bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 07. Jun 2025 13:18

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 260 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11 ... 18  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sat 16. Sep 2006 01:03 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45
Posts: 1376
///M wrote:
maintaining með prömbah....

hvað er prömbah,, :oops:

_________________
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 16. Sep 2006 01:05 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
ta wrote:
///M wrote:
maintaining með prömbah....

hvað er prömbah,, :oops:


prömbah----prump----fart

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 16. Sep 2006 01:45 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45
Posts: 1376
bjahja wrote:
ta wrote:
///M wrote:
maintaining með prömbah....

hvað er prömbah,, :oops:


prömbah----prump----fart


ókeiiii, prump á lúxembúrgísku:::


_________________
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 16. Sep 2006 19:48 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Wow... fljótt flýgur fiskisagan!

Já, það má eiginlega segja að ég hafi komið við í Schmiedmann til að kaupa það nauðsynlegasta fyrir þessa bíla!

Er í meðhöndlun hjá ALPINA í DK, kem heim á morgun og þá verður ferðasagan kláruð!!!!!!

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 16. Sep 2006 20:07 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
ÚHHLLAMÚLLA


Þá sögu hlakkar mig til að lesa!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 16. Sep 2006 20:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Er Refsibrædur verda til baka komnir mun bundid mál verda birt yfir
hin ýmsu ævintýr,,,,,,,, sønn eda login


ps ,,,,,,,gert í gríni og birt án ábyrgdar

ein vísa per dag .......LÁGMARK

sýnishorn
og ekki i réttri dagsrød

Í Køln menn kúra súlu vid
keppast vid ad góna
stjarfir stara ad gódum sid
stífir ad hætti dóna

a Roadster Rydja fólk úr vegi
Rupla gamalmenni i bland
Dissa jafnt á nóttu og degi
Duglegir vid meginland

Ógnvænlegir Uggandi
Ógurlegir rumar
i dalli Roadster Ruggandi
á Refsingu sko lumar

Hafa ber i huga ad um skaldud dæmi er ad ræda sem sannleikskorn blandast inn i og allt gert med TEAM PUNHISMENT en ekki Svenna né Óskar i huga

:naughty:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 17. Sep 2006 22:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Er ekkert að frétta af Refsi-Bræðrum......?

Myndir?

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 18. Sep 2006 07:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Bjarki wrote:
///M wrote:
Nýr MAX speed twöhöndröðfemmtíöogfjörer


MAX speed hjá Sæma á M5 e39 270km á mæli en 260+ á GPS. Samt ekki mikill munur, en á þessum hraða var ég bara að lesa blaðið og Sæmi að tala um hvað eggið sem við borðuðum í morgunmat hefði mátt vera aðeins meira soðið!!!


Hehehe.. SVALT

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 18. Sep 2006 07:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Vil benda á að .........the three musketeers

fengu ,,,run hjá fartaranum, og benti ,,flugmaðurinn á það að E39 M5 væri hálf latur eftir það..

ps, E39 M5 er hörku bíll,, en munurinn á þessum bílum er ........HRIKALEGUR............

í 6.mode erum við að tala um (((((((mindblowing))))))))))) performance
sem á engan sinn líkan í 5 manna 4 dyra fjöldaframleiddum bíl
og ath --------->> non####turbo/supercharged

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 18. Sep 2006 16:17 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
erum i salzburg og thad er rigning... erum ad paela ad meika run for it og renna til italiu fyrir myrkur........en madur veit ekki kannski verdum vid herna i nott :)

bunir ad heimsaekja:
Porsche dealer i stuttgart
Porsche museum i stuttgart
ALPINA
BMW i Munchen
BMW museum i Munchen

aeltum ad heimsaekja Alpina aftur en vera tha bunir ad panta tour um svaedid og gera slikt hid sama hja BMW...

Vid eigum eftir ad heimsökja:
RUF
Alpina (aftur)
BMW (aftur)
Ferrari i italiu
Lambo i italiu
Tjekka hvort thad se eitthvad spennandi hja Yonda (-eas adressunni sem -eir gefa upp)
Kannski Weismann

og ßruglega eitthvaü meira shitt sem äeg man ekki akkurat näna....

äeg er bäuinn aü taka allskonar mzndir sem äeg päosta viü tökiföri, -etta lzklaborü sßkkar og äeg nenni ekki aü horfa äa takkana äaüur en äeg äzti.... meira uppdeit vöntanlega -egar viü komum til äitaliu og bäunir aü fäa okkur bjäor!

