bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 08. Jun 2025 17:24

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 57 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 12:06 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2004 11:37
Posts: 721
Wow.. og þið kvartið undan L2C..
Þið eruð búnnir að rústa þræðinum fyrir drengnum, útaf stafsetningarvillum?
Það skilst alveg hvað hann skrifar, og þó þetta fari í taugarnar á ykkur þá er ekki þar með sagt að hann, eða aðrir for that matter, kunni að meta íslenskukennslu þegar hann er að reyna að fá ykkar álit og ábendingar varðandi það að hann fái ekki bílinn greiddann úr tryggingum að fullu kaupverði. Hvar í ósköpunum sjáiði þarna að hann sé að biðja um að það sé verið að rífast við hann hvernig maður skrifar einhver (eitthver) minnir mig að hann hafi skrifað (þarsem það er nú búið að eyða út því sem hann sagði í upphaflegum pósti sínum).

Get a grip, þó þetta pirri ykkur þá trúi ég ekki að þetta sé það eina í lífinu sem að fer í taugarnar á ykkur. Við getum ekki lagað allann heiminn, það er staðreynd.

_________________
There's rear wheel drive, and there's wrong wheel drive......
SheDevil
Chevy Suburban 1981 í skúrnum
Chevy Suburban 1982 hættur í löggunni
E32 750il 1991 farinn
E32 750il 1990 seldur
E32 750il 1994 stolið
E23 735i 1984 pressaður

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 12:22 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 17. Jan 2006 22:22
Posts: 93
Location: 105
Hvernig nennið þið að þræta um þetta?????
eru menn geðveikir?

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 12:29 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Er það ekki eðlilegasti hlutur í heimi að við hinir sem störtuðum ekki þessum þráði látum í ljós okkar skoðanir líka??

Hvað með það þó að við kvörtum yfir því. Ef það pirrar viðkomandi, þá verður hann bara að gera eitthvað í því. Við þurfum ekki að taka það á okkur, að hann komi þessu vitlaust frá sér. Af hverju á meirihlutinn (sem hefur rétt fyrir sér) að þola minnihlutann (sem hefur rangt fyrir sér)??

Ég er fyllilega sammála því að ömurleg íslenska er eitthvað sem viðkomandi ætti að reyna að bæta. Ég hef skilning á því að sumir eru misvel í stakk búnir til að takast á við þetta, en margt sem er þarna skrifað er ekki lesblindu að kenna heldur öðru sem hægt er að laga. Lesblindur maður skrifar ekki alltaf sömu mistökin aftur og aftur.. ..

En svo er annað mál að það er leiðinlegt þegar þræðir þróast út í off-topic dæmi, það er aldrei gaman. Það er lítið mál að taka off-topic-ið út ef þess er óskað og það sett í nýjan þráð.

Annars var það hann sem rústaði þráðnum út af íslenskuvillum, þetta er miklu meira en stafsetningavillur.

Það er dagsatt að við getum ekki bætt allan heiminn... en við getum bætt hann! Er þá ekki tilvalið að bæta heiminn í stað þess að horfa upp á hann versna og gera ekkert?

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 12:36 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Posts: 868
Location: Kópavogur
Á maður samt ekki bara að senda PM til viðkomandi þegar að svona fer í taugarnar á manni? Frekar en að skemma þráðinn hans?

That's just my two cents

_________________
e36 316 Touring 1998
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 12:41 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2004 11:37
Posts: 721
Eru þá ekki simple ábendingar um hvernig hann lagfærir þetta ekki nóg, ekki 2 bls af rifrildi um hversu fullkomna stafsetningu og íslensku fólk verður að skrifa til að í raun og veru mega pósta hingað inn?

Alveg sjálfsagt að benda fólki á villur, sama hvort það séu skrif á spjallborð eins og þessu eða bara almennt, en mér finnst þessi þráður vera til skammar.

Ekki fyrir bmwkraftinn sem slíkann, heldur fyrir þá sem að stóðu í þessu rifrildi, til þess eins að kæfa það sem að drengurinn var að velta fyrir sér og í raun og veru kom hingað inn með þetta mál til að fá ykkar ábendingar. Ég bara sé voðafáar ábendingar um það hvernig hann ætti að snúa sér í þessu eða hvort að tryggingafélögin mega þetta fyrir það fyrsta, og hefði þessi þráður getað verið mikil hjálp fyrir marga fleirri sem að lenda í því að tryggingafélögin séu að reyna að snuða þá um að greiða fullt verð þess bíls er lendir í tjóni.

