bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 09. Jun 2025 20:52

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 8 posts ] 
Author Message
PostPosted: Sun 01. Oct 2006 05:30 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48
Posts: 827
Mér er farið að finnast sjálfsskiptingin í bílnum mínum sé að haga sér smá öðruvísi núna.

Hún er alveg eins og hún á að vera þangað til að hún á að fara í 5 gír.
Hún er alltaf mikið lengur í 4 gír. Hann var venjulega að skipta í 5gír í 80-90km/klst og var þá að malla í sirka 1600RPM. Núna þegar ég er alveg í 110 er hann enn í 4.gír og þá á sirka 2400RPM.

Svo ef ég botna hann og þegar ég er kominn í sirka 80km/klst í öðrum gír, hætti svo að auka hraðan og held jöfnum hraða (80) þá skiptir hann sér ekki upp sjálfur, þá þarf ég að skipta í 4. og aftur í D, en þá skiptir hann sér upp alveg í 5. gír, sú aðferð virkar líka þegar ég er á 100 í 4.gír, þá er nóg að setja stöngina á 4 og aftur í D til að fara í 5. gír



Hefur einhver hugmynd hversvegna skiptingin er farin að haga sér svona?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. Oct 2006 08:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
ventlaboxið gæti verið að stríða þér,,,

EF EKKI................

þá er þetta vont -> mál. Þetta eru miður góðar skiptingar og er yfirleitt ekki gert við þetta .
Skiptingin er í tveimur hlutum. Bakkgír og Áframþrepin, yfirleitt fer bakkgírinn, með þeim afleiðingum að þú getur keyrt áfram eins og ekkert hafi í skorist,, en getur ei bakkað.
Snemma árs 2002 keypti ég mér E34 530 M60B30 og stóð valið á milli 40 eða 30 mótors,, 30 mótor varð fyrir valinu ,,SÉRSTAKLEGA vegna þeirra óáræðinleika sem sjálfskiptingin hefur sýnt í 40 vélinn.
Það er sama skipting í M50B25 og M60B30 ((innvolsið))

Þegar M60B44 kom á markaðinn er þetta vandamál úr sögunni
þar er annað hvort GM skipting og svo áfram ZF

sumir E38 M60B40 eru með sömu skipingu og þú

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. Oct 2006 14:21 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48
Posts: 827
Á ég að vera e-ð að spá í þessu eða?

E-ð sem ég get gert?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. Oct 2006 16:33 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Spurning með að prófa að skipta um vökva og síu á skiptingunni fyrst ?

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. Oct 2006 17:41 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48
Posts: 827
Djofullinn wrote:
Spurning með að prófa að skipta um vökva og síu á skiptingunni fyrst ?


Var einmitt að tala við vin minn (hann er enginn bmw expert, en hann er í vélarskólanum (eða hvað sem sá skóli heitir)
Hann sagði mér einmitt að gera það fyrst.


Annars keyrði ég langleiðina á þingvelli til að fylgjast með þessu. Ef ég fer rólega upp í 100, þá skiptir hann sér í 5 gír eins og venjulega. En ef ég er e-ð yfir 2500rpm meðan ég fer upp í 100, þá heldur hann sér í 4.gír.
Svo ef ég þjappa hann upp í 100 og hann er kannski í 5000rpm og ég set cruise control á, þá skiptir hann sér ekki upp, heldur er áfram þarna á 5000rpm.

En alltaf þegar ég er hann er stillingu 4 og svo aftur í Drive, þá skiptir hann sér í 5.gír.

En þetta er ekki neitt sem maður finnur sérstaklega fyrir þegar þú ert að keyra, en ég ætla allavega byrja á að skipta um síu og vökva á sjálfskiptingunni áður en ég fer að hafa einhverjar áhyggjur
Fyrir utan þetta með 5gírinn þá skiptir hann sér alveg venjulega, alltaf í sirka 1700-2000rpm í innanbæjarakstri


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Oct 2006 00:35 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48
Posts: 827
Sendi tb tölvupóst og var að fá reply, kostar um 20þús að skipta um vökva og síu.

Á maður ekki bara að láta gera það?


Edit
Einhver góðhjartaður kraftsmeðlimur sem gæti gert þetta ódýrara en 20þús?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Oct 2006 07:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Arnarf wrote:
Sendi tb tölvupóst og var að fá reply, kostar um 20þús að skipta um vökva og síu.

Á maður ekki bara að láta gera það?


Edit
Einhver góðhjartaður kraftsmeðlimur sem gæti gert þetta ódýrara en 20þús?


vvvvááááá,, 20000 mæli með smurstöðinni VOGAR sem er við hliðinni á endurvinnslunni og fyrir neða sendibílastöðina /ALP bílaleigunni

Virkilega góð þjónusta

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. Oct 2006 14:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
Alpina wrote:
Arnarf wrote:
Sendi tb tölvupóst og var að fá reply, kostar um 20þús að skipta um vökva og síu.

Á maður ekki bara að láta gera það?


Edit
Einhver góðhjartaður kraftsmeðlimur sem gæti gert þetta ódýrara en 20þús?


vvvvááááá,, 20000 mæli með smurstöðinni VOGAR sem er við hliðinni á endurvinnslunni og fyrir neða sendibílastöðina /ALP bílaleigunni

Virkilega góð þjónusta


Nýja Sendibílastöðin Knarravogi 2 er einmitt ób stöð þar svo að þetta ætti ekki að vera erfitt að finna ....

Smurstöðin er í sama húsi bara að neðan verðu


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 8 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group