Hraðahindrunum, sem voru í götunni Hrafnakletti í Borgarnesi, var stolið í nótt, að því er kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld. Þeir sem voru að verki hafa lagt á sig umtalsverða vinnu því þessar tvær hraðahindranir sem stolið var voru hvor um sig skrúfaðar niður með tæplega 40 boltum.
Fram kom í fréttum Sjónvarpsins, að hraðahindranirnar hafi farið í taugarnar á sumum ökumönnum vegna þess að þær hafa þótt háar og brattar.
Stuldurinn hefur verið kærður til lögreglu.
Spurning hvort þetta hafi verið Aron?
Tekið af mbl.is

Ég hef lengi bölvað þessum hraðahindrunum þarna í Borgarnesi 