Ég veit vel að margir lenda í þessu, en fólk steinþegir bara yfir þessu því að það telur það vera sín mistök að hafa etv greitt svona mikið fyrir bílinn en skítt með það.. Þessi þráður hefði getað verið snilld.

Svo svona smá ábending, þið moddar hérna vitið nú alveg að þið getið moddað pósta frá fólki, og ef þetta er gersamlega að kála fólki hérna að sjá stafsetningarvillur, þá getið þið einfaldlega lagað þær til þess að góðir þræðir eins og þessi hefði getað orðið, hreinlega drukkni ekki í stafsetningar og íslensku rifrildum.

_________________
There's rear wheel drive, and there's wrong wheel drive......
SheDevil
Chevy Suburban 1981 í skúrnum
Chevy Suburban 1982 hættur í löggunni
E32 750il 1991 farinn
E32 750il 1990 seldur
E32 750il 1994 stolið
E23 735i 1984 pressaður

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 12:43 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Mon 10. Nov 2003 01:11
Posts: 495
Location: Honolulu, Hawaii
fart wrote:
Fáðu einhvern til að hjálpa þér með þetta, það eru týpur til í öllum fjölskildum sem hafa staðið í svona málum, eða eru sérstaklega lagnir við að semja.

kkv,

Sven.

Fjölskyldum :wink:

_________________
E90 320i '06

birkire wrote:
4 door þristar... LEIM

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 12:44 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Já en þráðurinn er upphaflega skemmdur með þessu málfari :) Eins og um daginn þegar annað var sett hér inn, þá skildist ekki hvað hann var að tala um. Það hlýtur nú að vera lágmarkskrafa að það sé hægt að skilja það sem er verið að tala um þegar e-u er póstað hér inn og málfarið á þann veg að það sé eðlilegt málfar, þó svo að stöku stafsetningar og eða innsláttarvillur læðist þar inn.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 12:51 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2004 11:37
Posts: 721
Vandamálið er bara það að sumt fólk getur í raun og veru ekkert gert að því þó að það skrifi ílla, og skrifar orðin eins og það heyrir þau, svipað og með fólk sem er heyrnalaust. Eða raðar orðum ílla osfrv, ég veit að það eru lágmark 3 heyrnalausir sem að fylgjast með hérna, og ég þori að veðja við þig að þeir eru ekki að pósta hérna inn því að þeir í raun skrifa allt öðruvísi en við heyrandi. Þeir í raun skrifa táknmál.
Það skilst þegar það er lesið, en þeir eru sennilegast ekkert í því að kynna sig sem heyrnalausann. Það er einn sem er duglegur að pósta á l2c, þegar hann fór að pósta þarna fyrst voru allir að rífa hann í sig fyrir lélega íslensku, en enginn pældi neitt lengra og datt ekki í hug að hann væri heyrnalaus, og ég er bara ekkert viss um að ef ég væri heyrnalaus að ég nennti að kynna það fyrir öllum í byrjum hvers þráðar eða póstar sem ég myndi pósta inn.
Svo er það líka annað, að það eru sumir sem að voru bara í eintómu tjóni í gegnum skóla og lærðu ekkert, og spáðu ekkert í þessu en kanski langar að taka þátt hérna. Fólk sem er skriðið í tvítugt lærir ekki góða stafsetningu eða íslenskt málfar á einum degi.
Minnihlutahópur eða ekki, mér finnst það frekar í meirihluta að fólk sé lélegt í stafsetningu eða málfari.
Ekki láta þetta fara svona í taugarnar á ykkur strákar, það eru bara ekki allir fullkomnir, en það vilja flestir vel :)

_________________
There's rear wheel drive, and there's wrong wheel drive......
SheDevil
Chevy Suburban 1981 í skúrnum
Chevy Suburban 1982 hættur í löggunni
E32 750il 1991 farinn
E32 750il 1990 seldur
E32 750il 1994 stolið
E23 735i 1984 pressaður

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 12:57 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
force` wrote:
Eru þá ekki simple ábendingar um hvernig hann lagfærir þetta ekki nóg, ekki 2 bls af rifrildi um hversu fullkomna stafsetningu og íslensku fólk verður að skrifa til að í raun og veru mega pósta hingað inn?

Alveg sjálfsagt að benda fólki á villur, sama hvort það séu skrif á spjallborð eins og þessu eða bara almennt, en mér finnst þessi þráður vera til skammar.

