saemi wrote:
Já eins og ALPINA segir, þá er ég hér í Danmörku í góðum höndum. Ekki veitir af að komast í góðar hendur og gott umhverfi eftir ævintýri síðasta sólarhrings.
Ég var á leið frá Liege til Danmerkur í gærkvöldi. Klukkan orðin 18 og ég skrapp inn á bensínstöð. Kom út og stall'aði bílnum þegar ég tók af stað. Startaði aftur og gekk í 2 sekúndur. Startaði aftur og gekk í 1 sekúndu......
Úfff, það var ekki þægileg tilfinning sem streymdi um líkamann á þessum tímapunkti. Aftengdi batteríið og aftur í samband. Engin breyting. Ussss, góð ráð dýr. En samt, engin ljót skilaboð í mælaborðinu......
Jæja, hringdi í master mechanic á Íslandi, Bjarka í B&L. "Hljómar hrikalega eins og bensínleysi sé að hrjá gripinn". Eftir ábendingu frá honum beindist athyglin að bensíndælunni þar sem ég vissi að það gat ekki verið að bensínmælirinn væri vitlaus þar sem of stutt var síðan ég fyllti á hann. Labbaði í 5 sinn inn í bensínstöðina og keypti startspray. Gluðaði því inn í inntakið og þá viti menn, tók hann við sér. Prufaði að banka undir tankinn, ofan á dæluna en ekkert gerðist. Keypti e-a græju til að passa upp á að halda hleðslu á geyminum. Reif hana í tætlur og beintengdi straum inn á dæluna. Ekkert gerðist. Góð ráð dýr. Gat ekki opnað tankinn til að komast í dæluna sjálfa. Vantaði hamar í það....
Jæja...
Hringdi í neyðarnúmer BMW. Ég vissi ekki hvað myndi gerast en ... "sprichst du english".... .."of course"...

Gaurinn niðri í Muenchen talaði þessa fínu ensku, ég sagði honum hvar ég var staddur og hann tók símann hjá mér niður og sagði að innan stundar myndi viðgerðarmaður hringja í mig. 10 mínútum seinna hringdi maður frá BMW og staðfesti staðsetningu mína. Sagði svo að hann yrði kominn eftir 40 mínútur til að athuga hvort hann gæti komið mér í gang.
Ég fékk mér að borða og brúnin aðeins hærri en fyrir klukkutíma síðan, þar sem ég þarf ekki að borga fyrir að fá þennan gaur á staðinn!

Síðan kemur gaurinn á feitum X5 3.0Diesel bíl. Með allar græjur, opnar tankinn, rífur dæluna úr, mælir tengingarnar... en..... dælan ónýt. Ekkert hægt að ger
er að gera og gera með Alpina... rest fylgir bráðumm..........

