný kúpling
Nýtt púst alla leið
Ný vatnsdæla
Það sem ég er búinn að gera síðan ég fékk hann í byrjun febrúar:
Nýir bremsudiskar að framan
Nýir bremsuklossar að framan
Ný bremsudæla og rör v/m aftan
Bíllinn er ótrúlega sprækur og fjöðrunin er eins og ný!
Leðrið er í góðu ástandi og hefur verið almennt hugsað vel um bílinn.
Læt fylgja eina mynd síðan á samkomunni í byrjun febrúar.
Tek betri á næstu dögum þegar búið er að bóna
