Það mætti halda að ég og þórður værum með samantekin ráð í þessu, dæla í ykkur ferðasögum.
Jæja nóg um það.. mikill bíladelludagur í dag. Fór yfir til Monaco og eyddi deginum í að skoða bíla og snekkjur.
Furðulegur staður, hef aldrei séð jafn marga flotta bíla á einum degi og þarna í dag. Þarna sá maður t.d. Ferrari 360 (silfur, gulan, rauðan, svartan) 360 spidera, F430 bæði spider og regular, Testarossa og fleiri. Lamborghini Diablo, Gallardo + spider, Bentley línuna gamla og nýja, flottan E60M5 svartur de-krómaður með M6 felgunum, Benza í massavís, Porsche-a og stærsta safn Aston Martin bíla sem ég hef á ævinni séð. DB7, DB9 og Volante sem og Vanquish.
Mesta upplifunin var samt að sjá Rolls Royce Phantom

þennan nýja. Þetta er svo hrikalega stór bíll in person að það nær ekki nokkurri átt!!!!! Dekkin á honum eru eins og á sæmilegum jeppa.
Mesta furða samt hvað minn hógværi M5 vakti lukku, margir sem tóku myndir af honum... strange shit innan um þessa flóru þarna. En V10 var sannarlega á heimavelli þarna, sérstaklega þegar ég keyrði F1 hringinn.
F1 hringurinn er bara furðulegur "in person. Rosalega brattur, rosalega þröngur og rosalega krappar begjur, meira að segja M5 átti í smá vandræðum með corkscrew begjuna niður brekkuna. Tók þrjá hringi, besti tími var uþb 15mínútur, og sá versti tæpar 20

enda umferðin biluð. Starfsmenn bæjarins voru í óða önn að setja upp áhorfendapalla og palla fyrir myndatökumenn, þetta er greinilega mega production. Það var glæ nýtt malbik á göngunum, og svæðinu hjá sundlauginni. Pitt svæðið kom verulega á óvart. Það er hrikalega lítið.
Mæli með þessu fyrir alla bíladellumenn.
Eitt lokacomment... SMGIII er snilld. Ég hefði EKKI viljað keyra bíl í dag sem er með kúplingspetala, það er mikil umferð þarna og maður er sífelt að stoppa og taka af stað. Sjálfskiptur hefði verið bests, en ekki þegar maður losnaði við umferðina og the twisty stuff tók við

SMG er virkilega umferðateppu friendly.
Á morgun er það Genova með stoppi í San Remo, sem menn þekkja meðal annars úr WRC.
Get ekki uppað myndum eða videoinu sem ég tók í dag af F1 hringferðinni minni.