Ekki fyrir bmwkraftinn sem slíkann, heldur fyrir þá sem að stóðu í þessu rifrildi, til þess eins að kæfa það sem að drengurinn var að velta fyrir sér og í raun og veru kom hingað inn með þetta mál til að fá ykkar ábendingar. Ég bara sé voðafáar ábendingar um það hvernig hann ætti að snúa sér í þessu eða hvort að tryggingafélögin mega þetta fyrir það fyrsta, og hefði þessi þráður getað verið mikil hjálp fyrir marga fleirri sem að lenda í því að tryggingafélögin séu að reyna að snuða þá um að greiða fullt verð þess bíls er lendir í tjóni.

Ég veit vel að margir lenda í þessu, en fólk steinþegir bara yfir þessu því að það telur það vera sín mistök að hafa etv greitt svona mikið fyrir bílinn en skítt með það.. Þessi þráður hefði getað verið snilld.

Svo svona smá ábending, þið moddar hérna vitið nú alveg að þið getið moddað pósta frá fólki, og ef þetta er gersamlega að kála fólki hérna að sjá stafsetningarvillur, þá getið þið einfaldlega lagað þær til þess að góðir þræðir eins og þessi hefði getað orðið, hreinlega drukkni ekki í stafsetningar og íslensku rifrildum.

Mér fannst nú einmitt mjög gott svarið hans "Farts" við spurningu hans.

Þess má geta að það stendur ekkert í upphafi þráðsins lengur sem hægt er að svara. Þegar ég skrifaði fyrsta innlegg mitt hér inn, þá var búið að taka allt út og nú stendur bara einn punktur í fyrirsögninni eftir.

Það er voðalega erfitt fyrir okkur að svara e-u sem við höfum aldrei séð. Þessvegna er þetta líka svo til orðið löglegt off-topic, því það er engin fyrirsögn eða kjarni í þessu.

Það er heldur ekki verið að tala um stafsetningarvillur eða innsláttarvillur. Það er verið að tala um að tala rétt mál, ekki slangur eða viljandi rangt skrifað mál. Þetta er miklu meira en venjulegar villur. Venjulegar villur hér á kraftinum fá laaaangoftast að fljóta með án þess að nokkuð sé sagt við þeim.

Það að Admin hér á kraftinum taki sig til og breyti skrifum viðkomandi er út í hött og kæmi aldrei til greina. Það er möguleiki að einstaka augljósum mjög stingandi stafsetningavillum sé breytt, en þegar þetta er svona mikið og bjagað, þá yrði textinn gjörbreyttur og algjörlega óviðeigandi að fikta í honum. Ég væri ekki ánægður ef innleggin mín væru tekin og skrifuð upp á nýtt. Fyrir utan að það er ærið verk fyrir sjórnendur að taka upp það verkefni að lesa yfir kraftinn og leiðrétta hann.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 13:13 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
force` wrote:
Minnihlutahópur eða ekki, mér finnst það frekar í meirihluta að fólk sé lélegt í stafsetningu eða málfari.

Þó svo að allir geri hlutinn vitlaust, þá gerir það hann ekki réttan.

force` wrote:
Ekki láta þetta fara svona í taugarnar á ykkur strákar, það eru bara ekki allir fullkomnir, en það vilja flestir vel :)

Ef allir hugsuðu svona þá værum við enn að tína rætur epli og banana, svæfum uppi í tré og byggjum við miðbaug.

Það er allt í lagi að hafa metnað til að gera hlutina vel. Í það minnsta ekki illa!

Ef það er ekkert sagt við svona hlutum, þá heldur fólk að það sé allt í lagi og eðlilegt. Það þarf að benda fólki á hlutina (ekki bara þessum sem setti þetta inn) heldur hinum í kring líka, að þetta er ekki eins og hlutirnir eigi að vera. Ef allir nenna ekki að gera neitt, eða gera ekkert til að vera "næs" þá endar þetta í einni vitleysu.

Eins og góður maður sagði hér á kraftinum: "Stundum verður maður bara að segja hlutina eins og þeir eru" hversu erfitt sem það kann að vera. Það hjálpar ekki að vera alltaf næs og fyrirgefa allt. EN það verður líka að gæta hófs og fara ekki út í aðdróttanir eða leiðindi. En kurteisislegar ábendingar og málefnalegar umræður eru sjálfsagðar.. nauðsynlegar að mínu mati, í stað þess að þegja og segja ekki neitt.

