Helgi M wrote:
98.OKT wrote:
Eggert wrote:
Þetta eru frábærir bílar fyrir verðið! Ég átti lengi svona 520i bíl og var mjög sáttur við hann, sá var ekinn um 290 þúsund þegar ég skipti honum fyrir annan.
Það eina sem mér fannst að var að hann eyddi steady 14 lítrum á 100km... frekar mikið fyrir þessa litlu vél þegar margar af stærri vélunum eyða svipuðu eða bara því sama.
Þessir bílar eyða nú meira en 14 lítrum, bíllinn sem ég átti eyddi nánast aldrei undir 16 og það er miðað við venjulega keyrslu, og ég þekki tvo aðra sem hafa átt svona bíla og þeir hafa sömu sögu að segja
Ég veit nú ekki hvað hefur hreynlega verið að þeim bíl.....
En allavega minn er að eyða 10 til 12 eins og é keyri,, og ég keyri oftast yfir hámarkshraða, þegar ég keyri mjög rólega er hann um 10 og utanbæjar í kringum 9, ég líg þessu ekki og mæli hverja einustu fyllingu
Enda var ég nú líka hissa þegar þeir í tb sögðu að þetta væri minnsta lagi "15lítra bíll" en svo vissi ég líka af einum nákvæmlega eins og mínum sem að eyddi 22 á hundraðið,, en eins og það skýrir margt þá var sá að rusli kominn..
Ég held að þú þurfir nú eitthvað að fara að athuga hvernig þú reiknar út lítra per 100.km ef þú segist ná þínum niður í 10-12 því ég er nú bara engan vegin að trúa þessari tölu, og hvað þá á sjálfskiftum bíl ein og þú ert á, þetta er sama eyðsla og er á 1600 corollu beinskiftri, ekki nema að þú sért að tala um á langkeyrslu, þá væri þessi tala kannski smuga.
og nei það var ekkert að vélinni í þeim bíl sem ég átti, hann brenndi ekki olíu, gekk mjög vel og ég skifti um kerti/þræði í honum og hann var ný ventlastilltur þegar ég fékk hann.