jens wrote:
Þetta er alveg það sem ég er að meina. Ég vinn mikið og þarf að sækja það langt og í skóla líka. Svona lagað setur allt úr skorðum.
Þetta er nú ekkert hefurðu reynt að eiga viðskipti við Bílanaust það er ekki hægt að treysta þeim skröttum fyrir 5 aur það er allt til þegar að maður hringir en svo þegar að maður er kominn á staðinn og búinn að bíða heillengi þá kemur í ljós að það er ekkert til, fyrir mér þá er svona staðir ekki til nema í algjöru hallæri.
Ég hef aftur á móti mjög svo góða reynslu af TB og hann Hafþór er alltaf tilbúinn að létta manni lífið ef að hann getur.
Þeir eru núna að leggja meiri áherslu á varahluta deildina hjá sér og ég held að þeir verði númer 1 í þjónustu við þá sem eiga BMW og Benz eftir nokkur ár,það er allavegann mín tilfinning.
Það er auðvitað alveg grábölvað að fara fýluferðir allveg sama hver á í hlut,en ef að maður skoðar málin hver er að veita bestu þjónustuna og besta verðið þá verður maður að halda friðinn við viðkomandi.
