Ég er búinn að skipta um dempara allan hringinn en er ennþá með upprunalegu gormana. Dempararnir sem fóru í bílinn eru orginal BMW.
Það sem ég er að velta fyrir mér er að ef ég tæki minnstu lækkun, bara að framan, get ég þá áfram notað sömu dempara? Ég vil ekki stífari gorma, var bara að velta fyrir mér hvort 20 eða 40mm lækkun að framan væri möguleg/ráðleg með orginal dempurum?
Það eina sem ég er að hugsa er að minnka gapið á milli dekks og brettis að framan.