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Sep 2006 01:39 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
saemi wrote:
Já eins og ALPINA segir, þá er ég hér í Danmörku í góðum höndum. Ekki veitir af að komast í góðar hendur og gott umhverfi eftir ævintýri síðasta sólarhrings.

Ég var á leið frá Liege til Danmerkur í gærkvöldi. Klukkan orðin 18 og ég skrapp inn á bensínstöð. Kom út og stall'aði bílnum þegar ég tók af stað. Startaði aftur og gekk í 2 sekúndur. Startaði aftur og gekk í 1 sekúndu......

Úfff, það var ekki þægileg tilfinning sem streymdi um líkamann á þessum tímapunkti. Aftengdi batteríið og aftur í samband. Engin breyting. Ussss, góð ráð dýr. En samt, engin ljót skilaboð í mælaborðinu......

Jæja, hringdi í master mechanic á Íslandi, Bjarka í B&L. "Hljómar hrikalega eins og bensínleysi sé að hrjá gripinn". Eftir ábendingu frá honum beindist athyglin að bensíndælunni þar sem ég vissi að það gat ekki verið að bensínmælirinn væri vitlaus þar sem of stutt var síðan ég fyllti á hann. Labbaði í 5 sinn inn í bensínstöðina og keypti startspray. Gluðaði því inn í inntakið og þá viti menn, tók hann við sér. Prufaði að banka undir tankinn, ofan á dæluna en ekkert gerðist. Keypti e-a græju til að passa upp á að halda hleðslu á geyminum. Reif hana í tætlur og beintengdi straum inn á dæluna. Ekkert gerðist. Góð ráð dýr. Gat ekki opnað tankinn til að komast í dæluna sjálfa. Vantaði hamar í það....

Jæja...

Hringdi í neyðarnúmer BMW. Ég vissi ekki hvað myndi gerast en ... "sprichst du english".... .."of course"... :)

Gaurinn niðri í Muenchen talaði þessa fínu ensku, ég sagði honum hvar ég var staddur og hann tók símann hjá mér niður og sagði að innan stundar myndi viðgerðarmaður hringja í mig. 10 mínútum seinna hringdi maður frá BMW og staðfesti staðsetningu mína. Sagði svo að hann yrði kominn eftir 40 mínútur til að athuga hvort hann gæti komið mér í gang.

Ég fékk mér að borða og brúnin aðeins hærri en fyrir klukkutíma síðan, þar sem ég þarf ekki að borga fyrir að fá þennan gaur á staðinn! :) Síðan kemur gaurinn á feitum X5 3.0Diesel bíl. Með allar græjur, opnar tankinn, rífur dæluna úr, mælir tengingarnar... en..... dælan ónýt. Ekkert hægt að ger

er að gera og gera með Alpina... rest fylgir bráðumm.......... :lol:


Jæja, kominn heim og tilbúinn í rest!

Allavega, þarna var maður með þennan BMW gaur hjá sér á þessum fína X5
Image

fastur á bensínstöðinni, búinn að komast að því sem ég var 95% viss um að væri að væri að. Svo Fritz sagði að það eina sem hann gæti gert væri að draga mig á næsta BMW verkstæði. Sem og hann gerði. Það má víst ekki draga bíla á hraðbrautinni, allavega sagði hann að löggan væri ekki hrifin af því svo við tókum sveitavegi á umboð sem hann valdi. Það voru 3 í nágrenninu og ég hafði náttúrulega ekki hugmynd um hvert væri best að fara! En.. allavega, gaurinn reif út þetta fína dráttarbeisli, það var skrúfað í bílinn minn, gulu blikkljósi skellt á toppinn og af stað var haldið.

Keyrðum í e-r 20 mínútur eða svo og komum á áfangastað sem var Grewe í Hamm. Þá var bara að læsa bílnum, taka töskuna og stökk inn í Servicemobile-inn til gaursins. Þar var hann að stimpla inn í tölvuna í gríð og erg. Vantaði Heimilisfang mitt, síma osfrvs. Úff.... nú hlaut það að koma. 500. 600.... 800EUR... hvað skyldi það vera. Nei.. BMW AG splæsir. Þú borgar ekki neitt :shock:

Ég trúði ekki mínum eigin eyrum. Bíllinn minn er ekki það nýr að maður eigi von á svona. Ég veit ekki hvort ég var bara svona heppinn, gaurinn svona fínn eða ég svona sætur. En allavega þá skildist mér áður fyrr í símanum að það kostaði ekkert að fá gaurinn á staðinn til að kíkja á bílinn. En svo gæti kostað e-ð að draga hann og framhaldið af því!

Ekk nóg með það, svo stimplaði gaurinn inn hvar væri að finna næsta hótel. Keyrðum svo af stað og hann allur boðinn og búinn, stökk inn á næstu krá og spurðist fyrir fyrir mig, hvar næsta hótel væri þar sem ég færi ekki út um morguninn með auman afturendann eftir verðlagninguna. Fundum þetta fína Garni hótel og þar lagðist maður niður eftir strembið kvöld.

Þvílíkur service-mobil!!!!!!!!!!!! !!!!!!!!!BARA Í LAGI!!!!!!!!!!!

Morguninn eftir var maður mættur klukkan 7:45 niður í umboð og strax allt að gerast. Þar var Dirk Keimer

Image

mættur, annar af þjónustufulltrúunum þennan dag. Hann hjálpaði mér að ýta bílnum inn þaðan sem hann stóð frekar mikið fyrir á planinu. Inn fór hann og hann mældi dæluna aftur til að vera alveg viss. Jújú, ekki um að villast, dælan biluð. Þá var farið í tölvuna og athugað hvar næstu dælu væri að finna. ... .. sér dæla í M5, úhhhhh, ekki gott. Næsta dæla er í.... Hamborg eða fjarkanistan. Bara til á 2 stöðum í Þýskalandi. Fyrsta lagi komin eftir sólarhring (laugardagsmorgun)..... Þó svo að Hamm sé ábyggilega mjög skemmtilegur bær,.. þá langaði mig voðalega lítið að eyða þar allavega 24 tímum í viðbót að bora í nefið. Nasaholurnar voru nefnilega vel hreinar eftir biðina í gærkvöldi.

Ég hafði rekið augun kvöldið áður í annan E39 M5 sem stóð á planinu hjá þeim
Image
mjög smekklegur bíll, alveg þess virði að kíkja á hann ef maður hefði ekki þegar átt einn..... BILAÐAN! Finnið hann á mobbanum, ekinn 82þús, á 21500EUR.

Allavega, ég spurði gaurinn hvort það væri ekki séns að ég fengi að fá dæluna úr þessum bíl og kaupa nýja dælu sem þeir svo settu í hinn! Hann tók nú ekki svo illa í það en sagðist þurfa að spyrja yfirmann sinn. Það var samþykkt af honum svo .. já.. ég bara fór að skoða gamlan 1602 Cabrio sem var þarna og fékk mér kaffi. Á meðan var Holger úti að vinna í því að svissa dælum. Allt gekk þvílíkt smooth og eftir 1 1/2 tíma var ég kominn með rauðu þrumuna mína í gang aftur, tilbúinn til að rokka og róla!

Reikningurinn hljóðaði upp á rétt tæpar 300EUR fyrir vinnu og efni. Ekki svo slæmt fyrir að hafa verið stopp úti í rassgati í langtíburtistan með ENGAN til að redda sér.

Ég verð bara að segja að ég var og er MJÖG impressed yfir þessarri þjónustu. Ég sagði líka við gæjann á X5-inum, hann Wolfgang, að ég væri ekkert smá glaður núna að hafa ekki keypt FIAT :P Hann gat nú ekki annað en brosað.

Bíllinn gekk svo eins og klukka áleiðis upp til Jótlands þar sem meistari Alpina tók á móti mér opnum örmum og hélt mér í góðum félagsskap. Ég sem ætlaði að skella mér heim jafnvel á föstudagskvöldinu. Maður gat nú ekki slegið hendinni á móti frírri gistingu og skemmtilegheitum á Jótlandi svo dvölinni var framlengt fram á sunnudag.

Skrapp reyndar á föstudeginum strax í Schmiedmann til að kaupa það nausynlegasta á gripinn. Eins og athugull félagi hér á kraftinum rak augun í þá fengu strákarnir að mynda græjuna. Þeim fannst þetta eitthvað spes, ég varð frekar hissa. Hélt að þetta væri daglegt brauð þarna, en greinilega ekki. Vildu fá að setja mynd í fréttablaðið sitt. Það var nú lítið mál. En átti ekki von á að vera böstaður á kraftinum í kjölfarið :lol:

Nú ferðin hjá mér endaði svo heima á sunnudeginum. Skellti mér strax út á braut og náði í restina af leikdeginum.

