force` wrote:
Minnihlutahópur eða ekki, mér finnst það frekar í meirihluta að fólk sé lélegt í stafsetningu eða málfari.
Þó svo að allir geri hlutinn vitlaust, þá gerir það hann ekki réttan.
force` wrote:
Ekki láta þetta fara svona í taugarnar á ykkur strákar, það eru bara ekki allir fullkomnir, en það vilja flestir vel

Ef allir hugsuðu svona þá værum við enn að tína rætur epli og banana, svæfum uppi í tré og byggjum við miðbaug.
Það er allt í lagi að hafa metnað til að gera hlutina vel. Í það minnsta ekki illa!
Ef það er ekkert sagt við svona hlutum, þá heldur fólk að það sé allt í lagi og eðlilegt. Það þarf að benda fólki á hlutina (ekki bara þessum sem setti þetta inn) heldur hinum í kring líka, að þetta er ekki eins og hlutirnir eigi að vera. Ef allir nenna ekki að gera neitt, eða gera ekkert til að vera "næs" þá endar þetta í einni vitleysu.
Eins og góður maður sagði hér á kraftinum: "Stundum verður maður bara að segja hlutina eins og þeir eru" hversu erfitt sem það kann að vera. Það hjálpar ekki að vera alltaf næs og fyrirgefa allt. EN það verður líka að gæta hófs og fara ekki út í aðdróttanir eða leiðindi. En kurteisislegar ábendingar og málefnalegar umræður eru sjálfsagðar.. nauðsynlegar að mínu mati, í stað þess að þegja og segja ekki neitt.
En ég er algjörlega hlynntur því að ef fólk er fatlað og getur ekki að hlutum gert, þá ber að taka tillit til þess. Ef e-r hér er heyrnarlaus og getur ekki skrifað rétt mál vegna þess, þá finnst mér sjálfsagt að taka tillit til þess. En ég stórefa að það sé vandamálið hérna.
Í mínum augum er vandamálið hérna að það er verið að skrifa viljandi vitlaust inn orð, hvort sem það er vankunnátta, skeytingarleysi, viðkomandi finnst það töff eða hvaða ástæður sem eru þar að baki. Ásamt því að stafsetningin og orðasamsetningin er alveg út í hróa hött
.. Þúst
... Einka
eru ekki stafsetningavillur. Þetta er bara kolvitlaust og "meikar ekki sens" í íslensku málfari.