Ég var að hjálpa félaga mínum að finna bíl (í þriðja skiptið) og ég sá þennan auglýstan til sölu. Við fórum og prófuðum og þetta er nú þokkalegt tæki.
295 hestöfl!
Hann fær hanná skikkanlegu verði, en ég verð að segja mikið asssskoti eru W124 Benzarnir vel smíðaðir.
Að mínu mati eru þetta síðustu "alvöru" Benz bílarnir (framleiddir til 1995) og ég hef víða lesið að menn telja þetta síðust gömlu benzana sem voru svo solid að mönnum fannst sem þeir væru smíðaðir úr heilli járn blokk!
Allavega var bíllinn vel sprækur (ekki M5 sprækur en samt) og virkaði vel, ótrúlega góð sæti (betri heldur en í M5) og svívirðilega góðar bremsur enda deilir hann bremsum með E500 sem er einmitt einn af draumabílunum mínum.
Það var gaman að prófa þetta tæki og finna hve gífurlegur karaktermunur er á svona bíl og svo M5... Benzinn er ÓTRÚLEGA hljóðlátur, með V8 mótor 32 ventla, 295 hestöfl og nóg af togi og svo auðvitað sjálfskiptur.
Góðir bílar þessir W124 - hefur einhver ykkar reynslu af góðum Benzum?
