Geta bremsudiskar orsakað titring í akstri?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Geta bremsudiskar orsakað titring í akstri?

Postby Danni » Tue 10. Oct 2006 21:37

Já þannig er málið með bílinn minn að í 80km/h þá kemur alveg þvílíkur titringur í stýrið og er alveg uppí ca 90. Eftir það þá er ennþá víbringur bæði framan og aftan en ekki mikið. Svo titrar líka mikið þegar ég bremsa, alveg þangað til í 70 og þá er hann smooth.

0-70 km/h er bara smooth. Alveg einsog hann á að vera.

Fyrst var mér sagt af fyrrverandi eiganda að þetta væri útaf felgunum, því að það ættu að vera miðjuhringir. Svo setti ég miðjuhringi en það lagaði lítið. Þá setti ég felgur sem eru gerðar fyrir E39 og það lagaðist töluvert við það en samt ekki alveg, og það hélt áfram að titra þegar ég bremsa á hraða. Svo prófaði ég aðrar felgur sem þurftu miðjuhringi, glænýjar í þetta skiptið, og það kom aftur sama dæmið og með hinar felgurnar sem þurftu hringi.

Það sem ég er að pæla er hvort skakkir eða varpaðir bremsudiskar geta orsakað þetta? Ég veit að þarf nýj diska að aftan, þeir eru bara búnir, en framdiskarnir líta út fyrir að vera nokkuð heillegir.

Svo annað sem ég er að spá. Þar sem bíllinn var keyrður heillengi á fyrstu felgunum án miðjuhringjanna áður en ég fékk hann, getur það hafa skemmt eitthvað? Fóðringar eða stýrisenda eða eittthvað? Því mér var sagt að bíllinn var alltaf smooth með orginal BBS felgunum.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby Aron Fridrik » Tue 10. Oct 2006 21:46

hmm.. hljómar eins og að dekkin séu ekki nógu vel balance-eruð..
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby Aron Andrew » Tue 10. Oct 2006 21:48

Jrourke wrote:hmm.. hljómar eins og að dekkin séu ekki nógu vel balance-eruð..


Varla á öllum felgunum
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Aron Fridrik » Tue 10. Oct 2006 21:50

Aron Andrew wrote:
Jrourke wrote:hmm.. hljómar eins og að dekkin séu ekki nógu vel balance-eruð..


Varla á öllum felgunum


tjahh.. þurfti að balance-era gamla patrolinn hans pabba 4 sinnum áður en það varð alveg rétt.. og hann var bara á 31 tommu..
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby Ibzen » Tue 10. Oct 2006 21:55

Á bílnum mínum voru diskarnir orðnir eitthvað skakkir og þegar ég bremsaði þá titraði stýrið. Titringurinn jókst síðan með tímanum eða þangað til ég skipti um diska og þetta hefur verið í lagi síðan.
BMW 320 e36 "93 -í notkun-
User avatar
Ibzen
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 252
Joined: Fri 26. Sep 2003 23:08
Location: Hafnarfjörður

Postby Danni » Tue 10. Oct 2006 22:10

Ibzen wrote:Á bílnum mínum voru diskarnir orðnir eitthvað skakkir og þegar ég bremsaði þá titraði stýrið. Titringurinn jókst síðan með tímanum eða þangað til ég skipti um diska og þetta hefur verið í lagi síðan.


En titraði bíllinn í akstri? SS. ekki bara þegar þú varst að bremsa?
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby Einsii » Tue 10. Oct 2006 22:12

Hjólalega ?
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby Ibzen » Tue 10. Oct 2006 22:13

já bara þegar að ég bremsaði... svo man ég núna, eitt skiptið þegar að ég var að keyra út á landi og þurfti eitthvað að nauðhemla að þá versnaði þetta mjög. Þannig að þetta er mikið öryggisatriði að hafa þetta í lagi.
BMW 320 e36 "93 -í notkun-
User avatar
Ibzen
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 252
Joined: Fri 26. Sep 2003 23:08
Location: Hafnarfjörður

Postby Lindemann » Tue 10. Oct 2006 22:14

Þú getur prófað að mæla diskana með klukku, þá sérðu hvort þeir eru skakkir.

Diskarnir að framan gætu verið skakkir þó þeir líti út fyrir að vera heillegir.
Last edited by Lindemann on Tue 10. Oct 2006 22:15, edited 1 time in total.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby HAMAR » Tue 10. Oct 2006 22:15

Mér sýnist nú fóðringarnar að framan vera farnar að gefa sig miðað við lýsinguna hjá þér, allveg sömu einkenni og í mínum 750 bíl sem batnaði alveg með nýjum fóðringum. Spurning kannski um hjólastillingu í leiðinni.
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Postby Ibzen » Tue 10. Oct 2006 22:16

Prófaðu líka að tjakka bílinn upp og gá hvort að það sé eitthvað slag í dekkinu með að jugga því fram og til baka. Þannig gætiru séð hvort að það sé eitthvað hlaup í legunni eða að stýrisendi sé eitthvað laskaður.
BMW 320 e36 "93 -í notkun-
User avatar
Ibzen
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 252
Joined: Fri 26. Sep 2003 23:08
Location: Hafnarfjörður

Postby RamLing » Tue 10. Oct 2006 22:18

Mæli einfaldlega með því að fara á verkstæði, láta henda honum uppá lyftu og skoða fóðringarnar, stýrisenda spindilkúlur oflr. Tekur enga stund að fara yfir þetta.
IC-464 Nissan Patrol '87 3.3TDI 44"
MO-406 Range Rover '91 3.9 V8-4sale
YM-577 Isuzu Trooper '99 3.0TDI 35"-SOLD
RR-291 GMC Jimmy '93 4.3 Vortec-SOLD
YK-403 BMW 523i '00 2.5-4sale
VS-544 Nissan Almera '00 1.8-SOLD
User avatar
RamLing
Kassabílstjóri
 
Posts: 182
Joined: Wed 21. May 2003 15:08
Location: Keflavík

Postby Danni » Tue 10. Oct 2006 22:40

Einsii wrote:Hjólalega ?

Gæti verið. Hvernig kemst ég að því? Legur kosta rúman 12þús kall stykkið í TB, ætla ekki að fara að skipta og svo var þetta ekki lega.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby RamLing » Tue 10. Oct 2006 22:46

Mæli einfaldlega með því að fara á verkstæði, láta henda honum uppá lyftu og skoða fóðringarnar, stýrisenda spindilkúlur oflr. Tekur enga stund að fara yfir þetta.


Þannig sést hvað er að .... :\ flest verkstæði taka ekkert fyrir þetta eða sáralítið þar sem þetta tekur lítin tíma
IC-464 Nissan Patrol '87 3.3TDI 44"
MO-406 Range Rover '91 3.9 V8-4sale
YM-577 Isuzu Trooper '99 3.0TDI 35"-SOLD
RR-291 GMC Jimmy '93 4.3 Vortec-SOLD
YK-403 BMW 523i '00 2.5-4sale
VS-544 Nissan Almera '00 1.8-SOLD
User avatar
RamLing
Kassabílstjóri
 
Posts: 182
Joined: Wed 21. May 2003 15:08
Location: Keflavík

Postby Lindemann » Tue 10. Oct 2006 23:13

Danni wrote:
Einsii wrote:Hjólalega ?

Gæti verið. Hvernig kemst ég að því? Legur kosta rúman 12þús kall stykkið í TB, ætla ekki að fara að skipta og svo var þetta ekki lega.


tjakkar bílinn upp, reynir að rugga hjólinu til til að ath. hvort þú finnir slag. Svo snýrðu hjólinu til að ath. hvort þú heyrir eitthvað hljóð í legunni.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests