Nú er kuldinn allsvakalegur á morgnana og fyrstu mínúturnar í bílnum hálfgerð pína þar sem maður situr hreyfingarlaus fyrir framan stýrið.
Ég hef nokkrum sinnum hoppað út í bíl (beint fyrir framan dyrnar) áður en ég klæði mig og ræst bílinn, síðan þegar ég fer út í bíl, þá er hann a.m.k. orðinn ilvolgur (kannski 5-8 mínútur liðnar) - munar ÖLLU þegar það er -7 gráður úti
Nú langar mig að spyrja - á þetta að fara e-ð illa með vélina, þ.e. að leyfa henni að lulla örlítið áður en tekið er af stað, leyfa henni rétt að vakna og hitna áður. Ég hef nefnilega heyrt e-rstaðar að bíllinn nái ekki eðlilegum olíuþrýstingi eða e-ð álíka.