Jæja, kominn heim og tilbúinn í rest!
Allavega, þarna var maður með þennan BMW gaur hjá sér á þessum fína X5
fastur á bensínstöðinni, búinn að komast að því sem ég var 95% viss um að væri að væri að. Svo Fritz sagði að það eina sem hann gæti gert væri að draga mig á næsta BMW verkstæði. Sem og hann gerði. Það má víst ekki draga bíla á hraðbrautinni, allavega sagði hann að löggan væri ekki hrifin af því svo við tókum sveitavegi á umboð sem hann valdi. Það voru 3 í nágrenninu og ég hafði náttúrulega ekki hugmynd um hvert væri best að fara! En.. allavega, gaurinn reif út þetta fína dráttarbeisli, það var skrúfað í bílinn minn, gulu blikkljósi skellt á toppinn og af stað var haldið.
Keyrðum í e-r 20 mínútur eða svo og komum á áfangastað sem var Grewe í Hamm. Þá var bara að læsa bílnum, taka töskuna og stökk inn í Servicemobile-inn til gaursins. Þar var hann að stimpla inn í tölvuna í gríð og erg. Vantaði Heimilisfang mitt, síma osfrvs. Úff.... nú hlaut það að koma. 500. 600.... 800EUR... hvað skyldi það vera. Nei.. BMW AG splæsir. Þú borgar ekki neitt
Ég trúði ekki mínum eigin eyrum. Bíllinn minn er ekki það nýr að maður eigi von á svona. Ég veit ekki hvort ég var bara svona heppinn, gaurinn svona fínn eða ég svona sætur. En allavega þá skildist mér áður fyrr í símanum að það kostaði ekkert að fá gaurinn á staðinn til að kíkja á bílinn. En svo gæti kostað e-ð að draga hann og framhaldið af því!
Ekk nóg með það, svo stimplaði gaurinn inn hvar væri að finna næsta hótel. Keyrðum svo af stað og hann allur boðinn og búinn, stökk inn á næstu krá og spurðist fyrir fyrir mig, hvar næsta hótel væri þar sem ég færi ekki út um morguninn með auman afturendann eftir verðlagninguna. Fundum þetta fína Garni hótel og þar lagðist maður niður eftir strembið kvöld.
Þvílíkur service-mobil!!!!!!!!!!!! !!!!!!!!!BARA Í LAGI!!!!!!!!!!!
Morguninn eftir var maður mættur klukkan 7:45 niður í umboð og strax allt að gerast. Þar var Dirk Keimer
mættur, annar af þjónustufulltrúunum þennan dag. Hann hjálpaði mér að ýta bílnum inn þaðan sem hann stóð frekar mikið fyrir á planinu. Inn fór hann og hann mældi dæluna aftur til að vera alveg viss. Jújú, ekki um að villast, dælan biluð. Þá var farið í tölvuna og athugað hvar næstu dælu væri að finna. ... .. sér dæla í M5, úhhhhh, ekki gott. Næsta dæla er í.... Hamborg eða fjarkanistan. Bara til á 2 stöðum í Þýskalandi. Fyrsta lagi komin eftir sólarhring (laugardagsmorgun)..... Þó svo að Hamm sé ábyggilega mjög skemmtilegur bær,.. þá langaði mig voðalega lítið að eyða þar allavega 24 tímum í viðbót að bora í nefið. Nasaholurnar voru nefnilega vel hreinar eftir biðina í gærkvöldi.
Ég hafði rekið augun kvöldið áður í annan E39 M5 sem stóð á planinu hjá þeim
mjög smekklegur bíll, alveg þess virði að kíkja á hann ef maður hefði ekki þegar átt einn..... BILAÐAN! Finnið hann á mobbanum, ekinn 82þús, á 21500EUR.
Allavega, ég spurði gaurinn hvort það væri ekki séns að ég fengi að fá dæluna úr þessum bíl og kaupa nýja dælu sem þeir svo settu í hinn! Hann tók nú ekki svo illa í það en sagðist þurfa að spyrja yfirmann sinn. Það var samþykkt af honum svo .. já.. ég bara fór að skoða gamlan 1602 Cabrio sem var þarna og fékk mér kaffi. Á meðan var Holger úti að vinna í því að svissa dælum. Allt gekk þvílíkt smooth og eftir 1 1/2 tíma var ég kominn með rauðu þrumuna mína í gang aftur, tilbúinn til að rokka og róla!
Reikningurinn hljóðaði upp á rétt tæpar 300EUR fyrir vinnu og efni. Ekki svo slæmt fyrir að hafa verið stopp úti í rassgati í langtíburtistan með ENGAN til að redda sér.
Ég verð bara að segja að ég var og er MJÖG impressed yfir þessarri þjónustu. Ég sagði líka við gæjann á X5-inum, hann Wolfgang, að ég væri ekkert smá glaður núna að hafa ekki keypt FIAT

Hann gat nú ekki annað en brosað.
Bíllinn gekk svo eins og klukka áleiðis upp til Jótlands þar sem meistari Alpina tók á móti mér opnum örmum og hélt mér í góðum félagsskap. Ég sem ætlaði að skella mér heim jafnvel á föstudagskvöldinu. Maður gat nú ekki slegið hendinni á móti frírri gistingu og skemmtilegheitum á Jótlandi svo dvölinni var framlengt fram á sunnudag.
Skrapp reyndar á föstudeginum strax í Schmiedmann til að kaupa það nausynlegasta á gripinn. Eins og athugull félagi hér á kraftinum rak augun í þá fengu strákarnir að mynda græjuna. Þeim fannst þetta eitthvað spes, ég varð frekar hissa. Hélt að þetta væri daglegt brauð þarna, en greinilega ekki. Vildu fá að setja mynd í fréttablaðið sitt. Það var nú lítið mál. En átti ekki von á að vera böstaður á kraftinum í kjölfarið
Nú ferðin hjá mér endaði svo heima á sunnudeginum. Skellti mér strax út á braut og náði í restina af leikdeginum.
En þvílík leikvika sem þetta var búið að vera. Þetta var magnað og verður ennþá magnaðra næst
Hlakka til að heyra frá ykkur refsi-bræður. Vona að allt gangi vel. Passið ykkur samt á því hættulegasta þarna úti. Að vakna ekki með klístraða kó***na eftir skandal. Betra að fara bara á staðina með bleiku skiltin og setja dollara í skorur, fara svo heim eins og ég útlistaði vel fyrir ykkur
