Jæja ég ákvað að setja upp smá þráð um sexuna mína (HI 939) sem ég eignaðist fyrir fimm og hálfu ári síðan. Þetta átti að taka ca 2 til 3 mánuði en þegar allt kom til alls var bíllinn nokkurnvegin ónýtur

sílsarnir voru búnir og það reyndist varla vera neitt gólf í bílnum. Hjólbogarnir og stór hluti af hjólskálunum var horfið. En þetta er allt að koma eftir mörg löng hlé og nú er búið að sprauta boddýið og hurðarnar húddið og skottlokið verður sprautað um helgina. En hér eru nokkrar myndir.
uppá tunnum búið að smíða sílsa og gólf, hjólskálar í smíðum
innribrettin ónýt
búið að skipta um innribretti og mála
búið að koma relluni niður boruð 0.70 yfirstærð og allt nýtt og fínnt
búið að modda aftur brettin fyrir felgurnar
18" X 8,5"
búið að sprauta boddýið
Þetta er allt að koma og stefnt á að setja saman í vetur. En þetta er gaman og þið megið alveg kommenta líka ef einhver veit um flækjur á þessa vél þá væri ég mjög þakklátur
kv Birkir