Um fjögurleytið í gær, 17.12.06, var ekið utan í kyrrstæða bifreið fyrir utan verslun BYKO í Kópavogi og stakk tjónvaldur af vettvangi. Þykir það kannski ekki frásögu færandi vegna algengni slíks hátternis en þetta atvik var frábrugðið hinum venjulegu afstungu málum.
Það var nefnilega svo að eigendur kyrrstæðu bifreiðarinnar eru eldri hjón. Höfðu þau lagt bifreið sinni í merktu bifreiðastæði fatlaðra með bláum grunni en þau eru með leyfi til þess og var það leyfi sýnilegt í framrúðu bifreiðarinnar. Bifreiðastæði fatlaðra eru stærri en venjuleg bílastæði svo þau þjóni tilgangi sínum sem best.
Af upptökum úr öryggismyndavélum BYKO og framburði vitna á vettvangi þykir ljóst að tjónvaldur hefur reynt að koma bifreið sinni inn í þetta sama bifreiðastæði en eðlilega ekki tekist þar sem þetta bifreiðastæði aðeins er gert fyrir eina bifreið, en það er staðsett sem næst inngangi og er ljósastaur þar við. Tjónvaldi tókst með naumindum að koma sér inn á stæðið en sá þá fram á að geta ekki komist út úr bifreið sinni og hætti því við þessar lagningartilraunir sínar.
Þegar eldri hjónin komu út úr BYKO blasti við þeim stór dæld og langar rispur á hlið kyrrstæðu bifreiðarinnar og á rúðu bílstjóra hafði verið límdur gulur minnismiði sem á stóð "það er óþarfi að taka 2 stæði - hugsaðu ekki bara um sjálfan þig”.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Kópavogi.
Ef einhver hér varð vitni að ofangreindu atviki þá er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við lögregluna í Kópavogi í síma 5603050.

