Já þannig er málið með bílinn minn að í 80km/h þá kemur alveg þvílíkur titringur í stýrið og er alveg uppí ca 90. Eftir það þá er ennþá víbringur bæði framan og aftan en ekki mikið. Svo titrar líka mikið þegar ég bremsa, alveg þangað til í 70 og þá er hann smooth.
0-70 km/h er bara smooth. Alveg einsog hann á að vera.
Fyrst var mér sagt af fyrrverandi eiganda að þetta væri útaf felgunum, því að það ættu að vera miðjuhringir. Svo setti ég miðjuhringi en það lagaði lítið. Þá setti ég felgur sem eru gerðar fyrir E39 og það lagaðist töluvert við það en samt ekki alveg, og það hélt áfram að titra þegar ég bremsa á hraða. Svo prófaði ég aðrar felgur sem þurftu miðjuhringi, glænýjar í þetta skiptið, og það kom aftur sama dæmið og með hinar felgurnar sem þurftu hringi.
Það sem ég er að pæla er hvort skakkir eða varpaðir bremsudiskar geta orsakað þetta? Ég veit að þarf nýj diska að aftan, þeir eru bara búnir, en framdiskarnir líta út fyrir að vera nokkuð heillegir.
Svo annað sem ég er að spá. Þar sem bíllinn var keyrður heillengi á fyrstu felgunum án miðjuhringjanna áður en ég fékk hann, getur það hafa skemmt eitthvað? Fóðringar eða stýrisenda eða eittthvað? Því mér var sagt að bíllinn var alltaf smooth með orginal BBS felgunum.


