Steinieini wrote:
Okey.. þú veist greinilega slatta um þetta.. ég á nefnilega box fyrir 12" ---->>

Svona er það... ætti ekki að vera hægt að fá alltílæ bassa þótt það sé lítið ? ég er að hugsa kanski Pendulum solið... en samt líka muse/redhotchil/pearljam etc.

Kanski porta það? eða er það bannað eftirá ??
Var keilan upprunalega í þessu boxi?
Ef svo er og boxið sé ekki portað, þá er ekki gott að porta það, því framleiðandi af keilunni hefur hannað hana þannig að keilan eigi ekki að vera með portað box.
Svo skiptir líka máli hvar boxin eru portuð. Ég var einusinni með 2x 8" keilur, með 2 port ofaná og þar kickaði bassinn beint uppí afturhilluna, ég prufaði að smella þeim í lokað box, og það kickaði ekki shit miðað við portað box, þannig að þetta fer allt eftir því hvað það keilan sé hönnuð í.
Miðað við tónlistina sem þú ert að hlusta á, ætti engu máli að skipta í raun hvort þú ert með portað eða óportað box, svona normal gaur, með einhverja normal keilu ætti varla að heyra munin.
4000w keila segir ekki neitt. RMS og amp segja allt, margir sem feila á því að horfa bara á peak powerið en ekki RMS.
Passaðu þig bara á því að vera með ágætis hátalara inní bíl sem höndla öll ttweeter hljóðin svo bassinn yfirgnæfi ekki háu tíðnis hljóðin, það er bara steikt, margir af þessum "búmm búmmerum" sem eru bara með bassa en engin hljómgæði.
Hljómgæði yfir Wött, please.