Þegar kalt er úti

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Þegar kalt er úti

Postby Leikmaður » Tue 09. Jan 2007 12:15

Sælir

Nú er kuldinn allsvakalegur á morgnana og fyrstu mínúturnar í bílnum hálfgerð pína þar sem maður situr hreyfingarlaus fyrir framan stýrið.

Ég hef nokkrum sinnum hoppað út í bíl (beint fyrir framan dyrnar) áður en ég klæði mig og ræst bílinn, síðan þegar ég fer út í bíl, þá er hann a.m.k. orðinn ilvolgur (kannski 5-8 mínútur liðnar) - munar ÖLLU þegar það er -7 gráður úti :D .

Nú langar mig að spyrja - á þetta að fara e-ð illa með vélina, þ.e. að leyfa henni að lulla örlítið áður en tekið er af stað, leyfa henni rétt að vakna og hitna áður. Ég hef nefnilega heyrt e-rstaðar að bíllinn nái ekki eðlilegum olíuþrýstingi eða e-ð álíka.
Leikmaður
Getawaybílstjóri
 
Posts: 989
Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Location: Seoul, South-Korea

Postby arnibjorn » Tue 09. Jan 2007 12:17

Spurning um að láta fylgja með hvernig bíl þú ert að tala um eða hvernig vél er í honum. :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Kull » Tue 09. Jan 2007 12:18

Handbækurnar segja að aka eigi strax af stað en hvort umhverfissjónarmið ráði þar veit ég eigi.
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!
User avatar
Kull
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1505
Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Location: Seltjarnarnes

Postby Aron Andrew » Tue 09. Jan 2007 12:29

Hef heyrt að það fari amk illa með m20 að láta hana ganga lausagang lengi, en hvort það er rétt veit ég ekki
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Logi » Tue 09. Jan 2007 12:29

Eftir því sem ég best veit er hægagangur aldrei góður fyrir bílvél. Sama hvort hún er heit eða köld!
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby finnbogi » Tue 09. Jan 2007 12:31

Kull wrote:Handbækurnar segja að aka eigi strax af stað en hvort umhverfissjónarmið ráði þar veit ég eigi.

ég las bara á netinu að það væri mælt með því á E30 325i

að láta hann ganga í 3-5 mín ef frost er og keyra hann svo aldei snúa vélinni svo yfir 3000 þanga til bílinn er orðinn heitur

svona ætti mótorinn að endast best ef mikið er um kaldræsingar

en ég veit ekkert hvort þetta sé heilagt

en veit að þetta með snúninginn er rétt
Þórður Finnbogi
GSM:663-2524

BMW M5 E39 1999 veðlaus :D
BMW 316i E36 1999 kraftlaus
Image
finnbogi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2645
Joined: Mon 19. Apr 2004 02:07
Location: á M5 á hlið eða í læknis leik með systur þinni

Postby gstuning » Tue 09. Jan 2007 12:34

finnbogi wrote:
Kull wrote:Handbækurnar segja að aka eigi strax af stað en hvort umhverfissjónarmið ráði þar veit ég eigi.

ég las bara á netinu að það væri mælt með því á E30 325i

að láta hann ganga í 3-5 mín ef frost er og keyra hann svo aldei snúa vélinni svo yfir 3000 þanga til bílinn er orðinn heitur

svona ætti mótorinn að endast best ef mikið er um kaldræsingar

en ég veit ekkert hvort þetta sé heilagt

en veit að þetta með snúninginn er rétt

Gæti ekki verið meira rangt,
maður á að setja í gang og keyra beint af stað, rólega,
þegar maður startar við mikinn kulda þá á bensínið bágt með að mixast við loftið og þá þarf enn meira bensín bara til að halda vélinni á lífi,
að halda bílnum á ferð og snúning(cirka 3000rpm) þá allaveganna sparar maður sé smá bensín, og hitar vélina nógu hratt,
ef hann er lengi að hitna þá er líklega stífur vatnslás sem ætti að skipta um strax.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Leikmaður » Tue 09. Jan 2007 13:29

arnibjorn wrote:Spurning um að láta fylgja með hvernig bíl þú ert að tala um eða hvernig vél er í honum. :)

Ég er nú bara í smá millibilsástandi - gömul Mözdu tík sem ég skjökti á. En ég hef átt þónokkra bíla og var að spá almennt í þessa hluti.

En maður veit að það er heldur ekki beint ,,gott" fyrir vélina að ræsa hana í -7 stiga gaddi og bruna beint af stað (en að sjálfsögðu passar maður snúninginn) og síðan hefur maður heyrt tvennar sögur hvernig það fer með vélina að leyfa henni að vakna í nokkrar mínútur áður.

