Ert þú vitni?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Ert þú vitni?

Postby drolezi » Mon 18. Dec 2006 08:26

Um fjögurleytið í gær, 17.12.06, var ekið utan í kyrrstæða bifreið fyrir utan verslun BYKO í Kópavogi og stakk tjónvaldur af vettvangi. Þykir það kannski ekki frásögu færandi vegna algengni slíks hátternis en þetta atvik var frábrugðið hinum venjulegu afstungu málum.

Það var nefnilega svo að eigendur kyrrstæðu bifreiðarinnar eru eldri hjón. Höfðu þau lagt bifreið sinni í merktu bifreiðastæði fatlaðra með bláum grunni en þau eru með leyfi til þess og var það leyfi sýnilegt í framrúðu bifreiðarinnar. Bifreiðastæði fatlaðra eru stærri en venjuleg bílastæði svo þau þjóni tilgangi sínum sem best.

Af upptökum úr öryggismyndavélum BYKO og framburði vitna á vettvangi þykir ljóst að tjónvaldur hefur reynt að koma bifreið sinni inn í þetta sama bifreiðastæði en eðlilega ekki tekist þar sem þetta bifreiðastæði aðeins er gert fyrir eina bifreið, en það er staðsett sem næst inngangi og er ljósastaur þar við. Tjónvaldi tókst með naumindum að koma sér inn á stæðið en sá þá fram á að geta ekki komist út úr bifreið sinni og hætti því við þessar lagningartilraunir sínar.

Þegar eldri hjónin komu út úr BYKO blasti við þeim stór dæld og langar rispur á hlið kyrrstæðu bifreiðarinnar og á rúðu bílstjóra hafði verið límdur gulur minnismiði sem á stóð "það er óþarfi að taka 2 stæði - hugsaðu ekki bara um sjálfan þig”.

Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Kópavogi.

Ef einhver hér varð vitni að ofangreindu atviki þá er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við lögregluna í Kópavogi í síma 5603050.
drolezi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 253
Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43

Postby Steinieini » Mon 18. Dec 2006 15:11

Vá hvað fólk getur verið SVAÐALEGA heft :shock:

Númerið sést væntanlega ekki á upptökum ?
E39 530D ///M Sport
User avatar
Steinieini
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1905
Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Location: RVK

Postby pallorri » Mon 18. Dec 2006 16:41

Endalaust af þessum borderline mongolítum sem eru í umferðinni :evil:
Last edited by pallorri on Mon 18. Dec 2006 18:25, edited 1 time in total.
pallorri
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1452
Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27

Postby JonHrafn » Mon 18. Dec 2006 17:27

það dugar ekki að vera andlega fatlaður til að leggja þarna
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby bragi1 » Mon 18. Dec 2006 18:57

Er eiginlega aldrei hlyntur ofbeldi en svona fólk hefur gott af því að labba á hnefa.
BMW 118i
User avatar
bragi1
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 299
Joined: Mon 24. Apr 2006 15:37
Location: Hafnarfjörður

Postby Arnarf » Mon 18. Dec 2006 19:14

Með mest extreme fávitaskap sem maður heyrir af.

Ekki beint að það tengist þessu,

Var að fara út í bíl áðan, tók eftir því að það var búið að ýta hægri rúðispeglinum að bílnum og spegillinn hékk á 2 vírum. Spegilinn er líka brotinn (2 sprungur alveg gegnum hann)
Fatta ekki alveg hvernig þetta átti að geta gerst, þar sem spegillinn brotnaði, eins og einhver hafi lamið í spegilinn sjálfan með einhverri kylfu eða e-ð.
Sýnist þetta samt ekki vera mikið tjón, ætti að vera nóg að kaupa bara nýjan spegil, vona að það sé hægt, þeas. þurfi ekki að kaupa allt júniitið

Þetta er annað "skemmdarverkið" sem bíllinn minn hefur orðið fyrir. Hitt var miklu verra, lyklaður alveg þvílíkt. 50þús kall sem kostar að sprauta, næ vonandi að gera það á fyrri hluta næsta árs.
Núna er það alveg á hreinu að ég sé að fara stela bílastæði foreldrana og gamla corolan þeirra fær að fara á almenningsstæðið.
User avatar
Arnarf
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 827
Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48

Postby Jón Ragnar » Mon 18. Dec 2006 19:14

Vá hvað fólk er óþolandi HEIMSKT alltaf ! :x

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 46 guests