gunnar wrote:
///MR HUNG wrote:
gunnar wrote:
Þess má geta að hann Þorsteinn fyrrum forstjóri vífilfells er þarna með þeim í för. Hann hafði vit á því að geta ekki til nafns í keppninni.
Ég held að Flugleiðir / Icelandair hafi ekki verið að gera góða hluti með að styrkja þetta.. Því miður.
WTF... Why not????
Einar kom með gott comment á þetta, ef eitthvað gerist þá líta þeir nátturulega frekar illa út.
Plús eitt, þó að við séum rosalega hrifnir af þessari keppni, þ.e.a.s Gumball þá eru það engan veginn allir,
Málið er það að ástæðan af hverju ég sagði þetta er að þessi keppni kom til viðræður við kvöldmatarborðið heima hjá mér og þar var eldra fólkið síður en hrifið af þessu uppátæki flugleiða.
Flestum finnst þetta Gumball bara vera stórhættulegt og flestir sem taka þátt í því bara kjánar.
Þannig er það bara.
Ég skil mjög vel þína afstöðu og þeirra sem eru á sama máli... en stundum á maður bara ekki að skipta sér af því sem manni kemur ekki við.
Ekkert illa meint samt og ekkert sagt til að pirra þig neitt..
Bæði hægt að líta á þessa hugmynd sem snilld og sem mikinn hálfvitaskap. Það er mjög stór 'hvað ef' faktor sem er tengdur þessari keppni... það skiptir í rauninni engu máli hvaða orðspor fyrirtækin fá á sig (nema náttúrlega fyrir hluthafa) en það sem skiptir mestu máli er að enginn slasist útaf glannaskap. Hraðasektirnar eru bara dropi í hafið fyrir þetta lið.
Margt fólk keyrir reyndar eins og hálfvitar, eini munurinn er að þarna er fólk að keppast við að komast að ákveðnu marki með því að nota almennar samgöngurleiðir sem kappakstursbrautir. Ég get ekki sagt að hugmyndin á bakvið keppnina sé viturleg en við megum ekki gleyma að það eru 240 manns í keppninni og Íslendingarnir eru ekki þeir einu...
Ég get reyndar ekki ýmindað mér að þeir séu á háannatímum á útslættinum... en það gæti svo sem vel verið.