Hvort að bíllinn eyði e-jum ósköpum í lausagangi kaldur skiptir held ég bara ekki nokkru máli - við vitum það allir að lítrarnir leka svoleiðis út um pústið fyrsta kílómeterinn í gaddi....aðalmálið hvort fari betur með líffærin í bílnum ;)

Best væri náttúrulega að geyma bílinn í upphitaðri geymslu á veturna - en þar sem við búum jú hérna - þá sýnist mér maður þurfa að velja eitt af tvennu illu :)
Leikmaður
Getawaybílstjóri
 
Posts: 989
Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Location: Seoul, South-Korea

Postby gstuning » Tue 09. Jan 2007 13:43

Það á að keyra vélina af stað, þannig er það bara.

því að með að láta hana sitja þá hitnar hún enn lengur og það í raun fer verr með hana,.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby íbbi_ » Tue 09. Jan 2007 13:48

það eru nú skiptar skoðanir um þetta, margir sem halda því fram að það sé gott fyrir hana að leyfa henni ða ná upp almennilegum olíuþrýstingin áður en maðurfer að keyra,

annars skiptir þetta mig littlu, miðstöðin er dauð, keyri bara um með sætishitarann á on ON ON! :lol:
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby gstuning » Tue 09. Jan 2007 13:52

íbbi_ wrote:það eru nú skiptar skoðanir um þetta, margir sem halda því fram að það sé gott fyrir hana að leyfa henni ða ná upp almennilegum olíuþrýstingin áður en maðurfer að keyra,

annars skiptir þetta mig littlu, miðstöðin er dauð, keyri bara um með sætishitarann á on ON ON! :lol:

olíuþrýstingur er kominn upp rétt eftir að vélin fer í gang, og er betri á smá snúning,

Annars nota menn olíu hitara í norður evrópu með timer, þá er olían orðin heit og góð þegar maður setur í gang, enn það er líka í -20-25°C kulda
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby ValliFudd » Tue 09. Jan 2007 13:59

gstuning wrote:

Já eru ekki flest allir í t.d. norðurhluta noregs með hitara? Pabbi var á ferðinni þar fyrir einhverjum árum og mér heyrðist á honum að það væru allir bílar annað hvort með lítinn bensínmótor í húddinu sem heldur vélinni heitri eða þá rafmagnssnúru úr húddinu og inn í hús :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby gstuning » Tue 09. Jan 2007 14:00

ValliFudd wrote:
gstuning wrote:
íbbi_ wrote:það eru nú skiptar skoðanir um þetta, margir sem halda því fram að það sé gott fyrir hana að leyfa henni ða ná upp almennilegum olíuþrýstingin áður en maðurfer að keyra,

annars skiptir þetta mig littlu, miðstöðin er dauð, keyri bara um með sætishitarann á on ON ON! :lol:

olíuþrýstingur er kominn upp rétt eftir að vélin fer í gang, og er betri á smá snúning,

Annars nota menn olíu hitara í norður evrópu með timer, þá er olían orðin heit og góð þegar maður setur í gang, enn það er líka í -20-25°C kulda

Já eru ekki flest allir í t.d. norðurhluta noregs með hitara? Pabbi var á ferðinni þar fyrir einhverjum árum og mér heyrðist á honum að það væru allir bílar annað hvort með lítinn bensínmótor í húddinu sem heldur vélinni heitri eða þá rafmagnssnúru úr húddinu og inn í hús :)

Jú það var akkúrat svoleiðis,
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby saemi » Tue 09. Jan 2007 15:17

Það er alveg á tandurhreinu að það fer betur með bílvél að aka strax af stað. EN það má alls ekki snúa vélinni mikið á meðan hún er köld. Best að keyra á 2-3000 snúningum fyrstu mínúturnar.

Olíuþrýstingur er mjög hár í kulda, hann er kominn upp um leið og olíuljósið er farið í mælaborðinu.

Til gamans má geta þess að í t.d. E38 þá skiptir bíllinn mun seinna upp í hærri gír þegar vélin er köld. Þetta er prógrammerað svona til að vélin hitni fyrr í kulda. Þetta hlýtur að segja sitt varðandi þetta. Annars er líka nóg að lesa handbók framleiðandans.. þetta stendur skýrt þar.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Jón Ragnar » Tue 09. Jan 2007 20:01

Heh talandi um að láta bílvélar aldrei ganga lausagang mikið :)

70% af vélartímanum á Volvo bíl sem ég er að vinna á er lausagangur :D

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests