Það skal undir öllum kringumstæðum forðast að gefa E32 start með köpplum !!! Það sleppur að gefa start með svona start tæki en það á helst að taka geymirnn úr og hlað'ann

Ástæðan er sú að það er frekar mikið af tölvudóti í þessum bílum og það er mjög viðhvæmt fyrir starti frá öðrum bíl.
Þetta fékk ég að heyra frá bifvélavirkja sem vann hjá gamla BMW umboðinu og er mjög reynslumikill í gömlu bimmunum og er einn fremsti bílrafvirki landsins. Hann vann í 7-8 ár hjá umboðinu og eitt af þeim var í BMW verkstæði út í Þýskalandi og svo vann hann eitthvað hjá BMW í Suður-Afríku.
Eeennn, það stendur í manualinum í bílnum mínum að ef þú ætlar að gefa start með köplum í gegnum plúsinn í vélarrúminu(þá á - að vera tengdur í eitthvern málm á vélinni og + í +) þá á að hafa sem flest rafmagnstæki í bílnum í kveikt þ.e.a.s. miðstöðin á full blast o.s.frv. svo að það sé sem minnst álag á rafkerfi bílsins.