Dagurinn í dag var fallegur og góður. Hann byrjaði reyndar ekkert vel því að umferðin út úr Lúx var skelfileg á hraðbrautinni. Ég ákvað því að over-write-a Navi kerfið og taka sveitavegina. Leiðinni var heitið upp til Spa í Belgíu á BMW M dag sem umboðið hér í Lúx bauð mér á.
Það var mikil og þétt þoka sem lá yfir öllu og ég orðinn vel seinn, mæting var stundvíslega kl 9.30 og ég 130km frá og innan við klukkutími í mætingu. Ég held að ég hafi aldrei verið jafn trektur undir stýri, á 100-200km hraða á sveitavegum með 50metra skyggni og rakar götur.
Anyway, ég náði þessu og mætti á svæðið með stæl.
Planið var svona.
1. morgunnmatur
2. fyrirlestur (á Frönsku) um BMW M deildina, Z4M, M5 og M6. skildi bara merkilega mikið.
3. fyrirlestur um brautarakstur, hvernig á að sitja, halda í stýrið og almennt um akstur á braut.
4. Akstur!!!
5. Flottur matur
6. Chill.
Ég keyrði mest M6 Cabrio, en var nett pirraður yfir því að það mátti ekki setja tuskuna niður. Þarna voru líka Z4M coupe, M5 og M6 Coupe.
M6 Cabrio virkar því miður svolítið svagur að aftan þegar maður er kominn yfir 150km hraða og er í begju. Kanski er ég bara orðinn vanur M6inum.
Að blasta niður brekkuna eftir hairpinnið og svo upp brekkuna á móti er geðbilað. Maður nær svona 220-230km hraða og trixið er að bremsa ekkert heldur láta brekkuna bara éta hraðann. Það var erfitt að ná því en mjög cool þegar það tókst.
Eftur harðan akstur í brautinn fékk ég eitt run með WTCC driver BMW Motorsport UK í E60M5. Það var masterclass í high speed drifti! Shit fokk og helvíti hvað gaurinn gerði, það liggur við að ringtaxiride-ið falli í skuggan, enda var þetta einhver helsvalur ungur gaur sem heytir Andy Priaulx
Eftir matinn var maður svo leystur út með detailed módeli af M6 í Interlagos Blue.
Ég held að þetta verði að kallast toppurinn á BMW ferlinum mínum... sem event allavega.
Myndir
Bensíntankur úr M-coupe
S54
Smeklegur 335i
SB5330 aka "Sleggjan" representar
Aðstæðurnar
Þrír helvít mafíósalegir sem mættu á svæðið á þessari
Pilot sport 2 að loknu góðu dagsverki
Sexy Sexa
Græja!!! soundið í þessu er roooosalegt
Der Sven
Helmut Sven
Double Vanos 90° úr S85
Sá sem að atvinnumaðurinn flatrekaði svo eftirminnilega
Nr1 rædið mitt þennan dag
og svo .. 20.000 km akstursmúrinn á leiðinni heim á prívatinu.
Fleiri myndir
hérna