Ég fór úr 2.93 í 3.23 og get alveg mælt með því. Þú finnur ágætan mun á hröðun og ert ekkert að hækka snúninginn neitt svakalega á þjóðvegaakstri. Þú mátt búast við ca. 200-400 rpm hærri snúning um og yfir 100km hraða. Reiknivélin hans Svezels sýnir þér það betur og tilvalið að nota hana til að fikta sig áfram með hraða og snúning við mismunandi drifhlutföll.
Þú getur líka nokkuð auðveldlega útbúið Excel skjal sem sýnir þér RPM í hverjum gír m.v. mismunandi drifhlutföll. Ég útbjó svoleiðis skjal þegar ég var að skoða þetta og notaði skjal frá Óskari sem template, getur prófað að leita að því hér (skjalinu hans Óskars, ég er því miður búinn að týna mínu skjali

)
Það eru líklega sömu gírhlutföll í 323i og 328i. Í 328i eru þau: 1gír 4,2 - 2gír 2,49 - 3gír 1,66 - 4gír 1,24 - 5gír 1. Þú getur notað þessi hlutföll með reiknivélinni til að sjá hvar gírarnir enda m.v. ólík drifhlutföll. Það er eiginlega það sem skiptir mestu máli við innanbæjarsnatt, þarft við sumar aðstæður að vera í hærri gír en venjulega, stundum er þægilegra að keyra í 3. gír þar sem maður var áður í 2. gír.
En semsagt bottomlænið er að ég get alveg mælt með 3.23 hjá þér.

Skoðaðu þetta svoldið hvar hver gír endar í 2.93 vs. 3.23 eða kannski frekar hvaða hraða bíllinn er í hverjum gír á "eðlilegum/þægilegum" snúning í innanbæjarsnatti, það fannst mér amk. vera aðalbreytingin, þarft ekki að hafa áhyggjur af 100km/klst krúsi.