En þvílík leikvika sem þetta var búið að vera. Þetta var magnað og verður ennþá magnaðra næst :wink:

Hlakka til að heyra frá ykkur refsi-bræður. Vona að allt gangi vel. Passið ykkur samt á því hættulegasta þarna úti. Að vakna ekki með klístraða kó***na eftir skandal. Betra að fara bara á staðina með bleiku skiltin og setja dollara í skorur, fara svo heim eins og ég útlistaði vel fyrir ykkur :lol:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Sep 2006 19:51 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
Gott að þetta endaði vel hjá þér sæmi minn, ég vona nú að sjá þig á hringnum eftir ekkert svo marga daga 8)

Við erum mættir á Italiu, nánartiltekið Bologna... vorum í Salzburg í gær og það var bara kúkaveður þar en svaka góðar pizzur... Við erum í þessari svaka fínu götu og sjáum mellurnar í stuttu pilsunum sínum út um gluggann á hótelinu, verst hvað það er búið að taka mörg rönn á þeim, þær eru bara sjúskaðar :lol:

Erum búinir að blasta so fara 4809km !!!

Hér eru nokkrar myndir::::

Nýjasta tækni
Image
Gruppe B 959 :shock:
Image
KKK27
Image
Polizei
Image
fokk ass bling bíll
Image
ALPINA
Image
Meira þannig
Image
e30 ///M3 CABRIO MACCAO BLAU !"$"#$%#&/(%%&$
Image
Svezel
Image
///M
Image
BMW
Image
Vont að vera kranaður!
Image
BMW stjörnumótor, einhver 900hö í 2100rmp
Image
Við tökum pottþétt næsta eurotrip í isettu!
Image
2.3 lítrar -> 300hö
Image
z1 er bara í lagi
Image
850csi nammi namm!
Image
Þarna getur maður fylgst með uppgerð á 528,,, gekk frekar hægt... við vorum að horfa á jóla installa swaybari að framan og hann var ekki close að klára þegar við fórum
Image
Allskonar merki
Image
FOKKEN FOKK ASS FOKK RIGNING
Image

Er að uploada því sem ég tók í dag og pósta því öruglega á eftir bara... Við erum að fara á morgun að heimsækja Lambo, Ferrari og Zonda og síðan verður blastað til Rimini þar sem við ætlum að tjilla allavegana fram yfir helgi :arrow: 8)

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Sep 2006 20:01 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
Ferðin er búinn að vera svona so far... að ég held:

06.09.2006 Reykjavík -> Akureyri
06.09.2006 Akureyri -> Seyðisfjörður
06.09.2006 Seyðisfjörður -> Færeyjar

07.09.2006 Færeyjar -> Noregur

08.09.2006 Noregur -> Hanstholm

09.09.2006 Hanstholm -> Horsens I
09.09.2006 Horsens I -> Horsens II
09.09.2006 Horsens II -> Nürburg (Nürburgring + Nürburgring safnið)

10.09.2006 Nürburgring -> Liége
10.09.2006 Liége -> Maastricht (holland)
10.09.2006 Maastricht-> Liége

11.09.2006 Liége -> SPA

12.09.2006 SPA -> Köln (Sjúmakker go-kart, rönn)

13.09.2006 Köln -> LUX

14.09.2006 LUX -> Sinnsheim

15.09.2006 Sinnsheim -> Stüttgart (Hockenheimsafnið, Porsche safnið + Porsche díler)
15.09.2006 Stüttgart -> Durmstadt


18.09.2006 Durmstadt -> Münich (Alpina)
18.09.2006 Münich -> Salzburg (BMW safnið + BMW díler)

19.09.2006 Salzburg -> Bologna

20.09.2006 Lambo, Ferrari, Zonda -> Rimini

Myndir síðan í dag:

Svaka hús í Austurríki
Image
mjamm
Image
Svaka fallegt
Image
TIGHT
Image
Ítalía víghhh
Image
Svaka fín fjöll
Image
Samskip maintaining á Ítalíu!
Image
jE!
Image
Umferða fucking teppa...
Image

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Sep 2006 20:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Posts: 2232
Location: ókunnug.
Hvernig væri að sýna okkur myndir af svona mellum svo maður lendi ekki í þeirri ógæfu að verða fyrir barðinu á þeim ?

_________________
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 19. Sep 2006 20:13 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
Nja sko.... það er svo dimmt úti... ég reyndi að skjóta á eina samt:

Image


Það var önnur sem var í miklu flottara pilsi en það var einhver að pikka hana upp rétt í þessu :)

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 260 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11 ... 18  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 40 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group