Um er að ræða þennan bíl:
Hérna sést gatið - ekkert ógurlegt.
Brettin voru eitthvað ryðguð og ég gaf Aroni Andrew og Co fyrir Dorifto - flest allir aðrir hlutir eru til fyrir utan mögulega eitthvað smávægilegt. Fram og afturrúða eru báðar til, allir hlutir í vélarrými eru til og svo framvegis.
Taka skal fram að ég er þriðji eigandinn af þessum ágætis bíl.
Árgerðin er 1990 - man ekki í hvaða mánuði.
Vél og vélarsalur & ástand:
Vélin er ekin rúmlega 220.000km.
Ástandið tel ég vera mjög gott - alltaf smurður á réttum tíma í minni eigu auk þess lét ég ventlastilla hann 2x (frá 188.000 km, það var staðan þegar ég fékk hann frá Þýskalandi).
Í bílnum er nýlegur
vatnslás & vatnsdæla - öruglega skipt um hann í ca. 210þúsundum.
Nýupptekinn altarnator og notaður startari frá ///M (Óskari). Ástand hans óvitað, en hann virkar í bílnum núna.
Tímareim í 192.000km.
Innrétting & Ástand:
Um er að ræða grátt pluss með sportsætum en ekkert bucket-in-da-back.
Komin er smá rifa í bilstjórasætið og hafa sætin greinilega ekki verið í bílnum frá upphafi miðað við ástand.
Það varð óhapp í bílnum og kom sígarettugat á bekkinn afturí.
Hurðarspjöldin eru mjög heilleg.
Miðjustokkurinn er með þessum klassíska kassettuhaldara og er hann í fínu ástandi - öll kassettuhólf virka og get ég látið Micheal Jackson kassettu fylgja með

.
Engar græjur eru því miður í bílnum (var búinn að "uppfæra" alla hátalara og spilara og ég seldi þetta allt sitt í hvoru lagi).
Hanskahólfið er ekki fast að neðan og er því leiðinlegt að opna og loka því.
Fallegur límmiði sem sést þegar hanskahólfið er opnað fylgir og stendur á honum: "Þegar ekið er í gegnum hættulegt svæði, skal farþegi bílsins setja höfuð í klof ökumanns". Þessi miði er vitaskuld á þýsku.
Undirvagn & ástand:
Komið er stærðarinnar gat á aftasta kút í pústi - hljóðið orðið hávært og leiðinlegt. - henti pústinu.
Bíllinn er með coilovers að hætti Gunna og stebba í GSTuning.
Það er einhver djöfullinn að drifinu eða hjólalegu að aftan og heyrist leiðinlegt hljóð - svona eins og það sé eitthvað að dragast með bílnum.
Demparar eru í la-la ástandi - enda var meiningin hjá mér að uppfæra þá með coilovers seinna meir.
Kemur smá víbríngur í stýri þegar ég bremsa - en það er spurning hvort það sé ekki orginal í E30?
Ryð/Boddí og ástand:
Bíllinn er Sterlingsilber Metallic. (Kannski svolítið camouflage)
Bíllinn er með Hartge kitti.
Felgurnar eru seldar.
Annar kastarinn virkar ekki - gæti verið farin pera eða eitthvað annað, hef ekki athugað það.
Á bílnum eru smókuð framljós.
Bílnum fylgir strut-brace að framan.
Það eru komnar nokkrar ryðbólur í bílstjórahurðina og smá ryð í skemmdina sem ég varð fyrir á bílnum (En það er búið að laga beygluna).
Núverandi ástand bílsins:
Ég ætlaði að vera ógeðslega kúl og svalur að gera og græja (einsog allir á kraftinum reyndar

bílinn fyrir næsta sumar og hef rifið allt innan úr bílnum (NEMA MÆLABORÐIÐ). Hurðarspjöld, sæti, ljós að aftan og allt aftan á bílnum, kitt, stuðarar og "CHROME" listarnir hafa verið fjarlægðir af bílnum. Og húddið líka reyndar. Annars hef ég látið allt þetta "flókna" vera. Ég er búinn að pússa eitthvað og spartla helminginn af bílnum. Það er ryðgat aftan á bílnum þar sem rafgeymirinn er - fyrir færann mann er einfalt að laga það.
Núna kemur eitthvað allir bíða eftir og það er ástæða sölu:
Ég fór ALLT of geyst í þetta project og á litla peninga og get ekki haldið aðstöðu minni lengur. Ég er hinsvegar að reyna koma bílnum fyrir einhverstaðar þar sem ég þarf ekki að borga enda get ég ekkert unnið í bílnum.
Þarf að losna við hann sem allra allra fyrst.
Verð: Tilboð
Endilega hringiði frekar í mig til þess að fá upplýsingar.
6622231
Þráðurinn um bílinn sjálfann.
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=10325[/img]