Bankaviðskipti?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Banki?

KBbanki
18
27%
Glitnir
11
17%
Landsbankinn
21
32%
Sparisjóðurinn
16
24%
 
Total votes : 66

Bankaviðskipti?

Postby ValliFudd » Mon 10. Jul 2006 15:02

Ég er óánægður hjá núverandi banka og er að fara að færa mig.. Var svona að spá smá, hvaða banka eru menn sáttastir við hérna? :) Hef verið að fá mjög lélega þjónustu og attitude hjá núverandi banka og er kominn með nóg :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby bimmer » Mon 10. Jul 2006 15:58

Hver er þín skilgreining á lélegri þjónustu og attitudi?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Bankaviðskipti?

Postby Einsii » Mon 10. Jul 2006 16:41

ValliFudd wrote:Ég er óánægður hjá núverandi banka og er að fara að færa mig.. Var svona að spá smá, hvaða banka eru menn sáttastir við hérna? :) Hef verið að fá mjög lélega þjónustu og attitude hjá núverandi banka og er kominn með nóg :)

Galdurinn að góðum bankaviðskiptum er að þekkja einhvern háttsettann í allavega einu útibúi og svo sér hann bara um öll manns mál :)
Gott að koma utan af landi þar sem menn eru mikið meira líbó.. ;)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby ValliFudd » Mon 10. Jul 2006 16:46

bimmer wrote:Hver er þín skilgreining á lélegri þjónustu og attitudi?


Í flest öll skipti sem maður gengur inn þarf maður að bíða í 10-20 mín lágmark eftir þjónustufulltrúa.. þó maður standi einn inní bankanum. En það er eitthvað sem ég er ekkert að stressa mig mikið yfir :) Ég ætla reyndar ekkert að vera að tala um hvaða banki þetta er.

En svo vantaði mig smá pening og bað um hækkun á heimild, sem er nú venjulega ekkert mál.. Ég var ekki yfir á reikningnum eða neitt samkvæmt heimabanka, hringdi inn og fékk þau svör að það væri ekki sjens því ég væri yfir á reikningnum. Ég var ekki með neina stæla eða neitt, bara útskýrði að heimabankinn segði annað, þá fékk ég bara massa attitude "JÁ ÞETTA ER BARA SVONA!!"... :shock:

Æji bara alot of little things bothering me... Margt smátt gerir eitt stórt, er búinn að vera smá pirraður útí litla hluti undanfarið en ekkert verið að gera neitt mál útaf því en þetta síðasta bara fékk mig til að nenna þessu ekki lengur.. Fæ misjöfn svör frá fólki og bara vil ekki lengur vera þarna... Svo ég var bara að gá hvar fólki leið best og svona. En maður hefur heyrt slæmar sögur af öllum bönkum en maður veit nú oftast ekki hvað býr að baki. Bankinn sem ég er í er örugglega fínn banki, ég var með frááábæran þjónustufulltrúa í honum fyrir 1-2 árum.. en hún fékk stöðuhækkun fyrir ári og getur ekki þjónustað mig lengur. Og eftir það fór allt til fjandans :( Svo nú er komið að því að finna annan banka og annan þjónustufulltrúa :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Bankaviðskipti?

Postby ValliFudd » Mon 10. Jul 2006 16:48

Einsii wrote:
ValliFudd wrote:Ég er óánægður hjá núverandi banka og er að fara að færa mig.. Var svona að spá smá, hvaða banka eru menn sáttastir við hérna? :) Hef verið að fá mjög lélega þjónustu og attitude hjá núverandi banka og er kominn með nóg :)

Galdurinn að góðum bankaviðskiptum er að þekkja einhvern háttsettann í allavega einu útibúi og svo sér hann bara um öll manns mál :)
Gott að koma utan af landi þar sem menn eru mikið meira líbó.. ;)


rétt er það, minn síðasti þjónustufulltrúi sá um ÖLL mín fjármál :) ég hringdi bara "hæ þetta er valli, áttu pening handa mér?" og þá hækkaði heimildin eða það sem við átti hehehe... Var hættur að kynna mig með fullu nafni og kt. :wink:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Bankaviðskipti?

Postby Hannsi » Mon 10. Jul 2006 18:42

Einsii wrote:
ValliFudd wrote:Ég er óánægður hjá núverandi banka og er að fara að færa mig.. Var svona að spá smá, hvaða banka eru menn sáttastir við hérna? :) Hef verið að fá mjög lélega þjónustu og attitude hjá núverandi banka og er kominn með nóg :)

Galdurinn að góðum bankaviðskiptum er að þekkja einhvern háttsettann í allavega einu útibúi og svo sér hann bara um öll manns mál :)
Gott að koma utan af landi þar sem menn eru mikið meira líbó.. ;)

hehe á 2 frænkur sem vinna hjá Glitni önnur er útibústjóri og hin er líka útibústjóri :D Þannig ég er hjá Glitni :P :lol:
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby Benzari » Mon 10. Jul 2006 19:08

Sparisjóður Kópavogs frá upphafi (m.a.s. sama bók ennþá :D )

Hef ekki séð neina ástæðu til að leita annað.
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby krullih » Mon 10. Jul 2006 19:21

Er hjá Glitni núna... aldrei fengið jafn lágkúrulega þjónustu, stæla og vanvirðing til míns vegna aldurs (unglinga-syndromið)

Var hjá isb í keflavík áður og fékk massa góða þjónustu, hérna í HFJ virðast plebbar safnast saman...hef mikið verið að spá í kb banka...
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Postby Kristjan » Mon 10. Jul 2006 19:52

Ég er hjá KBBanka og þeir eru mjög öflugir í að bjóða mér kurteisilega að fara á hausinn. Svo mér finnst ekkert að því að bankar banni fólki að fá hærri yfirdrátt.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Hannsi » Mon 10. Jul 2006 19:54

hahah :lol:

minn banki bannar mér það ekki ég veit bara mín takmörk :)
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby ValliFudd » Mon 10. Jul 2006 19:56

Kristjan wrote:Ég er hjá KBBanka og þeir eru mjög öflugir í að bjóða mér kurteisilega að fara á hausinn. Svo mér finnst ekkert að því að bankar banni fólki að fá hærri yfirdrátt.


hehe.. nei það var ekki það... ég hefði alveg samþykkt það að fá nei við yfirdrætti :) en bara HVERNIG hún orðaði það og lét.. með stæla og rugl við viðskiptavininn.. það er það sem ég fíla ekki :) Því ég var hinn rólegasti


EDIT: og ég er þá ekki að tala um KBbanka :wink:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby bragi1 » Mon 10. Jul 2006 21:09

Var hjá Íslandsbanka á Ísafirði, þar er liðið nánast ekkert nema almennilegheitinn. Flutti í Hafnarfjörðinn og fór þá bara í Glitni þar. Í mínum viðskiptum þar líður mér pínulítið eins og ég eigi ekki að vera þess virði að vera í viðskiptum við þá.
User avatar
bragi1
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 299
Joined: Mon 24. Apr 2006 15:37
Location: Hafnarfjörður

Postby ValliFudd » Mon 10. Jul 2006 21:19

mér finnst það stundum svoleiðis hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum.. að þeir séu að gera okkur greiða með að hafa fyrir því að selja okkur þjónustu og vörur :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby IngóJP » Mon 10. Jul 2006 21:21

Ég er hjá Landsbankanum og ég er alls ekki sáttur......

Fæ allt sem ég bið um góða vexti af öllu öllu alltaf reddað

en á einni hæðinni leynist kona sem kom mér í heiminn og

dæmi ég.. er að versla föt... hún hringir og spyr hvar ég er ef ég er í smáralind eða what ever þá liggur hún á reikningnum... :lol:

Reyndar með mínu leyfi en þetta getur verið bögg
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby Schulii » Mon 10. Jul 2006 21:37

Ég er hjá Landsbankanum í Mjóddinni og er mjög mjög ánægður. Reyndar eins og einn orðaði það svo skemmtilega eru þau alveg dugleg að hjálpa mér að eyða miklum peningum ef það er það sem ég vill. Hinsvegar veit ég að það eru breyttar áherslur í bönkum í dag. Það eru að koma skilaboð til þeirra um að reyna að draga úr útlánum til að sporna við þenslu/verðbólgu. En málið er að við erum orðnir eins og ofaldir grísir sem finnst allt ómögulegt og handónýtt ef við getum ekki fengið að skuldsetja okkur í kaf :lol:
Þarna er ég samt ekki að skjóta á þann sem stofnaði þennan þráð, auðvitað á maður að fá kurteis og almennileg svör og allt það. Þetta eiga auðvitað að vera viðskipti sem allir njóta góðs af. Ég kannast nefnilega alveg við það að líða þannig sjálfum að vera bara rosa þakklátur bankanum mínum fyrir að hann skuli vera svona almennilegur að græða svona mikið á mér með VISA, yfirdrætti, lánum, debetkortafærslum, lífeyrissjóði, greiðsluþjónustu og fl. og fl. Og er svo bara alveg eins og kleina þegar ég kem að spyrja þá kurteisilega hvort það sé séns að ég megi fá eitthvað svo þau geti grætt meira af mér. :lol:
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 39 guests