En ég er algjörlega hlynntur því að ef fólk er fatlað og getur ekki að hlutum gert, þá ber að taka tillit til þess. Ef e-r hér er heyrnarlaus og getur ekki skrifað rétt mál vegna þess, þá finnst mér sjálfsagt að taka tillit til þess. En ég stórefa að það sé vandamálið hérna.

Í mínum augum er vandamálið hérna að það er verið að skrifa viljandi vitlaust inn orð, hvort sem það er vankunnátta, skeytingarleysi, viðkomandi finnst það töff eða hvaða ástæður sem eru þar að baki. Ásamt því að stafsetningin og orðasamsetningin er alveg út í hróa hött

.. Þúst
... Einka

eru ekki stafsetningavillur. Þetta er bara kolvitlaust og "meikar ekki sens" í íslensku málfari.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 14:04 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Tue 03. May 2005 14:55
Posts: 704
Location: Keflavik
saemi wrote:

Málið snýst um það að íslensk tunga er okkar arfleið og er það sem einkennir þjóð okkar. Flóknara er það ekki, því þykir það óásættanlegt að fólk sé að skemma hana vísvitandi.

Mun ég nú vitna í Snorra Hjartarson eitt af okkar ástkæru ljóðskáldum, "þjóð, menning tunga þrenning sönn og ein"

Tekið úr fyrirlestri Hallfríðar Þórarinsdt. Mannfr. wrote:
Eins og ég sagði í upphafi, hefur það verið viðtekin venja að halda því fram að íslensk tunga sé það menningarlega einkenni sem geri Íslendinga að þjóð og aðgreini þá frá öðrum þjóðum. Þessar hugmyndir ganga þvert á alla flokkadrætti í pólitísku landslagi þjóðarinnar. M.ö.o enginn pólitískur flokkur sem hefur sett sig upp á móti þessum hugmyndum eða íslenskri málpólitík yfirleitt.

Flestir Íslendingar eru aldir upp í þeim hugsunarhætti frá fyrstu tíð að það sé nánast heilög skylda þeirra sem sannra Íslendinga að "hlú að tungunni," "leggja rækt við málið" beygja samkvæmt orðanna hljóðan og láta alls ekki hanka sig á einhverri "heimskulegri" þágufallssýki, eins og því að segja "mér dreymdi að honum langaði að hitta faðir hennar" eða láta útúr sér einhverjar enn verri ambögur. Slíkar ambögur eru gjarnan skrifaðar á reikning vitsmunalegra takmarkana mælandans, því það að tala lýtalausa og "hreina" íslensku hefur jafnan verið lagt að jöfnu við miklar gáfur.

Ríkjandi hugmynd í þessu máluppeldi hefur verið að líta á útlend orð eða s.k. slettur sem ögrun við hreinleika íslenskrar tungu og fólki innprentað að orð, sem ekki hafa öðlast þegnrétt í íslensku máli eins og það heitir á fagmáli, hafi spillandi eða mengandi áhrif á móðurmálið. Mörgum finnst sem "vegið sé að tungunni" þegar notuð eru útlend orð, eða orð sem ekki eru óyggjandi af íslenskum málstofni, jafnvel þó þau hafi verið til í talmáli í áratuga og árhundraða vís.

Restina er hægt að lesa hér http://kistan.is/prent.asp?n=494&f=3&u=28

_________________
TXIXXPX XXXTXXX X7X

German Disel power :)

E32 735i '91 SELDUR
Black on Black

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 14:04 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Tue 03. May 2005 14:55
Posts: 704
Location: Keflavik
Takkinn festist nú bara niðri en allt sem þrent er... :lol:

_________________
TXIXXPX XXXTXXX X7X

German Disel power :)

E32 735i '91 SELDUR
Black on Black

Image

Last edited by X-ray on Thu 22. Jun 2006 14:07, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 14:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Posts: 1908
Location: Akureyri
óþarfi að segja manni þetta þrisvar!! :lol:

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 14:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
freysi wrote:
fart wrote:
Fáðu einhvern til að hjálpa þér með þetta, það eru týpur til í öllum fjölskildum sem hafa staðið í svona málum, eða eru sérstaklega lagnir við að semja.

kkv,

Sven.

Fjölskyldum :wink:

Akkurat minn stærsti löstur í íslenskuskrifum er "Y", venjulega er ég með Y-sýki.. sjaldnar að ég klikki á þessum enda, en takk fyrir leiðréttinguna.

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 22. Jun 2006 15:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
jæja kannski back on topic :lol:

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 57 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group