Skrýtið olíumál

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Skrýtið olíumál

Postby bragi1 » Mon 28. Aug 2006 13:31

Mér finnst eins og olían á bílnum hjá mér sé orðin svolítið dúpíus. Ég þarf reglulega að setja á hann því hann brennir hana eilítið (ekkert rosalega samt). Ekkert sem ég er að stressa mig yfir, enda er bíllinn keyrður um 200 þús km. En upp á síðkastið finnst mér eins og olían sé orðin þunn eða álíka. Þ.e.a.s þegar ég ætla að tékka á kvarðanum sé ég nánast ekki hvað er mikið á bílnum því það sullast yfir hann allan bara. Og eitt enn: er eitthversskonar yfirfall fyrir olíuna á E36? Það er, flæðir olían eitthversstaðar út ef ég asnaðist kannski til að setja aðeins of mikið? :oops:
User avatar
bragi1
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 299
Joined: Mon 24. Apr 2006 15:37
Location: Hafnarfjörður

Postby Hannsi » Mon 28. Aug 2006 14:34

nei það er ekkert yfir fall

en ertu búinn að tékka hvort það sé olíubrák í vatninnu?

þetta hljómar eins og ónýtheddpakkning sem útskírir afhverju hann er að brenna olíu
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby grettir » Mon 28. Aug 2006 14:49

Hannsi wrote:nei það er ekkert yfir fall

en ertu búinn að tékka hvort það sé olíubrák í vatninnu?

þetta hljómar eins og ónýtheddpakkning sem útskírir afhverju hann er að brenna olíu


Akkúrat það sem ég hugsaði.. hljómar eins og það sé komið kælivatn í olíuna.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 14 guests