Djofullinn wrote:
Spurning með að prófa að skipta um vökva og síu á skiptingunni fyrst ?
Var einmitt að tala við vin minn (hann er enginn bmw expert, en hann er í vélarskólanum (eða hvað sem sá skóli heitir)
Hann sagði mér einmitt að gera það fyrst.
Annars keyrði ég langleiðina á þingvelli til að fylgjast með þessu. Ef ég fer rólega upp í 100, þá skiptir hann sér í 5 gír eins og venjulega. En ef ég er e-ð yfir 2500rpm meðan ég fer upp í 100, þá heldur hann sér í 4.gír.
Svo ef ég þjappa hann upp í 100 og hann er kannski í 5000rpm og ég set cruise control á, þá skiptir hann sér ekki upp, heldur er áfram þarna á 5000rpm.
En alltaf þegar ég er hann er stillingu 4 og svo aftur í Drive, þá skiptir hann sér í 5.gír.
En þetta er ekki neitt sem maður finnur sérstaklega fyrir þegar þú ert að keyra, en ég ætla allavega byrja á að skipta um síu og vökva á sjálfskiptingunni áður en ég fer að hafa einhverjar áhyggjur
Fyrir utan þetta með 5gírinn þá skiptir hann sér alveg venjulega, alltaf í sirka 1700-2000rpm í innanbæjarakstri