Mercedes Benz E420 1993

Hér skal spjalla um BMW.

Mercedes Benz E420 1993

Postby bebecar » Wed 25. Jun 2003 23:45

Ég var að hjálpa félaga mínum að finna bíl (í þriðja skiptið) og ég sá þennan auglýstan til sölu. Við fórum og prófuðum og þetta er nú þokkalegt tæki.

295 hestöfl!

Hann fær hanná skikkanlegu verði, en ég verð að segja mikið asssskoti eru W124 Benzarnir vel smíðaðir.

Að mínu mati eru þetta síðustu "alvöru" Benz bílarnir (framleiddir til 1995) og ég hef víða lesið að menn telja þetta síðust gömlu benzana sem voru svo solid að mönnum fannst sem þeir væru smíðaðir úr heilli járn blokk!

Allavega var bíllinn vel sprækur (ekki M5 sprækur en samt) og virkaði vel, ótrúlega góð sæti (betri heldur en í M5) og svívirðilega góðar bremsur enda deilir hann bremsum með E500 sem er einmitt einn af draumabílunum mínum.

Það var gaman að prófa þetta tæki og finna hve gífurlegur karaktermunur er á svona bíl og svo M5... Benzinn er ÓTRÚLEGA hljóðlátur, með V8 mótor 32 ventla, 295 hestöfl og nóg af togi og svo auðvitað sjálfskiptur.

Góðir bílar þessir W124 - hefur einhver ykkar reynslu af góðum Benzum?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby benzboy » Thu 26. Jun 2003 00:24

Já já ég er alveg fyllilega sáttur við minn :lol:
Er reyndar ekki alveg sammála því að w124 hafi verið sá síðasti sem þeir lögðu allt í því þetta er mjög víða sagt um w140 (á netinu) og þar sem að vélin hjá mér er innan við 300 kg en bíllin ca 2,2 tonn er nú eitthvað svolítið af stáli í honum :wink:
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

Postby oskard » Thu 26. Jun 2003 00:26

benzboy wrote:Já já ég er alveg fyllilega sáttur við minn :lol:
Er reyndar ekki alveg sammála því að w124 hafi verið sá síðasti sem þeir lögðu allt í því þetta er mjög víða sagt um w140 (á netinu) og þar sem að vélin hjá mér er innan við 300 kg en bíllin ca 2,2 tonn er nú eitthvað svolítið af stáli í honum :wink:



ég er sammála þér ég hef prófað svona 600 sel eins og þú átt nokkuð
vel og þetta eru virkilega massívir og solid bílar, virkilega skemtilegur
og svara vel :)
oskard
 

Postby Haffi » Thu 26. Jun 2003 00:32

Ég hef keyrt svona 600sel ..... reyndar bara einhverja 20 metra :) Þurfti að færa hann... var fyrir mínum hvíta þegar ég keyptann (god bless his soul).

En ég held að það hafi verið mest solid bíll sem ég hef setið í fyrir utan valtara þá er ég soldið secure :)
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Jón Ragnar » Thu 26. Jun 2003 06:46

langar mest í alheimi í svona E420... klikkaðir bílar :D

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby bebecar » Thu 26. Jun 2003 11:09

Það eru þrír E420 bílar til sölu núna.

W140 er reyndar einnaf þessum síðustu solid bílum - enda held ég að ég hafi tekið fram að W124 hafi verið framleiddur til 1996 eins og W140 er það ekki?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Benzari » Thu 26. Jun 2003 13:09

W124 til '95 en W140 til '99
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Thu 26. Jun 2003 13:10

OK, næst síðasti!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby benzboy » Thu 26. Jun 2003 14:04

bebecar wrote:W124 hafi verið framleiddur til 1996 eins og W140 er það ekki?


Hættu framleiðslu á w140 98 eða 99 (ef ég man rétt, allavega ekki 96 en þá fékk hann eitthvað facelift)
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

Postby Jón Ragnar » Thu 26. Jun 2003 17:55

langar í þennan bláa sem er á sölu.. hann er heví fallegur :P bara verst hvað það verður erfitt að sannfæra gamla settið um að leifa mér að fjárfesta :D

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby bebecar » Thu 26. Jun 2003 18:40

Það er einn vínrauður líka til sölu... mér fannst þessi blái pínku sjúskaður.

Svo mæli ég eindregið með ástandsskoðun hjá Ræsi fyrir þessa Benza... hún kostar 7500 kall og er hverrar krónu virði!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Leikmaður » Thu 26. Jun 2003 19:23

...félagi minn á '93 árgerð af 420 bíl sem að er falur vegna íbúðarkaupa!!
Hann flutti hann sjálfur inn í lok seinasta árs, fór sjálfur að versla og þetta er strákur sem er mikill bílaáhugamaður og kaupir ekki hvað sem er.
Þessi bíll er svartur að lit. 17" AMG felgur, leður, topplúga, rafmagn í sætum og allur helsti búnaður sem að fylgir þessum bílum. Svona án gríns þá er eins og það hafi ekki verið setið í sætunum á honum, hann er ótrúlega vel með farinn!! síðan keypti hann á hann ný afturljós á hann (svört og rauð) og silfurlituð stefnuljós!!!
....Bara svona ef einhver hefur áhuga!!
Leikmaður
Getawaybílstjóri
 
Posts: 989
Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Location: Seoul, South-Korea

Postby bebecar » Thu 26. Jun 2003 19:47

Á hvað er hann falur - hinn er líka falur vegna íbúðarkaupa sem við erum að spá í en þetta er samt ekki sami bíllinn.

Og hve mikið ekinn?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby . » Thu 26. Jun 2003 22:12

það er einn svona bíll á bílasölu rétt hjá þar sem ég er að vinna og hann gjörsamlega stoppar ekki! svartur á 17" AMG.....
Bonjour 307 2005
BMW M-Zetor 2002
BMW 740 1996
Taxi 1972

BMW er reizing keppnistæki og bensar eru taxar
300.000 km eru nýju 200.000 km
User avatar
.
Getawaybílstjóri
 
Posts: 878
Joined: Tue 21. Jan 2003 13:43
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Thu 26. Jun 2003 22:39

Ég mundi allt í einu eftir því að ég spyrnti við svona svartann E420 á AMG felgum einu sinni á M5 bílnum...

Hafði hann nokkuð örugglega en það kom mér á óvart hve sprækur benzinn var samt.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests