Ég ætlaði nú ekki að starta WW3..
OT:Vinsamleg ábending til þeirra sem eru lélegir í stafsetningu að endilega reyna að laga það þeirra vegna, ekki mín vegna. Ef þið þurfið einhverntíman að skrifa bréf til einhvers sem þarf að taka mark á ykkur þá verður það að vera vel skrifað.
Ef maður venur sig á að dúndra öllu á netið án þess að spá í þokkalega rétta íslensku þá endar maður á því að hætta að kunna hana. ÉG held að oftast sé þetta meira ávani en kunnáttuleysi.
Back on topic. Gangi þér vel með tryggingamálið þitt. Tryggingafélögin geta verið erfið í umgengni, en oft er hægt að semja.
Vandamálið gæti verið að þú hafir greitt of hátt verð fyrir bílinn miðað við viðmiðunarverð. Ég hef t.d. heyrt af vandræðum eiganda sjaldgæfra bíla sem ekki eru "viðmiðunarlistabílar" að fá tjón bætt þannig að þau coveri kaupverðið á bílnum.
Þar sem þú ert með sæmilega algengan bíl ætti að vera til viðmiðunarverð frá umboði. Mundu bara að "aukahlutir" missa verðgildi sitt nánast strax. Þeir fá ekki sömu hrakvirði (afskrift) og bíllinn sjálfur.
Margir tala um að aukahlutir afskrifist að fullu út úr verði bílsins á 2-3 árum, og eftir það séu þeir bara gulrætur til að auðvelda sölu. Þeir sem hafa keypt sér nýjan BMW, eða látið reikna hann út fyrir sig vita að svona búnaður er fokdýr, en í notuðum bíl er hann nánst lítils virði peningalega. Það sem tryggingarnar horfa á er Tegund, Skráning, Akstur, svo áskilja þeir sér rétt á "staðgreiðsluafslætti".
Ef menn telja sig vera með bíl sem er "dýrari" en normallinn og vilja fá hann bættann að fullu, t.d. í þeim tilvikum þar sem bílar eru "tjúnaðir" eða mikið breyttir, þá þurfa þeir að gera tryggingunum grein fyrir því að bíllinn sé meira virði.
Þetta felur í sér að láta skrá það hvaða búnaður er í bílnum og það verð sem eigandinn metur hann á. Í þeim tilvikum þarf síðan viðkomandi eigandi að greiða hærri tryggingu. Það munar ekki miklu í iðgjöldum en það gæti gert gæfumuninn varðandi bætur.
Fáðu einhvern til að hjálpa þér með þetta, það eru týpur til í öllum fjölskildum sem hafa staðið í svona málum, eða eru sérstaklega lagnir við að semja.
kkv,
Sven.